Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 1

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 1
MEST LESNA DAGBLAÐ Á ÍSLANDI VEÐRIÐ Í DAG Sími: 550 5000 SUNNUDAGUR 8. janúar 2006 — 7. tölublað — 6. árgangur EGILL GILZENEGGER Slær ekki slöku við á nýju ári Biblía fallega fólksins væntanleg í lok mánaðarins FÓLK 38 BALTASAR KORMÁKUR Hyggur á frekara samstarf við Forest Whitaker Er í viðræðum við stórstjörnu fyrir næsta verkefni FÓLK 38 ÓLAFUR RAGNARSSON Íslendingar mættu drekka meiri mjólk atvinna Í MIÐJU BLAÐSINS Róm rís á ný Kvikmyndir um forna heimsveldið í Róm eru í tísku á ný. Svo virðist sem gerð mynda sem slíkra taki púlsinn á utanríkisstefnu Bandaríkjanna. HELGAREFNI 18 VIÐSKIPTI Greining Íslandsbanka spáir því að úrvalsvísitalan hækki um tuttugu prósent á þessu ári. Bankinn telur að bjart sé fram undan á hlutabréfamarkaði vegna góðs gengis í efnahagslíf- inu. Horfur í rekstri fyrirtækja séu almennt góðar auk þess sem stærstu fyrirtækin haldi upptekn- um hætti í útrásinni á árinu. Íslandsbanki og Landsbankinn gera ráð fyrir að afkoma helstu félaga á fjórða ársfjórðungi slái öll fyrri met og heildarhagnaður fyrirtækjanna verði um 59 millj- arðar króna. Fyrir árið í heild er búist við að heildarhagnaður fari yfir 160 milljarða króna. Það eru fjármálafyrirtæki sem skila drjúgum hluta hagnaðarins og leikur gengishagnaður stórt hlutverk sem fyrr. Viðskiptabank- arnir þrír, Straumur og FL Group, munu hagnast um 138 milljarða gangi spárnar eftir. - eþa/ sjá síðu 12 Íslandsbanki um hlutabréf: Hækka um fimmtung í ár Erum við með Guð í genunum? Í nýrri bók vestanhafs er því haldið fram að maðurinn sé erfða- fræðilega hannaður til að trúa á æðra máttarvald. HELGAREFNI 16 Konur undir fimmtugu velja Fréttablaðið! MEÐAL LESTUR KVENNA 12-49 ÁRA 53% 36% *Samkvæmt fjölmi›lakönnun Gallup í október 2005. Hnallþóra á pappadiska Dóra Takefusa ætlar að bjóða vinum og vandamönnum upp á kaffi, þar sem afmælisdaginn ber upp á sunnu- dag. Hún er 35 ára í dag. TÍMAMÓT 14 STJÓRNMÁL Árni Magnússon félags- málaráðherra verður frá störfum næstu vikur vegna veikinda eigin- konu sinnar. Er áætlað að hann komi aftur til starfa í ráðuneyt- inu og á þingi í byrjun febrúar. Halldór Ás– grímsson for- s æ t i s r á ð h e r r a gegnir embætti fé l a gsm á l a r á ð - herra í fjarveru Árna. Þá mun Sæunn Stefáns- dóttir, varaþingmaður og aðstoð- armaður Jóns Kristjánssonar heil- brigðisráðherra, taka sæti Árna á Alþingi. - bþs Árni Magnússon ráðherra: Frá störfum næstu vikur ÁRNI MAGNÚS- SON Félagsmála- ráðherra. ÞAÐ MÁ BÚAST VIÐ HVASSVIÐRI, jafnvel stormi, í kvöld og í nótt. Hægari vindur framan af og hlýnar þegar líður á daginn. Él og síðar skúrir um landið suðvestanvert. VEÐUR 4 Eiður bjargaði Chelsea Eiður Smári Guðjohnsen var hetja Chelsea gegn Huddersfield í 3. umferð ensku bikarkeppninnar í gær. Eiður Smári skoraði sigurmark liðsins tæpum tíu mínút- um fyrir leikslok. ÍÞRÓTTIR 34 BRETLAND, AP Charles Kennedy, leiðtogi Frjálslyndra demókrata, annars helsta stjórnarandstöðu- flokksins í Bretlandi, sagði af sér síðdegis í gær. Uppsögn hans kom í kjölfarið á miklum deilum innan flokksins sem urðu eftir að hann viðurkenndi í síðustu viku að hann ætti við áfengisvandamál að stríða og hefði leitað sér hjálpar. Kennedy hafði áður neitað því að hann væri alkóhólisti, en sögusagnir um slíkt hafa gengið árum saman. Í framhaldi af viðurkenningu Kennedys settu 25 þingmenn, um h e l m i n g u r þ i n g m a n n a Frjálslyndra, honum afar- kosti og sögð- ust ekki ætla að starfa áfram í flokknum nema hann segði af sér fyrir mánudag. Í fyrstu ætlaði Kennedy að berjast fyrir starfi sínu, sem hann hefur haldið síðan 1999, og sagðist ætla að gefa kost á sér í komandi leiðtogakjöri sem hann óskaði eftir. Nú hefur Kennedy