Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 22

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 22
Sverrir áhorfandi Sverrir Hermannsson, fyrrum formaður Frjálslynda flokksins, sagði í samtali á Talstöðinni að hann skipti sér ekki af því sem gerðist í kosningum til embætta í flokknum. Sagðist sestur í helgan stein, en ekki alveg. Hann sagði enga ástæðu til að skipta um formann og lýsti þar með stuðningi við Guðjón Arnar Krist- jánsson, sem eins og kunnugt er dró Sverri með sér á þing í kosningunum 1999. Guðjón er aftur á móti ekki í vafa um hvað hann vill. Hann vill að núver- andi varaformaður, Magnús Þór Haf- steinsson, verði áfram í embætti. Eitthvað mistaldi Guðjón Arnar þegar hann færði rök fyrir skoðun sinni og benti á þing- reynslu Magnúsar um- fram Gunnar Örn Örlygsson, en á þeim munar heilum degi. Einum degi. 22 5. mars 2005 LAUGARDAGUR stjornmal@frettabladid.is nánar á visir.is Rými ehf Háteigsvegi 7 Reykjavík Sími 511 1100 Bréfsími 511 1110 ÚTS ALA N Í FU LLU M G AN GI Ef þú ert mikill aðdá- andi hreingerninga þá biðjumst við velvirðing- ar á því að valda þér vonbrigðum. Með Pergo gólfefni verður þú að finna þér eitthvað annað að gera í frítímanum þínum. Stórútsala á Pergo parketi Ótrúlegt verð Ekki missa af gólfefnaútsölu ársins Aðeins í nokkra daga                                             !  ""#       $      % &   R Í K I S S K A T T S T J Ó R IRSK Bestu vinir Dóra slá í gegn Ný hljómsveit skipuð ein- tómum framsóknar- mönnum kom fram á flokksþinginu um síðustu helgi. Hjálmar Árnason formaður þingflokksins spilaði á trommur. Hann útilokar ekki að hljóm- sveitin gefi út plötu. FLOKKSÞING Á flokksþingi Fram- sóknar um síðustu helgi kom fram glæný og áður óþekkt hljómsveit skipuð ekki svo óþekktu fólki. „Við lékum þarna heil tvö æfð lög og vorum jafnframt neydd til þess að taka óæft aukalag,“ segir Hjálmar Árnason, formaður þing- flokks Framsóknarflokksins og trommari hljómsveitarinnar. „Auk mín var hljómsveitin skipuð þeim Magnúsi Stefánssyni, Sigurði Egilssyni, Guðmundi Ragnarssyni og söngvararnir voru ekki af verri endanum held- ur því Árni Magnússon félags- málaráðherra og Sæunn Stefáns- dóttir varaþingkona og aðstoðar- kona heilbrigðisráðherra, sungu þetta kvöld. Við spiluðum þarna lögin Mustang Sally og Proud Mary og aukalagið Traustur vinur fyrir um fimmhundruð manns og höfðum afskaplega gaman af og síðan hef ég verið hamingjusamur maður,“ segir hann og hlær. Að sögn Hjálmars er sveitin ónefnd ennþá en margar hug- myndir hafa komið upp, þar á meðal „Bestu vinir Dóra“, og úti- lokar hann ekki að hljómsveitin gefi jafnvel út eitthvert efni. Aðspurður hvernig þetta mikla hljómsveitarævintýri hafi komið til segir hann að allt hafi byrjað með kaupum hans á trommusetti fyrir nokkrum árum. „Ég hef átt þennan draum síðan ég var lítill strákur og ákvað að láta hann rætast. Ég byrjaði að æfa mig úti í bílskúr og gekk nú mjög illa svo lítið sé sagt. Eftir flokksþingið hef ég þó öðlast meira sjálfstraust í þessu áhuga- máli mínu og finnst fátt betra en að koma heim að loknu argaþrasi á þinginu og ganga út í bílskúr þar sem ég á unaðslegar stundir með þeim Charlie Watts, B.B. King og John Lee Hooker og fer vel á með okkur félögunum. Svo kem ég klukkutíma seinna aftur inn endurnærður og glaður.“ hilda@frettabladid.is FRAMSÓKNARBANDIÐ Hjálmar Árnason, formaður þingflokks Framsóknarflokksins og trommari, ber hér húðirnar ásamt hljómsveit á flokksþingi Framsóknar um síðustu helgi. Úr bakherberginu...
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.