Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 62

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 62
Tenórinn vinsæli, José Carreras, var ánægður með að vera kominn til Íslands á ný, en hann stoppar stutt á landinu að þessu sinni. Hann kom síðdegis á fimmtudag með einkaflugvél sinni og heldur af landi brott strax á morgun. Hann segist þó ætla að leggja allt sitt í það að fólk geti átt ógleymanlega kvöldstund í Háskólabíói í kvöld. Með í för eru nokkrir hljóð- færaleikarar frá Ítalíu, sem ætla að spila með honum á tónleik- unum í kvöld. Þar er á ferðinni kvartett sem nefnir sig Nuovo Quartetto Italiano og píanóleikar- inn Lorenzo Bavaj. Á efnisskrá tónleikanna verða verk frá ýmsum löndum og ýmsum tímabilum, en að öllum líkindum ætlar hann ekki að syngja eina einustu óperuaríu. Söngvarinn er þeirrar skoðunar að óperutónlist þurfi helst að flytja eins og hún var skrifuð, með fullskipaðri Sinfóníuhljóm- sveit. Með söngvaranum hingað til lands komu dóttir hans, Julia, og tengdasonur. Carreras hafði mik- inn hug á að sýna þeim Ísland, þetta land sem hann heillaðist svo mjög af síðast þegar hann kom hingað. Julia og maður hennar hafa líka óspart notað tímann til að skoða landið, og sjálfur ætlar Carreras að reyna að bregða sér í stutta skoðunarferð í dag, vænt- anlega að Gullfossi og Geysi. ■ 46 5. mars 2005 LAUGARDAGUR EKKI MISSA AF… ... sýningu Vignis Jóhanns- sonar í Hallgrímskirkju, sem opnuð verður í dag. Þar sýnir hann innsetninguna Sólstafi. .. dagskrá á morgun í Þjóð- menningarhúsinu helgaðri Davíð Stefánssyni, sem er skáld mánaðarins. Þar mun Gunnar Stefánsson, dagskrár- gerðarmaður hjá RÚV, fjalla um Davíð á yngri árum og Ítalíuför hans sérstaklega. Einnig syngur Ólafur Kjartan Sigurðarson við undirleik Jónasar Ingimundar- sonar. ... Nemendaóperu Söng- skólans í Reykjavík, þar sem 22 ungir söngvarar flytja róm- antískar óperuperlur í Salnum í Kópavogi. Kvenfélagið Garpur er hópur nokkurra ungra leikkvenna sem í dag frumsýna spunaverkið Kaktusmjólk í Klink og Bank. Þetta er spunaverk sem unnið er upp úr textum eftir Beckett, Pinter, Söruh Kane og Matei Visniec. Tvær leikkonur koma fram í sýning- unni, þær Maríanna Clara Lúthersdóttir og Sólveig Guðmundsdóttir, en leik- stjóri er Graeme Maley frá Skotlandi. „Við flytjum þetta á ensku, einfaldlega vegna þess að við erum að vinna með texta sem erfitt er að þýða. Svo fannst okkur hrynjandinn svo góður í textun- um á frummálinu, auk þess sem enskan passar mjög vel við efni verks- ins, þar sem fjallað er um eftirstöðvar stríðs,“ segir Sólveig Guðmundsdóttir. Ráðgerðar eru sjö sýningar á Kaktus- mjólk í Klink og Bank. Kvenfélagið Garpur var stofnað vorið 2003 og fékk nýverið úthlutað styrk frá menntamálaráðuneytinu sem notaður verður til að setja upp nýtt verk áður en langt um líður. Kl. 17.00 Rússneski píanóleikarinn Alexander Vaul- in heldur tónleika í sal Norræna hússins. Hann flytur þar verkin Frá tíma Holbergs eftir Edvard Grieg, Fantasíu op. 35 eftir Louis Glass, Kyllikki, Þrjú lýrísk verk op. 41 eftir Jean Sibelius og Sónata í g moll eftir Wilhelm Stenhammar. menning@frettabladid.is Kaktusmjólk Kvenfélagsins Garps JOSÉ Í REYKJAVÍK Stórsöngvarinn fékk afdrep í Söngskólanum í Reykjavík til þess að æfa sig fyrir tónleikana í Háskólabíói í kvöld. Fréttablaðið/Teitur Býr sig undir ógleymanlega tónleika ! Umdeild og mögnuð sýning! Sýnt í kvöld, fim. 10/3, fim. 17/3. Aðeins þessar þrjár sýningar eftir! Sjö íslenskir háskólar verða með kynningu á námsframboði sínu á Stóra háskóladeginum í Borgar- leikhúsinu í dag. „Vertu viss um að þú verðir á réttri hillu“ er yfirskrift kynningar- innar, þar sem fulltrúar verða frá Háskólanum á Akureyri, Hólaskóla, Kennaraháskóla Íslands, Landbún- aðarháskóla Íslands, Listaháskóla Íslands, Viðskiptaháskólanum á Bifröst og Háskólanum í Reykjavík, sem er nýr háskóli sem verður til við sameiningu Háskólans í Reykja- vík og Tækniháskólans. „Þetta er kjörið tækifæri fyrir alla til að koma og kynna sér nám í öllum þessum skólum á einum degi,“ segir Álfrún G. Guðrúnar- dóttir, sem er kynningarstjóri Listaháskóla Íslands. „Við hvetjum alla til að koma hvort sem þeir eru búnir að ákveða sig eða ekki.