hins vegar tilkynnt að hann muni ekki bjóða sig fram til áframhaldandi starfa sem leiðtogi flokksins. „Hagur flokks okkar verður að ganga fyrir, þar liggur mín persónulega, pólitíska og þingbundna skylda,“ sagði Kennedy á blaðamanna- fundi sem haldinn var skömmu eftir að tilkynningin um uppsögn hans barst frá höfuðstöðvum Frjálslynda demókrataflokksins í Westminster. - smk Leiðtogi Frjálslynda demókrataflokksins segir af sér: Kennedy hættir formennsku HÆTTUR Leiðtogi Frjálslyndra demókrata sagði af sér í gær. BRENNUR Ákveðið var á fundi ábyrgðarmanna að aðeins tvær brennur færu fram í gærkvöldi og öðrum brennum frestað þar til eftir helgi. Leyft var að kveikja í brennum í Mosfellsbæ neðan Holtahverfis við skeiðvöllinn og í Gufunesi. Heppilegra þótti að fresta öðrum brennum þar sem þær tengjast skóla- og félagsstarfi í hverfunum. - jóa Þrettándagleði í Grafarvogi: Tvær brennur leyfðar ÞRETTÁNDAGLEÐI Margir lögðu leið sína í Grafarvoginn í gær til að kveðja jólin með virktum. Farið var í blysför og mættu álfar og tröll til að taka þátt í hátíðahöldunum. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON VIÐSKIPTI Í gærkvöldi var sam- kvæmt heimildum Fréttablaðsins unnið að því að ganga endanlega frá samningum um kaup nokkurra aðila á hlut Straums - Burðaráss í Íslandsbanka. Straumur var stærsti hluthafi bankans með um 28 prósenta hlut. Straumur mun samkvæmt þeim drögum sem lágu fyrir í gær selja um 25 prósenta hlut í bankanum og halda eftir milli tveggja og þriggja prósenta hlut. Stærsti kaupandinn nú er FL Group, sem mun eftir kaupin eiga 16,5 prósenta hlut í Íslandsbanka, sem er að markaðs- virði um fjörutíu milljarðar króna. Þáttur, sem er í eigu Milestone undir forystu Karls Wernerssonar, mun auka lítillega við hlut sinn en verður eftir kaupin stærsti hlut- hafi bankans með 22,5 prósenta hlut. Baugur á fimmtung í Þætti, en meðal annarra stórra eigna Þáttar er 66 prósenta hlutur í Sjóvá. Karl hefur undanfarin misseri unnið að því að auka hlut sinn í bankanum Einnig hefur verið rætt við aðra fjárfesta um kaup á smærri hlut- um í bankanum. Markaðsvirði bankans var á föstudag 244 milljarðar króna. Greitt verður fyrir bréfin með hlutafé í öðrum félögum og í reiðu- fé og mun Straumur meðal annars fá eigin bréf og bréf í Landsbank- anum sem hluta greiðslu. Gengi í viðskiptunum miðast við loka- gengið við lok markaðar á föstu- dag. Fyrir jól var unnið að sölu þessa hlutar, en þá stóð til að Ólaf- ur Ólafsson tæki stærri hlut en nú varð raunin. Þá var gert ráð fyrir að Straumur fengi talsvert af hlutabréfum í KB banka sem greiðslu fyrir hlutinn. Upp úr þeim viðræðum slitnaði og munu KB banka bréf ekki vega þungt nú samkvæmt heimildum. Skriður komst á málið á ný eftir fund Karls Wernerssonar og Björgólfs Thors Björgólfssonar. Í framhaldinu tók Straumur ákvörð- un um að minnka hlut sinn og leit- aði til nokkurra aðila um kaup. Þessi viðskipti eru háð samþykki Fjármálaeftirlitsins og ekki hefur verið ákveðið hvort stjórn bank- ans verður breytt með því að boða til hluthafafundar eða hvort beðið verður næsta aðalfundar bankans í mars. - hh 60 milljarða viðskipti með Íslandsbanka Í gærkvöldi var verið að leggja lokahönd á kaup nokkurra aðila á hlut Straums í Íslandsbanka. Eftir kaupin verður Þáttur stærsti hluthafinn með hlut að verð- mæti 54 milljarða og FL Group verður næststærsti hluthafinn. ROKKAÐ FYRIR NÁTTÚRUNA Þúsundir voru í Laugardalshöll í gærkvöldi á hljómleikum sem haldnir voru til stuðnings náttúruvernd. Fjölmargir listamenn komu fram á hljómleikunum og má þar nefna Björk, Damon Albarn, Sigur Rós, Mugison og Egó. Nick Cave var leyni- gestur og ætlaði þakið að rifna af Höllinni þegar hann birtist á sviðinu. FRÉTTABLAÐIÐ/HEIÐA
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.