Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 2
2 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Ný rannsókn á uppistöðulóni í Brasilíu: Vatnsorkuverin geta líka mengað UMHVERFIÐ Vatnsorkuver eru ekki eins umhverfisvæn eins og menn gjarnan telja. Ný rannsókn bendir til að úr uppistöðulónum þeirra geti streymt meira magn gróður- húsaloftegunda en kolaorkuver framleiða. Slíkar lofttegundir eru taldar valda hlýnun jarðar. Í danska blaðinu Politiken í vikunni er greint frá rannsóknum vísindamanna á uppistöðulóni raf- orkuvers í Brasilíu. Þegar stífla þess var reist fór stórt svæði sem hulið var gróðri undir vatn. Þegar kolefnisríkur gróðurinn rotnaði í vatninu stigu kynstrin öll af koltvísýringi og metangasi upp á yfirborðið og blandaðist andrúms- loftinu, jafnvel meiri en kola- og olíuorkuver af svipaðri stærð framleiða. „Allir halda að vatns- orka sé mjög hreinn orkugjafi en það er ekki tilfellið,“ sagði Éric Duchemin, ráðunautur hjá Sam- einuðu þjóðunum um niðurstöður rannsóknanna. Íslensk uppistöðulón eru að jafnaði mynduð á gróðursnauðari svæðum en brasilísk lón og því má ætla að ekki streymi gróður- húsalofttegundir í jafn ríkum mæli úr þeim. - shg Tvær konur í stjórn Burðaráss: Skipafélagsbréf í arð við skráningu VIÐSKIPTI Til greina kemur að hlut- hafar Burðaráss fái bréf í Eim- skipafélaginu í arð þegar félagið verður skráð á markað. Þetta kom fram í ræðu Björgólfs Thors Björg- ólfssonar, stjórnarformanns Burða- ráss í ræðu á aðalfundi félagsins. Eimskipafélagið er að fullu í eigu Burðaráss. Björgólfur segir að slík ráðstöfun myndi stuðla að meiri dreifingu hlutafjár og betri verð- myndun á bréfum skipafélagsins á markaði eftir skráningu. Yfirlýst stefna eiganda Eim- skipafélagsins er að skrá félagið á markað. Burðarás skilaði methagn- aði á síðasta ári og hrinti í fram- kvæmd nýrri stefnu í fjárfestingum með áherslu á erlendar fjárfesting- ar. Félagið hefur bæði horft til skammtímafjárfestingar eins og í breska bankanum Singer and Fried- lander og langtímafjárfestingar svo sem í sænska sjóðnum Carnegie. Björgólfur varaði við því að velgengni í efnahagslífinu slævði vitund manna. „Enn er ríkisrekstur alltof umfangsmikill hér á landi og eftirlitskúltúrinn hreiðrar um sig og sáir í huga almennings vantrausti á atvinnulífið,“ sagði Björgólfur Thor. Ein breyting varð á stjórn Burða- ráss. Þór Kristjánsson fór úr stjórn- inni og inn í hans stað kom Kristín Jó- hannesdóttir og sitja nú tvær konur í fimm manna stjórn Burðaráss. - hh Hræðilegt að sitja og bíða Flugmaður færeysku Sjóbjörgunarsveitarinnar fannst hræðilegt að bíða aðgerðalaus í björgunarþyrlu eftir skipun um að fara til bjargar áhöfninni á Jökulfelli. Skipunin kom tveimur klukkustundum eftir að fyrsta neyðarkallið barst. SJÓSLYS „Við eigum þyrlu sem við keyptum fyrir um það bil einn og hálfan milljarð íslenskra króna og ég veit að hún hefur verið send út þegar skip hafa misst út neyðarbauju. En fyrst hún var ekki send út eftir sökkvandi skipi þá skil ég ekki hvað við höfum með hana að gera,“ sagði Torbjörn Jacobsen, þingmaður færeysku stjórnarandstöðunnar, en hann fór fyrir hópi þing- manna sem kröfðust opinberrar rannsóknar á vinnubrögðum Sjóbjörgunarsveitarinnar. Jökul- fellið sökk út af Færeyjum 7. febrúar síðastliðinn. Fjórir eistneskir sjómenn fórust með skipinu. Í framhaldi af því komust Bjørn Kalsøe, sjávarútvegsráð- herra Færeyja, og Djóna Weihe, yfirmaður Sjóbjörgunarsveitar Færeyja, að þeirri niðurstöðu að best væri að Djóna yrði leistur frá störfum meðan á rannsókn- inni stæði. Eins og fram kom í Fréttablaðinu í gær liðu tvær klukkustundir frá því að neyðar- kall barst frá Jökulfelli og þar til björgunarþyrlan var send út. Í umræðum á lögþinginu í gær kom fram að skipunin um að senda þyrluna á vettvang kom ekki frá yfirmanni Sjóbjörgunar- sveitarinnar heldur frá skip- stjóranum á varðskipinu Vædd- eren. Þetta er haft eftir fær- eyska dagblaðinu Dimmalætting í gær. Fyrsta tilkynningin barst Sjóbjörgunarsveitinni frá neyð- arbauju úr Jökulfelli en síðar barst þeim neyðarkall sem fór í gegnum Aberdeen í Skotlandi. Þá reyndi Sjóbjörgunarsveitin að ná sambandi við áhöfnina á Jökul- felli í farsíma en án árangurs. Færeyska dagblaðið Sosialurin talaði í gær við flugmann björg- unarþyrlunnar sem sagði það hafa verið hræðilega tilfinningu að sitja aðgerðalaus og bíða eftir skipun eftir að