Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 28

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 28
28 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Mamma er mælikvarðinn Hann situr einn í sófunum á Hótel Borg. Gylltur pilsner hringsnýst í háu glasi. Þetta er fallegur maður, hávaxinn, karlmannlega skeggjaður og skarpur til augnanna. Er staðfastur í viðmóti en afslappaður og hlýr. Segist kominn á þann stað í lífinu að þurfa að veita Fréttablaðinu viðtal. Tími aðalhlutverkanna sé kominn. Þórdís Lilja Gunnarsdóttir settist í sófann hjá leikaranum Birni Hlyni Haraldssyni. B jörn Hlynur hefur aldreiviljað veita viðtal áður.Þetta er því stór stund. „Maður getur varla opnað blað án þess að þar sé leikari að tjá sig. Leikarar eru ekkert meira spenn- andi en annað fólk og mér leiðist hvað leikarar bera sjálfa sig prí- vat og persónulega á torg. Ég hef viljað halda mig utan við þetta, enda ekki fyrr en á þessu ári sem ég sést í aðalhlutverkum og andlit mitt fer að þekkjast.“ Það togar í hann að vera met- inn af verkum sínum, frekar en persónu sinni, og honum finnst ágætur árangur að hafa unnið sem leikari í tvö ár án þess að vera þekktur. Hann sé prívatmað- ur og segir áberandi fólk í fjöl- miðlum vera þá sem leita eftir því og biðja um það sjálfir. „Það þekkir mig ekki kjaftur á götum úti, sem kannski hefur með verkefnaval mitt að gera. Leik- húsið sækir bara viss hópur, en þetta gæti breyst þegar Reykja- víkurnætur verða frumsýndar í síðasta Idol-þættinum á föstu- dag.“ Víst er að fleiri eiga eftir að horfa tvisvar á eftir Birni Hlyni eftir að nýja sjónvarpssyrpan fer í gang, en hann segist óhræddur við frægðina. „Mér hefur þótt hallærislegt þegar leikarar þykjast feimnir og athyglisfælnir, því allir vilja þeir athygli. Kollegi minn sagði sam- félagslega skyldu leikara að koma fram í fjölmiðlum og segja frá sjálfum sér, en mér finnst það vit- leysa. Maður getur auk þess orðið háður því og varhugavert að láta slíkt stjórna því sem maður gerir.“ Grænar bólur Leikarinn er kominn í viðtalsstuð. Segist ekki vita hvenær leiklistar- gyðjan birtist honum, enda ekki kominn af leikhúsætt heldur iðn- aðarmönnum. „Á vissan hátt ákveða fáir að verða leikarar. Það er ákveðið fyrir mann. Tvö hundruð manns taka inntökupróf í leiklistarskól- ann, en fæstir þeirra eru stað- ráðnir í að verða leikarar. Ég var aldrei í leikfélögum í menntaskóla og fór tíu ára í leikhús að sjá Póli- tíska könnusteypirinn vegna þess að faðir minn lék í því í Herranótt. Mér þótti það svo leiðinlegt að ég fékk grænar bólur ef ég bara keyrði framhjá leikhúsi. Í inn- tökuprófinu fannst mér ég síst vera týpan í þetta en þeir sem lentu með mér í bekk voru meira og minna alveg eins og ég. Fólk hefur nefnilega vissar hugmyndir um leikarara og það hafði ég líka. Þeir eiga að vera mikið út á við og sjálfumglaðir, og kannski hræsni að segja að maður sé ekki þannig sjálfur. Allir vilja athygli og njóta þess að standa fyrir framan áhorfendur.“ Ef athyglin fer úr böndunum núna segist Björn Hlynur ekki hafa haft þörf fyrir að glugga í handbók frægðarinnar. „Ég hræðist ekki frægðina, en mun koma í veg fyrir að verða Coca-Cola-kallinn. Í Reykjavíkur- nóttum leik ég sjálfumglaðan leti- haug og finnst gaman að leika per- sónur sem mér finnst vera fyndn- ar í samfélaginu, þótt ég skelfist um leið að vera þannig sjálfur. Kannski er ég líka sjálfumglaður letihaugur gagnvart vinum og fjölskyldu því manni hættir til að sýna sitt rétta andlit í eigin hópi, og bróður mínum finnst ég aldrei vinna neitt, en hann er smiður,“ segir hann og kímir með óþekkt- arsvip. Ófullnægðir leikarar Björn Hlynur er einn fjögurra leikara sem stofnuðu leikhópinn Vesturport. Sá sló í gegn með frumlegri útfærslu á Rómeó og Júlíu sem sýnt hefur verið í tvö ár, nú síðast á West End í Lundúnum. „Vesturport átti að verða um- ræðugrundvöllur, því í leikhús- heiminum er umræðan aðallega meðal fólks í leiklistarskólum og á börunum. Með tímanum fara menn að vinna hver í sínu horni, þetta verður rútína og fólk berst við leiðann. Það kom mjög á óvart hve margir leikarar eru ósáttir og ófullnægðir í starfinu. Endalaust margir vilja vinna við leiklist og því á hún ekki að vera neitt annað en eitt stórt ævintýri. Held að fólk gleymi stundum hvers vegna það er að þessu.