Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 50

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 50
Á venjulegum degi er lífið í borg- inni Santa Maria í Kaliforníu ró- legt. Íbúarnir telja rétt um 85 þús- und og vísast er borgin því varla meira en mjög lítil borg á banda- rískan mælikvarða. Fyrir fáein- um vikum vissu fæstir hvar þessi litla borg var nema kannski mjög ákafir vínáhugamenn því í næsta nágrenni við borgina litlu stunda kalifornískir vínbóndar iðju sína af kappsemi. Í dag eru breyttir tímar. Poppgoðið Michael Jackson er mættur á svæðið og ekki af því hann er ákafur víná- hugamaður þó hann vildi líklega sjálfur að það væri ástæðan. Nei, Jackson er mættur til Santa Maria vegna ásakana um að hafa tælt Gavin Arvizo, ungan krabba- m e i n s s j ú k a n dreng, upp í rúm til sín á heimili sínu Neverland, sem er ekki svo langt frá Santa María. Hann er ákærður fyrir að hafa gefið drengn- um áfengi og mis- notað hann kyn- ferðislega fyrir tveimur árum þegar Arvizo var þrettán ára gamall. Réttar- höld í máli Jacksons fara fram í dómshús- inu í Santa Maria og óhætt er að segja að nú sé allt gjörsamlega á hvolfi í borginni litlu. Um eitt þúsund frétta- menn fylgjast með rétt- arhöldunum sem hófust á mánudaginn og á hverj- um degi birtast fréttir frá Santa Maria á sjónvarps- stöðvunum CNN, Sky, Fox, BBC og reyndar öll- um helstu fjölmiðlum heimsins. Ef Jackson verður fundinn sekur af öllum ákæruat- riðum á hann 21 árs fangelsi yfir höfði sér. Umdeild heimildarmynd Upphaf málsins gegn Jackson má rekja til bresku heimildarmynd- arinnar „Living with Michael Jackson“, sem fréttamaðurinn Martin Bashir gerði og var fyrst sýnd í febrúar árið 2003. Bashir fylgdi Jackson eftir í nokkra mán- uði og tók fjölmörg viðtöl við hann. Í einu þeirra lýsir Jackson samskiptum sínum við börn sem koma í heimsókn á heimili hans, Neverland. Í v i ð - talinu segist Jackson oft og iðu- lega leyfa þeim að sofa uppi í rúmi hjá sér. Hann gefi þeim mjólk og smákökur fyrir svefninn og lesi sögur. Viðtalið vakti gríð- arlega hörð viðbrögð á sínum tíma. Bæði evrópskir og banda- rískir stjórnmálamenn lýstu van- þóknun sinni á háttalagi Jackson sem og barnaverndarsamtök víðs- vegar um heiminn. Viðbrögðin voru ekki síst hörð vegna fortíðar Jackson því fyrir rúmum áratug sakaði hinn þrettán ára gamli Jor- dan Chandler Jackson um kynferðislega misnotkun. Mál Chandlers fór hins vegar aldrei fyrir dómstóla þar sem sáttir tókust utan dómssalar- ins. Talið er að Jackson hafi greitt Chandler tugi ef ekki hundruð milljóna króna til þess að forðast réttar- höld. Ekki barnasögur heldur klámsögur Tom Sneddon sak- sóknara var heitt í hamsi í byrjun vikunnar þegar hann hóf málflutn- ing á málinu gegn Jackson. Sneddon talaði svo hátt að það ískraði í hátalarakerfi dómssal- arins. Það endurspeglaðist vel í ræðu Sneddons hversu mikla áherslu ákæruvaldið leggur á heimildarmynd Bashir. Saksókn- arinn las upp úr handriti heimild- armyndarinnar og sýndi kvið- dómnum glefsur úr myndinni sem eiga að styðja mál ákæru- valdsins. Eftir að Sneddon var búinn að lesa kaflann þar sem Jackson lýsir því hvernig hann umgengst börnin, gefi þeim mjólk og smákökur og lesi fyrir þau sögur fyrir svefninn, blés saksóknarinn til sóknar. „Sögurnar sem Jackson vísar til eru ekki barnasögur heldur klámsögur af Netinu og svæsnar sögur úr klám- tímaritum,“ sagði Sneddon. „Það sem í hugarheimi Michael Jackson er mjólk og smákökur er í raun vodka og viskí.“ Sneddon notaði hvert tæki- færi til vekja samúð hjá kviðdómnum með Gavin Arvizo. Hann lýsti baráttu hans við krabbamein og fyrstu heim- sókn hans til Neverland. Sak- sóknarinn sagði að fljótlega eftir að Arvizo kom til Neverland hefði Jackson sýnt honum klámsíður á Netinu. Á sama tíma hefði Prince, sonur Jackson, setið á rúmgafl- inum. Þá á Jackson að hafa snúið sér að syni sínum og sagt: „Prince, þú ert að missa af góðu klámi.