neyðarköllin höfðu borist. - jse Árekstur á blindhæð: Tvítugur maður lést BANASLYS Tvítugur maður lést í árekstri tveggja bíla skammt frá Kópaskeri á fimmta tímanum í gær. Hann var einn í bílnum en tveir menn voru í hinum bílnum. Var annar þeirra sendur í skoðun á Fjórðungssjúkrahúsið á Akur- eyri vegna meiðsla í hálsi en hinn farþeginn slapp með skrámur. Áreksturinn varð við blind- hæð á malarvegi en að sögn lög- reglunnar á Húsavík er ekki mikið um slys á þessum stað. Að- stæður voru einnig með besta móti svo erfitt er að segja til um hvað olli slysinu. - jse FLAK EFTIR BRUNANN Lögreglumenn rannsaka flak bílsins sem varð eldi að bráð snemma í gærmorgun. . Kviknaði í bíl eftir árekstur: Ökumaður stakk af LÖGREGLA Vegfarandi sem átti leið um Hverfisgötuna í gærmorgun sá að kviknað hafði í bíl sem lá upp við vegkantinn og tilkynnti hann það Slökkviliðinu sem kom á vettvang innan fárra mínútna. Ökumaðurinn sást hins vegar leggja á flótta og var ófundinn þegar Fréttablaðið hafði samband við lögregluna. Ökumaðurinn hafði keyrt niður tvær veggrindur áður en hann stöðvaði bílinn og leikur grunur á að hann hafi verið ölvaður. Ekki er ljóst hvað olli því að það kviknaði í bílnum en hugsanlega hefur bensín farið í púströrið við áreksturinn eða kviknað í út frá raf- magni. Bíllinn er gjörónýtur. - jse Sendinefnd Fischers: Flugmiðinn fenginn FISCHER-MÁLIÐ Stuðningsmenn Fischers efndu til blaðamanna- fundar í Tókýó í gær. Þar kom fram að íslenska sendiráðinu í Tókýó hefur verið sent svar við fyrirspurn íslenskra stjórnvalda, sem segir til um með hvaða hætti best sé að koma vegabréfi Bobby Fischer til hans, án þess að íslensk stjórnvöld skipti sér af japönskum innanríkis- málum. Þá kom fram að stuðningsmenn Fischers hafa keypt handa honum opinn flugmiða og vonast til að hann fái að koma til Íslands fyrir sextíu og tveggja ára afmælisdag sinn á miðvikudaginn. - ss 170.000 23.021,-* 1.990.000 2.160.000Ver› á›ur Ver› núSubaru Impreza Sedan SPURNING DAGSINS Georg, er ekki málið að Gæsl- an fái sér metanskip? „Þá vaknar spurningin hvort Færeying- ar selji metan.“ Skip Landhelgisgæslunnar kaupa eldsneyti í Fær- eyjum þar sem miklu munar á verði á Íslandi og þar. Einnig stendur fyrir dyrum að Gæslan fái nýtt skip í flotann. Georg Lárusson er forstjóri hennar. ■ MIÐ-AUSTURLÖND HERSVEITIR KALLAÐAR HEIM Fast- lega er búist við því að Assad Sýr- landsforseti tilkynni í dag að her- sveitir Sýrlendinga verði senn kall- aðar heim frá Líbanon. Alþjóða- samfélagið hefur þrýst á Sýrlend- inga að draga 15.000 manna herlið sitt frá landinu. Forstjóri Eimskipafélagsins: Sakaður um trúnaðarbrot VIÐSKIPTI Fyrrum eigendur holl- enska skipafélagsins Geest North Sea Line sem Samskip hafa keypt, hugleiða lagalegar aðgerðir vegna þess sem þeir telja trúnaðarbrot í yfirlýsingum forstjóra Eimskipa- félagsins. Haft var eftir Baldri Guðnasyni, forstjóra Eimskipafélagsins að fé- lagið hefði hugleitt kaup á Geest, en horfið frá því vegna verðsins sem var að hans sögn 3,5 milljarðar kr. Fyrrum eigendur harma ummæli Baldurs og segja rangt sem gefið var í skyn að félögin hefðu átt í al- varlegum viðræðum um kaup. Þeir segja viðbrögð forstjórans lykta af því að hann kunni ekki að tapa. - hh Afríka árið 2025: 90 milljónir HIV-smitaðar ADDIS ABABA, AP Meira en 80 milljón- ir Afríkubúa gætu dáið úr alnæmi fyrir árið 2025 ef ekki verður brugðist strax við þeim vanda sem að álfunni steðjar. Þetta kemur fram í nýrri skýrslu Sameinuðu þjóðanna sem gefin var út í gær. Skýrsluhöfundar segja að tíundi hver Afríkubúi, eða níutíu milljónir manna, muni ganga með HIV- veiruna árið 2025 miðað við stöðuna í dag. Þegar eru 25 milljónir manna smitaðir af veirunni í álfunni, eða tæplega hundrað sinnum fleira fólk en íslenska þjóðin telur. ■ LÓNIN GETA MENGAÐ Rotinn gróður á botni uppistöðulóna losar koltvísýring og metan. Ekki er þó mikill gróður undir Blöndulóni sem hér sést. SKIPBROTSMENN KOM TIL FÆREYJA Þeir fimm skipverjar sem lifðu af komu til Þórshafnar með danska varðskipinu Vædderen 9. febrúar. Fjórir menn fórust þegar Jökulfellið sökk. METÁR AÐ BAKI Friðrik Jóhannsson forstjóri Burðaráss og Björgólfur Thor Björgólfsson, stjórnarformaður gerðu upp metár á aðalfundi félagsins. Stjórn félagsins hugleiðir að láta hluthafa fá bréf í Eimskipafélaginu við skráningu þess á markað. FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.