“ Frá hverjum háskóla sjá bæði nemendur og kennarar, námsráð- gjafar og kynningarstjórar um kynninguna í anddyri Borgarleik- hússins, þar sem búast má við líf- legu umhverfi. Einnig verður dag- skrá á Litla sviðinu frá klukkan 11.30 þar sem hver háskóli fær hálf- tíma til þess að kynna einhverja spennandi þætti í námsframboðinu. Sem dæmi má nefna að fulltrúi Kennaraháskólans ætlar að skýra frá því af hverju það er skemmtilegt að vera íþróttakennari og fulltrúi Viðskiptaháskólans segir frá því hvers vegna það er skemmtilegt að vera stjórnandi eða leiðtogi. Frá Landbúnaðarháskólanum koma skýringar á því hvers vegna lands- lagsarkitektúr er kenndur við land- búnaðarháskóla og svo verður Lista- háskólinn með kynningu á B.A. námi í leiklist, sem er nýjung á Íslandi. „Við höfum hingað til bara verið með fjögurra ára leikaranám, og það heldur áfram, en þetta nýja nám verður sambland af fræðum og framkvæmd,“ segir Álfrún. Kynning verður á Háskólanum í Reykjavík, sem strax frá næsta hausti býður upp á nám í fjórum deildum: viðskiptadeild, lagadeild, kennslufræði- og lýðheilsudeild og loks tækni- og verkfræðideild. „Innan verkfræðinnar munum við til dæmis bjóða nýjar greinar sem ekki hafa sést áður á íslandi, svo sem heilbrigðisverkfræði og fjármálaverkfræði,“ segir Ásdís Ýr Pétursdóttir, sem er verkefna- stjóri á markaðs og kynningarsviði Háskólans í Reykjavík. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /E .Ó L. ÁLFRÚN OG ÁSDÍS ÝR Þær eru fulltrúar tveggja af þeim sjö háskólum sem kynna starf- semi sína í Borgarleikhúsinu í dag. CAMERARCTICA Flytur tónlist eftir Paul Hindemith í Borgarleikhúsinu í dag. Haldið upp á Hindemith „Við héldum Hindemith-hátíð fyrir tíu árum þegar hundrað ára afmælið hans var. Nú er komið að hundrað og tíu ára fæðingarafmælinu og við erum að endurnýja kynni okkar af honum,“ segir Ármann Helgason klarinettuleikari. Hann ætlar ásamt félögum sínum í kammerhópnum Camer- arctica að flytja þrjú verk eftir Hindemith á tónleikum í Borgar- leikhúsinu í dag. Tónleikarnir hefjast klukkan 15.15, enda eru þeir liður í rómaðri tónleikaröð sem ber yfirskriftina 15.15. „Hindemith var útskúfaður á sínum tíma, en ég held að menn eigi eftir að uppgötva hann aftur. Hann var mikill tónlistar- maður og á meistarastykki sem standa upp úr af því sem samið var á síðustu öld.“ Á tónleikunum verða flutt þrjú verk eftir Hindemith. Eitt þeirra er kvintett fyrir klar- inettu og strengi þar sem Ármann verður í aðalhlutverki með klarinettunni sinni. „Það hefur staðið lengi til að flytja þennan kvintett, en hann er svo þrælsnúinn að það þarf miikla vinnu til að flytja hann.“ Einnig verða fluttir tveir dúettar fyrir fiðlu og klarinettu, sem Hindemith samdi fyrir ungt fólk og hugsaði sér að þessi verk yrðu aðgengileg bæði fyrir spilara og áheyrendur. Aðrir félagar í Camerarctica eru Hallfríður Ólafsdóttir á flautu, Hildigunnur Halldórs- dóttir og Sigurlaug Eðvalds- dóttir á fiðlu, Guðrún Þórarins- dóttir á víólu og Sigurður Hall- dórsson á selló. Tónleikarnir verða á Nýja sviðinu í Borgarleikhúsinu. ■ FR ÉT TA B LA Ð IÐ /V IL H EL M Sjö háskólar kynna sig
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.