“ Sneddon lýsti líka öðru tilfelli þar sem öryggisvörður við Never- land kom að Arvizo drukknum. Á öryggisvörðurinn að hafa spurt drenginn hvers vegna hann væri fullur og á drengurinn að hafa svarað því til að Jackson hefði sagt að hann þyrfti að vera sannur karlmaður og drekka. Jackson féll í gildru móðurinnar Thomas Mesereau Jr., verjandi Jackson, lagði megináherslu á að draga úr trúverðugleika Janet Arvizo, móður Gavin. Mesereau sagði Janet oftsinnis hafa reynt að kúga frægt fólk. Meðal annars hefði hún reynt að kúga peninga út úr leikurunum Jim Carrey og Adam Sandler og hnefaleikaran- um Mike Tyson, en án árangurs. „Þessi móðir notar börnin sín í þeim tilgangi að kúga fé út úr frægu fólki,“ sagði Mesereau. „Því miður féll Jackson í gildruna en ég mun á næstu dögum sýna fram á það hvernig gildrunni var komið fyrir.“ Síðar í vik- unni kallaði ákæruvaldið Bashir, höf- und heimild- armyndarinnar umdeildu, fram sem vitni. Bas- hir hafði áður óskað eftir því að sleppa við að gefa vitni en þeirri ósk var hafn- að. Sneddon spurði Bashir út í feril hans sem fréttamanns og svaraði hann þeim spurningum og sagðist meðal annars hafa unnið fyrir BBC og ITV og hafa tekið viðtal við Díönu prinsessu. Þetta útspil saksóknarans var vafalaust gert til að auka trúverðugleika heimildarmyndarinnar. Bashir neitaði að svara Þegar Mesereau sneri sér að Bashir og hóf að spyrja hann spjörunum úr neitaði Bashir að svara og vísaði til bandarískra laga sem kveða á um að blaða- mönnum sé heimilt að verja heim- ildarmenn sína. Mesereau krafð- ist þess þá að vitnisburður Bashir yrði ómerktur en Rodney Melville dómari hafnaði því. Dómarinn sagðist hins vegar ælta að athuga hvort Bashir hefði gerst sekur um að óvirða réttinn með því að svara ekki spurningum verjandans. Ljóst er að málaferlin yfir Jackson eiga eftir að taka nokkra mánuði. Á meðan ríkir fullkomin óvissa um örlög mannsins sem lýsir sjálfum sér sem Pétri Pan nútímans. ■ 34 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Mjólk og smákökur eða vodka og klám Litla borgin Santa Maria í Kaliforníu er orðinn miðdepill Bandaríkjanna. Þar fara fram réttarhöld í kynferðisbrotamáli gegn Michael Jackson. Poppstjarnan á 21 árs fangelsi yfir höfði sér verði hann fundinn sekur. Trausti Hafliðason fjallar um málið. SKIPAN KVIÐDÓMSINS: Kviðdómur Þann 23. febrúar var tilkynnt að skipaður hefði verið tólf manna kviðdómur í máli Michaels Jackson. Enginn blökkumaður er í kviðdómnum sem er skipaður fjórum karlmönnum og átta konum. Sá yngsti í dómnum er tvítugur karlmaður en sá elsti er 79 ára gömul kona. Flestir í kviðdómnum sögðust hafa gaman að tónlist Jacksons og töldu að ferill hans væri tilkomumikill. PÉTUR PAN NÚTÍMANS Michael Jackson hefur oft lýst að- dáun sinni á sögunni um Pétur Pan sem neitar að verða fullorðinn og flýr að heiman til að forðast þau ör- lög. Jackson hefur gengið svo langt að lýsa sjálfum sér sem Pétri Pan nútímans. Haustið 2003 sýndi bandaríski sjónvarpsþátturinn Extra myndbandsupptöku frá árinu 1994 sem sýnir leyniherbergi í húsi Jackson. Samkvæmt myndbandinu er aðeins hægt að ganga inn í her- bergið frá fataskáp í svefniherbergi poppgoðsins. Í klefanum er rúm með Pétur Pan – sængurveri. Á því sést rauðhærð tuskubrúða og við hlið rúmsins er Mikka mús sími. Á veggjum klefans sjást myndir af brosandi börnum í bleium. 20 ára karlkyns gjaldkeri í banka. 21 árs karlkyns nemi. 22 ára aðstoðarkona sjúkraþjálfara. 39 ára afgreiðslukona. 42 ára kvenkyns kennari. 44 ára kvenkyns starfsmaður í félags- þjónustu. 45 ára atvinnulaus kona. 50 ára kvenkyns hestatemjari. 51 árs kvenkyns tölvuforritari. 62 ára karlkyns verkfræðingur. 63 ára karlkyns eftirlaunaþegi. 79 ára kvenkyns eftirlaunaþegi. SANTA MARIA LOS ANGELES SAN FRANSISCO KALIFORNÍA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.