Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 70

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 70
54 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Heimildarmyndir Alfreð Elíasson L O F T L E I Ð A Æ V I N T Ý R I Ð Kvikmyndir & l jósmyndir Þeir sem eiga eða vita um kvikmyndir eða ljósmyndir af Alfreð og Loftleiðum (flugvélum, samstarfsfólki, stemmningunni o.fl.) eru vinsamlega beðnir að hafa samband við Sigurgeir Orra í síma 897 1984 eða Kristjönu Millu í síma 564 1530. Að gefnu tilefni er rétt að taka fram að aðrir aðilar vinna líka að mynd um Loftleiðir. Heimildarmyndir ehf. vinna að gerð kvikmyndar um Alfreð Elíasson stofnanda og forstjóra Loftleiða. Alfreð var einstakur frumkvöðull og viðskiptajöfur sem af fádæma dugnaði og útsjónarsemi byggði upp, ásamt samstarfsfólki sínu, fyrirtæki sem var um tíma þrefalt stærra en togarafloti Íslands samanlagður. sigurgeirorri@mac.com :: kmth@isl.is Kristján Frosti Logason, gítar- leikari rokksveitarinnar Mínus, heimsótti fyrir skömmu svokall- aða Rokksmiðju sem Samfés, Samtök félagsmiðstöðva á Ís- landi, stóð fyrir. Það þykir tíðind- um sæta að meðlimur Mínuss hafi verið fenginn í heimsókn hjá Samfés því hljómsveitin hefur ekki verið í náðinni hjá samtök- unum eftir að viðtöl við meðlimi sveitarinnar birtust í rokktíma- ritunum Rock Sound og Bang. Í viðtölunum töluðu meðlimir Mínuss heldur frjálslega um eit- urlyf og fór það fyrir brjóstið á stjórn Samfés. Mínus átti að leika á Samfésballi í byrjun síð- asta árs og fóru forsvarsmenn samtakanna þess á leit að með- limir sveitarinnar skrifuðu undir samning þar sem þeir lýstu því yfir að hafa aldrei neitt eitur- lyfja. Mínus neitaði að skrifa undir samninginn og lagði annan samning fram. Forsvarsmenn Samfés sættust ekki á þann samning og fór svo að hljóm- sveitin lék ekki á ballinu. „Við höfum aldrei haft neitt á móti persónunum í Mínus,“ sagði Hafsteinn Snæland, framkvæmdastjóri Samfés, spurður út í heimsókn Frosta í Rokksmiðjuna. Vel virðist hafa farið á með Frosta og unglingunum því eins og gítarleikarinn segir sjálfur í dagbókarfærslu á heimasíðu sveitarinnar: „Þar var ótrúlega mikið af hæfileikaríkum rokkur- um sem við eigum eftir að sjá mikið af í framtíðinni, er ég viss um.“ ■ Samfés sættist við Mínus FROSTI Í ROKKSMIÐJU Gítarleikarinn hitti unga og efnilega rokkara í Rokksmiðju Samfés. Ekki eru allir á eitt sáttir við þá óvæntu ákvörðun Bubba Morthens um að selja trygginga- fyrirtækinu Sjóvá-Almennum höfundarréttinn af öllum verkum sínum fyrir tugi milljónir króna. Valur Gunnarsson, ritstjóri Reykjavík Grapevine, er einn af þeim sem hefur blöskrað ákvörð- un Bubba og ákvað að efna til nokkuð sérstakra mótmæla á dög- unum. Valur tók með sér tuttugu Bubbaplötur sem hann átti og jarðaði þær á planinu þar sem frystihúsið Ísbjörninn var eitt sinn til húsa. Orti Bubbi einmitt um það á fyrstu plötu sinni, Ís- bjarnarblús. Ásamt því að jarða plöturnar lagði Valur hvíta rós ofan á þær „til minnis um lista- manninn Bubba Morthens sem illa fór fyrir,“ eins og hann orðar það. „Mér finnst heimurinn kominn til andskotans ef maður þarf að útskýra að maður sem hefur verið maður fólksins og verkalýðsins sé allt í einu búinn að selja allt sem hann hefur búið til í hendur trygg- ingafyrirtækis,“ segir Valur, sem telur að Bubbi sé búinn að selja sálu sína. „Hann gerði það reyndar fyrir löngu en núna hefur hann dæmt allt