Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 47

Fréttablaðið - 05.03.2005, Blaðsíða 47
Leikarinn og leikstjórinn Clint Eastwood stal senunni á nýliðinni Óskarsverðlaunahátíð þegar hann var verðlaunaður fyrir bestu kvikmyndina, Million Dollar Baby, og sem besti leikstjórinn. Bar hann meðal annars sigurorð af hinum merka leikstjóra Martin Scorsese sem hafði fjórum sinn- um áður verið tilnefndur til verð- launanna en aldrei unnið. Eastwood var aftur á móti að vinna í annað sinn, því árið 1992 fékk hann sömu tvö verðlaunin fyrir vestrann Unforgiven. Spagettívestri slær í gegn Clint Eastwood er lifandi goðsögn og vafalítið eitt af helstu átrúnað- argoðum þeirra hasarmyndaleik- ara sem hafa skarað hvað mest fram úr á undanförnum árum. Eastwood fæddist í San Francisco árið 1930, sonur verkamanns í stálverksmiðju. Hann hætti í menntaskóla og fékk fljótt lítil hlutverk í B-myndum ár borð við Tarantula (1955) og Francis in the Navy sem kom út sama ár. Árið 1959 fékk hann hlutverk í sjón- varpsþáttunum Rawhide sem áttu eftir að njóta mikilla vinsælda. Varð Eastwood fljótt þekktur víðsvegar um Bandaríkin sem kúrekinn Rowdy Yates. Næst reyndi Eastwood fyrir sér sem eitursvalur kúreki í spag- ettívestranum A Fistful of Dollars eftir ítalska leikstjórann Sergio Leone. Árið eftir, eða 1965, fór Eastwood með hlutverk í fram- haldinu, For a Few Dollars More, en það var ekki fyrr en í þriðja spagettívestranum, The Good, the Bad and the Ugly, sem hann sló virkilega í gegn. Myndin naut mikilla vinsælda og Eastwood var orðinn heimsfræg kvikmynda- stjarna. Í framhaldinu fékk hann hlutverk í myndunum Where Eagles Dare, Coogan’s Bluff og hinum vinsælu Paint Your Wagon og Kelly’s Heroes. Fyrsta leikstjórnarverkefnið Árið 1971 var afar gjöfult fyrir Eastwood. Hann leikstýrði sinni fyrstu mynd, Play Misty for Me, sem vakti mikla lukku auk þess sem hann fór með aðalhlutverkið í The Beguiled. Það var í Dirty Harry sem Eastwood fékk endanlega þann harðhausastimpil sem hefur fylgt honum allar götur síðan. Eastwood lék þar lögguna „Dirty“ Harry Callahan sem kallaði ekki allt ömmu sína í baráttu við bófana í San Francisco. Í myndinni lætur Callahan frasann „Do you feel lucky, punk?“, flakka er hann segir einu rustamenninu til syndanna og hefur hann verið eitt af einkennis- merkjum Eastwood síðan. Eastwood hélt áfram að leika í vestrum á borð við High Plains Drifter, Joe Kidd og Hang ’Em High. Hann lék í framhaldi Dirty Harry, Magnum Force árið 1973 og Thunderbolt and Lightfoot ári síðar og fengu báðar góða aðsókn. 1976 lék Eastwood í The Enforcer sem er af mörgum talin besta framhaldsmynd Dirty Harry og The Outlaw Josey Wales sem hefur verið talinn einn af bestu vestrum allra tíma. Leikstýrði hann einnig þeirri mynd og var þá öllum orðið ljóst að þar fór afar hæfileikaríkur leikstjóri. Unforgiven blæs lífi í ferilinn Níundi áratugurinn var ekki sér- lega gjöfull fyrir Eastwood fyrir utan myndina Sudden Impact þar sem hann var enn í hlutverki harðjaxlsins Harry Callahan. Kappinn virtist vera hættur að laða fólk í bíóin í eins miklum mæli og áður og fór því að ein- beita sér frekar að leikstjórn. Bird þótti vel heppnuð en hún fjallaði um djasstónlistarmanninn Charlie „Bird“ Parker, auk þess sem White Hunter, Black Heart naut nokkurrar hylli. Eastwood kom ýmsum á óvart er hann sendi árið 1992 frá sér vestrann Unfor- given, sem sló rækilega í gegn og festi hann jafnframt í sessi sem einn besta leikstjóra Bandaríkj- anna. Í kjölfarið fylgdu In the Line of Fire, A Perfect World og The Bridges of Madison County sem þóttu ágætar en náðu ekki að fylgja vinsældum Unforgiven nógu vel eftir. Enn fleiri Óskarar Eftir nokkrar frekar slakar mynd- ir í viðbót var komið að Eastwood að rísa aftur á fætur með Mystic River árið 2003 sem var tilnefnd til sex Óskarsverðlauna og hlaut tvenn. Var þetta fyrsta mynd hans í langan tíma þar sem hann var ekki á meðal leikara. Næst var komið að Million Doll- ar Baby þar sem Eastwood sýndi og sannaði á ný hversu öflugur leikstjóri hann er. „Margar frábærar myndir hafa unnið Óskarsverðlaunin og margar frábærar myndir hafa ekki gert það,“ sagði Eastwood eftir að styttan eftirsótta var í höfn enn á ný. „Þú verður bara að gera þitt besta og sjá svo til.“ Eastwood, sem er 74 ára, er elsti leikstjóri sem hefur unnið Óskar- inn og lætur engan bilbug á sér finna. „Það er fullt af ungum ná- ungum að koma fram á sjónar- sviðið en ég vil ekki að kvik- myndaframleiðendur gleymi þessum eldri í bransanum. Þeir og þær eru þarna úti, tilbúin að gera sínar bestu myndir á ferlinum fyrir ykkur.“ Næsta leikstjórnarverkefni Eastwood er Flags of Our Fathers sem er væntanleg á næsta ári og hver veit nema hann láti til sín taka á nýjan leik á næstu Óskarshátíð? Þessi mikli harðjaxl virðist eiga nóg inni enn- þá. freyr@frettabladid.is LAUGARDAGUR 5. mars 2005 31 Síungur harðjaxl Clint Eastwood sem stal senunni á síðustu Óskarsverðlaunahátíð á að baki langa og merka sögu í Hollywood bæði sem leikari og leikstjóri. Fréttablaðið skoðaði feril kappans. CLINT EASTWOOD Rétt nafn: Clinton Eastwood Jr. Hæð: 193 cm Á sjö börn og hefur kvænst tvisvar Af hollenskum og breskum ættum Mikill djassáhugamaður Kjörinn borgarstjóri í Carmel í Kaliforníu 1986 Hljómsveitin Gorillaz söng lagið vinsæla Clint Eastwood MEÐ ÓSKARINN Clint Eastwood með Óskarinn sem hann fékk fyrir að leikstýra Million Dollar Baby. KÚREKINN CLINT Eastwood átti öfluga endurkomu í Unforgiven. DIRTY HARRY Persónan Dirty Harry festi harðhausastimpilinn endanlega á Eastwood.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.