“ Hann segir hugsanabreytingu verða að eiga sér stað í leikhúsinu. „Leikhús heimsins þjást af mikilli minnimáttarkennd gagn- vart bíómyndum og sjónvarpi, en leikhúsið verður að nýta sér kvik- myndir og sjónvarp, í stað þess að segja það hafa eyðilagt leikhúsið. Á Íslandi er fullkomið tækifæri til þess vegna smæðarinnar. Við þurfum að átta okkur á hvaða sögu við viljum segja og hvers vegna við ætlum að reka leikhús.“ Björn Hlynur tekur sopa af pilsnernum og hugsar sig um. „Flestar uppgötv- anir og byltingar verða til upp úr leiða, svo leiðinn á sínar góðu hliðar. Maður verður að trúa að leiklist geti breytt heiminum, en hún gerir það ekki eins og hún er í dag. Hún er krydd í tilveruna, sögustund, dægrastytting, og það er ekkert endilega slæmt. Varpar ljósi á hluti sem við gleymum stundum í lífinu sem áhorfendur en kannski vitleysa í manni að halda að hún þurfi að breyta heiminum, einum og einum í einu er nóg,“ segir hann glettinn í augunum. Hættulegar hugmyndir Í andrúmi hótelsins leika alvar- legir klassískir tónar. Björn Hlyn- ur segist í eðli sínu einlægur. Hann er fjölskyldumaður. Faðir fjögurra ára dóttur. „Tíu sekúndum áður en sýning hefst hugsa ég alltaf hvern and- skotann ég er að gera. Sviðs- skrekkurinn er samt aðeins á undanhaldi. Það er ekki alltaf auð- velt að sýna glugga sem maður er ekki mikið fyrir að opna sjálfur. En svona kynnist maður sjálfum sér smátt og smátt. Þannig var með Rómeó og Júlíu. Við fórum í líkamsþjálfun og komumst að því að sum okkar gátu gert hluti sem við héldum að okkur væru ógerlegir. Þetta er mikilvægt fyrir leikara því ann- ars sýna þeir alltaf sömu hliðar, koma með sömu hugmyndirnar og sömu viðbrögðin. Góðir leikarar eru óútreiknanlegir.“ Vesturport sýndi Rómeó og Júlíu á West End í þrjá mánuði. Átta sýningar í viku. „West End-heimurinn er ekki endilega fyrir verk eins og okkar. Þetta er mikið sölubatterí og það sem gengur þar ár eftir ár eftir ár er sömu söngleikirnir. En okkur gekk vel með Shakespeare og ögrun að fara með svo heilagt verk til uppruna síns í Bretlandi. Venjulega er Shakespeare ekki settur upp á West End, en á sama tíma var annar hópur að sýna klassíska uppfærslu á Rómeó og Júlíu í skelfi- legum sokkabuxum og allt. Þetta voru h á l f g e r ð a r vinnubúðir hjá okkur, minntu á herinn og þurfti að passa upp á að allir borðuðu og svæfu rétt til að hafa sem mest úthald.“ Hjá Vesturporti er kvikmyndin Kvikindi í burðarliðnum og á teikniborðinu er að kvikmynda leikritið Brim um sjómenn í Vest- mannaeyjum. „Við í Vesturporti pössum upp á hvert annað, svo við verðum ekki leið. Því koma oft upp grófar hugmyndir eins og að kvikmynda Brim úti á ballarhafi, vera sjó- veikur í mánuð og láta sig bara hafa það. Um leið verður hug- myndin spennandi og hættuleg, og maður fær í magann við til- hugsunina,“ segir Björn Hlynur hlæjandi. Að koma nakinn fram Á hausti komanda verða Strákarn- ir okkar frumsýndir í íslenskum bíóhúsum, þar sem Björn Hlynur fer með aðalhlutverkið. Myndin fjallar um samkynhneigt knatt- spyrnulið, en okkar maður brýtur blað í innilegum ástarsenum með öðrum karlleikara. Hann segist til í ýmislegt fyrir leiklistina, ef það hjálpar heildarútkomunni. „Mamma er mælikvarðinn. Hún er orðin ýmsu vön. Ég hef svo oft gengið fram af henni með hlutverkavali. Fyrsta hlutverkið í Englabörnum fjallaði um kyn- ferðislega misnotkun og í Lykli um hálsinn, sem Reykjavíkurnæt- ur eru beint framhald af, er mikið um ofbeldi og djöfulgang. Menn sjá stundum rómantík í því að til dæmis fita sig um 40 kíló fyrir hlutverk eða koma nakinn fram. Sjálfur hef ég sýnt á mér typpið oftar en einu sinni á sviði og er auðvitað feiminn við það, en tek það ekki mjög nærri mér.“ Og vissulega ætlar hann að horfa á frumsýningu Reykjavík- urnótta á Stöð 2 á föstudagskvöld- ið. „Ef ég verð ekki sofnaður. Ég svæfi oft stelpuna mína og sofna með henni fram á nótt,“ segir hann brosmildur en spenntur. Annað væri ekki hægt. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V AL LI LEIKARI OG PRÍVATMAÐUR Björn Hlynur Haraldsson hefur lítið látið fyrir sér fara þótt hann hafi oft- sinnis stolið leiksenunni síðustu tvö árin. Kastljós frægðarinnar sýnir varla lengur sömu miskunn. Leikar- inn lítilláti verður í tveimur aðalhlut- verkum á næstunni; í sjónvarpsþátt- unum Reykjavíkurnætur og kvik- myndinni Strákarnir okkar. Í leikhúsheiminum er umræðan aðal- lega meðal fólks í leiklistar- skólum og á börunum. Með tímanum fara menn að vinna hver í sínu horni, þetta verður rútína og fólk berst við leiðann. Það kom mjög á óvart hve margir leikarar eru ósáttir og ófull- nægðir í starfinu. ,,
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.