marklaust sem hann hefur sagt í gegnum tíðina. Öll hans vinna fer beint í vasa trygginga- fyrirtækis sem þýðir endanlegan sigur jakkalakka yfir gúanórokk- aranum. Ég hef verið aðdáandi Bubba lengi og maður hefur fyrir- gefið honum ýmislegt en nú er tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens endanlega búinn,“ segir hann. Valur undrast lítil viðbrögð al- mennings við þessu uppátæki Bubba. „Það versta við þetta er hvað engum finnst neitt að þessu. Fyrir löngu síðan táknaði rokkið eitthvað. Við eigum rétt á því að gera þannig kröfur til listamanna okkar að verk þeirra tákni eitt- hvað; ef ekki hafa þeir engan til- gang.“ freyr@frettabladid.is VALUR GUNNARSSON: JARÐAÐI TUTTUGU BUBBAPLÖTUR Jakkalakkar eignast gúanóið Augnskuggastíll níunda áratugarins. Á þessum tíma varekki í tísku að spara augnskuggann. Eftir augnskuggaæð- ið fóru konurnar að minnka augnskugganotkunina og skygg- ingarnar tóku við. Núna hins vegar sést augnskugganotkun í anda níunda áratugarins meira og meira og í stað þess að skyggja með augnskugganum er allt augnlokið þakið með skugga. Ekki er þó fallegt að hafa litinn mjög dökkan. Leður í lit. Leðurjakkar í dökkbláu, rauðu, gulbrúnu,grænu eða fjólubláu eru svakalega töff og poppa fötin mun meira upp en sá svarti klassíski. Einnig er gasalega gordjöss að spranga um í litríkum leðurstígvélum, sérstak- lega núna þegar fer að líða að vori. Litríkir og munstraðir klútar eru frábær leið til þess aðkrydda upp fatnað. Flott er að binda þá lauslega um hálsinn og leyfa þeim að flaksa í vorgolunni. Stórt blóma- munstur er samt eitthvað sem ber að forðast því klútarnir mega ekki verða of kellingalegir. Allt í stíl. Vinsælt er þegar til dæmis keyptir eru skórað kaupa tösku eða annað í sama lit. Til þess að vera í stíl. Gul taska og gul húfa í stíl. Grænn bolur og grænir sokkar í stíl. Í tísku dagsins í dag er þetta frekar lummó og fátt hallærislegra en að vera svona kirfilega steyptur í stíl. Frjálslegar og furðulegar litasamsetningar eru miklu meira töff. Óhófleg notkun á förðunarvörum. Klessulegur maskari,skær varalitur, dökk lína í kringum augun, meikklessur og dökkur augnskuggi. Nei, þetta er alls ekki flott og þó að oft sé gaman að mála sig pínu meira þegar planið er að fara eitthvað fínt þá er það „less is more“ reglan sem gildir. Flestum strákum þykir líka stelpur sem mála sig of mikið ekkert smart! Blómateygjur. Á sumrin virðast blómateygjurnarspretta upp eins og mýflugur úti um allt. Gerviblóm í hárinu og jafnvel á bak við eyrað. Það getur ekki verið að þetta verði aftur kúl. Þetta er algjörlega búið og senjor- ítupælingarnar verða ekkert töff í sumar. INNI ÚTI ...fær Hemmi Gunn sem ætlar að byrja aftur með eigin þátt í sjón- varpi eftir langt hlé. HRÓSIÐ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M HVÍL Í FRIÐI Valur Gunnarsson við gröf Bubbaplatnanna tuttugu sem hann jarðaði fyrir skömmu. 1 6 7 98 10 12 13 1514 16 18 17 11 2 3 4 5 Lárétt: 1 semja, 6 kostur, 7 á nótu, 8 drykkur, 9 skelfing, 10 rándýr, 12 sjór, 14 sár, 15 kyrrð, 16 belti, 17 bandvefur, 18 nudda. Lóðrétt: 1 köld, 2 frostskemmd, 3 fisk, 4 á ferli á daginn, 5 elska, 9 óheft, 11 lítil flaska, 13 drykkjumaður, 14 ósk, 17 átt. Lausn Lárétt: 1skálda,6val,7an,8öl,9ógn,10úlf, 12mar, 14ben,15ró,16ól,17sin,18niða. Lóðrétt: 1svöl,2kal,3ál,4dagfari, 5ann,9 ólm,11peli,13róni,14bón,17sa.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.