Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 4

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 4
KAUP Gengisvísitala krónunnar Bandaríkjadalur Sterlingspund Evra Dönsk króna Norsk króna Sænsk króna Japanskt jen SDR USD GBP EUR DKK NOK SEK JPY XDR 60,64 60,92 115,66 116,22 79,54 79,98 10,68 10,75 9,67 9,73 8,79 8,85 0,58 0,58 92,30 92,86 GENGI GJALDMIÐLA 04.03.2005 GENGIÐ Heimild: Seðlabanki Íslands SALA 109.27 -0,25% 4 5. mars 2005 LAUGARDAGUR Meintir ódæðismenn frá Beslan: Fjórir handteknir og fimm felldir RÚSSLAND, AP Fimm manns féllu og fjórir voru handteknir í áhlaupi rússneskra lögreglusveita gegn hópi fólks sem grunað er um aðild að gíslatöku og morðum í barna- skóla í Beslan í Norður-Ossetíu síð- astliðið haust. 330 týndu lífi í Besl- an, mest skólabörn. Nikolai Shepel, saksóknari í borginni Rostov, skýrði frá þessu í gær en vildi hvorki segja hvar né hvenær áhlaupið fór fram. Þeir sem voru handteknir eru grunaðir um að hafa undirbúið gíslatök- urnar en sjálfir gíslatökumennirn- ir féllu flestir í umsátrinu á sínum tíma. Hinir handteknu eru einnig grunaðir um að hafa sprengt upp lögreglustöð í Ingúsetíu í fyrra- sumar þar sem 90 fórust. Reiði og óþolinmæði í garð yfir- valda fer vaxandi á meðal almenn- ings í Rússlandi vegna þess hve langan tíma hefur tekið að upplýsa harmleikinn í Beslan. Margir telja að stjórnvöld reyni að breiða yfir hversu auðveldlega ódæðismönn- unum tókst að smygla vopnum og sprengjum til Beslan. Tsjetsjenski aðskilnaðarsinninn Shamil Basajev gengur enn laus en hann er talinn hafa skipulagt voðaverkið. ■ Stjörnuleitin slær í gegn Idol-stjörnuleit er vinsælasta sjónvarpsefni landsins, samkvæmt nýrri fjöl- miðlakönnun IMG Gallup sem gerð var í febrúar. Fréttablaðið er enn mest lesna dagblað landsins. Lestur á DV eykst um tæp fjögur prósentustig. KÖNNUN Fréttablaðið er mest lesna dagblað landsins samkvæmt nýrri könnun IMG Gallup. Að meðaltali lesa 67,1 prósent blaðið daglega sem er örlítið minni lestur en í könnun Gallups frá nóvember á síðasta ári. Samkvæmt könnuninni lesa 51,9 prósent Morgunblaðið dag- lega en í síðustu könnun var það hlutfall 49,4 prósent. Hástökkvari dagblaða er DV, en nú lesa 20,1 prósent landsmanna blaðið dag- lega en samkvæmt síðustu könn- un voru það 16,7 prósent. Vinsælasti frumsýndi sjón- varpsþátturinn í febrúar var Idol- stjörnuleit, sem sýnd er á Stöð 2. Rétt tæplega helmingur þjóðar- innar fylgdist með. Í nóvember þegar síðasta könnun var gerð, voru það 43,3 prósent landsmanna sem horfðu á Idol en nú eru það 49,5 prósent. „Að vinsælasta sjón- varpsefnið sé sent út í læstri dag- skrá, það hlýtur að vera óvana- legt,“ segir Heimir Jónasson, dag- skrárgerðarmaður á Stöð 2. Hann segir jafnframt að með þessari könnun sé brotið blað í íslenskri sjónvarpssögu. Aldrei fyrr hafi heildaráhorf á Stöð 2 verið svona mikið, sem komi til vegna sam- spils frábærrar dagskrár og góðrar markaðssetningar. Það er fyrrum langvinsælasti sjónvarpsþátturinn, Spaugstofan, sem nú er í öðru sæti. Nú eru það 48,6 prósent sem horfa á Spaug- stofuna, en í síðustu könnun 59,1 prósent. Þá minnkar áhorf á þætt- inum Laugardagskvöld með Gísla Marteini. Nú horfa 39,3 prósent á þáttinn, en voru 53,9 prósent. Fréttir Ríkissjónvarpsins hafa sama áhorf og í nóvember, 43,3 prósent. En áhorf á fréttir Stöðvar 2 hefur dalað lítillega, úr 34,4 í 33,5 prósent nú. Vinsælasti þátturinn á Skjá einum var Innlit-útlit, og mældist hann með 20,6 prósenta áhorf. Í könnuninni var fólk spurt hvort það hefði haft frían aðgang að fjölmiðlum í vikunni sem könn- unin var gerð. Alls sögðust 6,9 prósent hafa fengið Morgunblaðið frítt. Þá sögðust 10,3 prósent hafa fengið DV frítt. 3,8 prósent sögð- ust hafa fengið Stöð 2 frítt og 1,6 höfðu fengið Sýn frítt. Könnun Gallups var dagbókar- könnun sem gerð var dagana 4. til 10. febrúar. Í úrtaki voru 1.266 Ís- lendingar á aldrinum 12 til 80 ára, valdir með tilviljunaraðferð úr þjóðskrá. Nettósvarhlutfall var 63,3 prósent. svanborg@frettabladid.is Landhelgisgæslan: Vélakostur endurnýjaður LANDHELGISGÆSLAN Ríkisstjórnin samþykkti í gær að skip og flugvélar Landhelgisgæslu Ís- lands yrðu endurnýjuð . Má reikna með að rétt um tvo milljarða kosti að endurnýja flotann með þeim kröfum sem gerðar eru til getu hans, sam- kvæmt útreikningum Landhelg- isgæslunnar. Fulltrúum dóms- og kirkju- málaráðherra og fjármálaráð- herra verður falið að gera tillögur um kaup eða leigu á fjölnota varð- skipi og eftirlitsflugvél en loka- ákvörðun er í höndum ríkisstjórn- arinnar. - gag BÍLL Í DYRAGÆTTINNI Bíllinn er stórskemmdur og einnig eru nokkrar skemmdir á húsinu. Missti stjórn á bíl: Ók nánast inn í hús LÖGREGLUMÁL Ökumaður missti stjórn á bíl sínum á Laugavegin- um um kvöldmatarleytið í gær. Hann ók á handrið og þaðan kastaðist bíllinn á kyrrstæðan bíl og nánast inn í hús við Lauga- veginn. Mildi þykir að engin slys hafi orðið á fólki. Að sögn lögreglu er ekki vitað hvað olli slysinu. Maðurinn var hvorki undir áhrifum áfengis né annarra vímuefna. Bíll öku- mannsins er stórskemmdur sem og kyrrstæði bíllinn. Einnig sér nokkuð á húsinu. Bíllinn var dreginn í burtu með kranabíl. - th RÁÐIST Á PILT MEÐ RAKVÉLAR- BLÖÐUM Fjórtán ára piltur í bæn- um Ystad í Svíþjóð varð fyrir fautalegri líkamsárás í gærmorg- un þegar nokkrir jafnaldrar hans réðust að honum með rakvélar- blöðum og skáru hann illa. Að sögn Aftonbladet höfðu árásarmenn- irnir smápeninga upp úr krafsinu auk jakka fórnarlambsins. DYRABJÖLLUAT Í BUVIKÅSEN Fjölskyldu í Buvikåsen í Noregi brá í brún í vikunni þegar dyra- bjöllunni var ítrekað hringt snemma morguns. Enginn var sjá- anlegur þegar fjölskyldufaðirinn lauk upp dyrunum en hins vegar mátti sjá spor eftir spaugsaman elg sem þarna hafði gert dyrabjölluat. Stórabelti: Skip sigldi á brúna SJÓSLYS Mannskaði varð þegar danskt flutningaskip sigldi á brúna yfir Stórabelti á fimmtudaginn. Loka varð brúnni vegna slyssins og varð nokkur töf á samgöngum á milli Fjóns og Sjálands fyrir vikið. Brúin var svo opnuð aftur síðdegis í gær. Við árekstur- inn rifnaði brú skipsins nánast af. Stýrimaður skipsins var einn í brúnni og beið hann bana en aðrir skip- verjar sluppu með skrámur. Talsmenn siglingamálayfir- valda á svæðinu viðurkenndu í samtali við Jyllandsposten í gær að mannleg mistök hafi ráðið því að ekki var gripið inn í fyrr en of seint. ■ Vélsleðamaður slasaðist: Þyrlan var kölluð til baka SLYS Þyrla landhelgisgæslunnar var kölluð út um hádegi í gær eftir að tilkynnt hafði verið um að breskur ferðamaður hefði lent í vélsleða- slysi skammt frá Dettifossi. Þegar björgunarsveitir komu að manninum ásamt lækni var sú ákvörðun tekin að senda þyrluna til baka aftur þar sem maðurinn reyndist ekki alvarlega slasaður. Í upphafi var þó ekki á annað hætt- andi en að senda þyrluna norður því hvorki lögregla né björgunarsveitir höfðu komist í samband við menn á slysstað. Ferðamaðurinn reyndist vera illa meiddur á hendi og kom til byggðar í fylgd björgunarsveitar- manna. - jse Gómsætu kæfurnar frá Go›a eru fyrir alla fjölskylduna ■ NORÐURLÖND ÓÞREYJAN FER VAXANDI Íbúar Beslan mótmæltu í vikunni seina- gangi lögreglunnar í Moskvu og kröfðust afsagnar Pútíns Rússlandsforseta.FR ÉT TA B LA Ð IÐ /A P M YN D /A P TÍU VINSÆLUSTU SJÓNVARPSÞÆTTIRNIR Þáttur Sjónvarpsstöð Áhorf Idol-stjörnuleit Stöð 2 49,5 Spaugstofan Rúv 48,6 Idol-stjörnuleit símakosning Stöð 2 44,3 Fréttir Rúv 43,3 Laugard.kv. með Gísla Marteini Rúv 39,3 Örninn Rúv 35,3 Fréttir Stöð 2 33,5 Gettur Betur Rúv 32,2 Kastljós Rúv 27,5 Ragnar í Smára Rúv 27,5 HEIMILD: FJÖLMIÐLAKÖNNUN IMG GALLUP FEBRÚAR 2005 Meðallestur dagblaða/ uppsafnað áhorf meðaldags sjónvarpstöðva/ eitthvað hlustað á útvarpsstöð/ uppsafnaður lestur tímarita. Allar tölur eru í prósentum. Frétta- blaðið Sjón- varpið Stöð 2 Morgun- blaðið Birta Rás 2 Bylgjan Skjár Einn 67 67 62 52 51 38 35 32 ÖFLUGUSTU FJÖLMIÐLARNIR Fréttablaðið er enn öflugasti fjölmiðill landsins en 67 prósent landsmanna lesa blaðið að jafnaði. Áhorf beggja sjónvarpsstöðvanna eykst. Áhorf Sjónvarpsins eykst um fimm pró- sentustig og áhorf Stöðvar 2 eykst um sjö prósentustig. H EI M IL D : F JÖ LM IÐ LA KÖ N N U N IM G G AL LU P FE BR Ú AR 2 00 5 MIKLAR SKEMMDIR Stýrimaður skipsins beið bana við áreksturinn.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.