Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 12
 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR12 nánar á visir.is Umsjón: Því er spáð að hagnaður fimmt- án helstu fyrirtækja í Kauphöll Íslands fyrir allt árið 2005 verði yfir 160 milljarðar króna, þar af um 59 milljarðar á síðasta árs- hluta. Greiningardeildir Íslands- banka og Landsbankans birtu fyrir helgi afkomuspár sínar. Bankarnir gera ráð fyrir að keppinautarnir í KB banka skili bestri niðurstöðu eða nærri 47 milljarða króna hagnaði. Því er spáð að Straumur - Burðarás hagnist um 27 milljarða, Landsbankinn um 25 milljarða og Íslandsbanki um 23 milljarða króna. FL Group kemur svo í fimmta sæti með sautján milljarða króna hagnað á árinu 2005 en búist er við mjög góðum tölum frá félaginu á fjórða ársfjórðungi. Fjórföldun á fjórða ársfjórðungi Þegar einvörðungu er litið til síð- asta ársfjórðungs nýliðins árs er ljóst að hagnaður fyrirtækjanna jókst gríðarlega samanborið við sama tímabil í fyrra. Í afkomu- spám bankanna kemur fram að gengishagnaður sé meginástæð- an fyrir þessum umskiptum en hann hefur aldrei verið meiri en á fjórða ársfjórðungi. Landsbankinn spáir því til dæmis að afkoma Kauphallarfé- laga verði fjórfalt meiri á fjórða ársfjórðungi 2005 en á sama tíma í fyrra og gerir ráð fyrir að hagn- aður þeirra verði tæpir 54 millj- arðar króna en var til saman- burðar rúmir þrettán milljarðar á sama tíma árið 2004. Íslandsbanki spáir lægri hagn- aði eða um 49 milljörðum á fjórða ársfjórðungi en töluverður munur er á spám bankanna til uppgjörs Straums. Niðurstaðan er sú að hagnað- ur fyrirtækjanna verður um 59 milljarðar að meðtaldri afkomu Íslandsbanka og Landsbankans sem spá auðvitað ekki fyrir um eigin afkomu. Straumur í fyrsta sæti Það kemur kannski á óvart að hagnaður Straums - Burðaráss verður meiri en hagnaður KB banka á fjórða ársfjórðungi gangi spárnar eftir. Afkoma Straums - Burðaráss var aðeins 127 milljónir á lokahluta ársins 2004 en verður nú um 13,3 milljarðar króna samkvæmt spám bankanna. KB banki heldur áfram að mala gull og skilar um 11,9 milljörðum í hagnað samkvæmt spánum en 46,7 milljörðum fyrir árið í heild. Þá býst greiningardeild Lands- bankans við um 7,2 milljarða hagnaði Íslandsbanka á fjórða ársfjórðungi og 22,8 milljörðum á öllu nýliðnu ári. Íslandsbanki gerir hins vegar ráð fyrir að Landsbankinn hagnist um átta og hálfan milljarð á fjórða ársfjórð- ungi og ársafkoman verði jákvæð um 25 milljarða. Hagnaður hjá fyrirtækjum í framleiðslu, þjónustu og iðnaði verður töluvert minni en hagn- aður fjármálafyrirtækjanna. Þannig hljóðar meðaltalsspá bankanna tveggja að hagnaður þessara fyrirtækja verði um 15,7 milljarðar á fjórða ársfjórðungi. Landsbankinn reiknar með að hagnaður fyrir afskriftir (EBIT- DA) verði 12,4 milljarðar króna á fjórða ársfjórðungi, sem er meira en sjö milljarða aukning á milli ára. Það að hagnaður eftir skatta er hærri en rekstrarhagnaður fyrir afskriftir skýrist af gríðarlegum gengishagnaði FL Group á eign- arhlut sínum í easyJet á síðasta ársfjórðungi. Bjart framundan Greining Íslandsbanka er bjart- sýn á árið 2006. Þannig býst bank- inn við að Úrvalsvísitalan hækki um 20 prósent en þess má geta að á fyrstu dögum ársins hefur hún hækkað um tæp sex prósent. „Enn er góður gangur í efnahagslífinu og horfur í rekstri fyrirtækjanna eru almennt séð góðar. Útrás og hröð framþróun stærstu fyrir- tækjanna mun áfram spila stórt hlutverk á markaðnum,“ segir í skýrslu bankans. Fjárfestingarráðgjöf bankans breytist að því leyti að mælt er með yfirvogun Landsbankans og FL Group sem þýðir það að þessi tvö félög muni skila betri ávöxt- un en markaðurinn á næstu 3-6 mánuðum. Actavis færist í markaðsvogun en Össur í undir- vogun. Landsbankinn gerir ráð fyrir minni hækkunum hlutabréfaverðs og áætlar að hlutabréf hækki að meðaltali um tólf prósent, sem er ávöxtunarkrafa bankans til markaðarins. Þar sem Úrvals- vísitalan hækkar mun minna í ár en undangengin þrjú ár er ljóst að hagnaður fjármálafyrirtækja mun dragast nokkuð saman á árinu 2006. eggert@frettabladid.is Reykjavíkurborg hefur með vísan til ákvæða í X. kafla laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991 ákveðið að bjóða eldri borgurum akstursþjónustu í læknisheimsóknir, skipulagða endurhæfingu og félagsstarf. Um er að ræða þjónustu við íbúa Reykjavíkur, sem eru 67 ára og eldri, búa sjálfstætt, eru ófærir um að nota almenningssamgöngur vegna langvarandi hreyfihömlunar og hafa ekki aðgang að eigin farartæki. Sækja þarf um akstursþjónustuna til þjónustumiðstöðvar í því hverfi þar sem umsækjandi býr: Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Vesturbæjar er að Hjarðarhaga 45-47, sími 411-1700. Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Miðborgar og Hlíðar er að Skúlagötu 21, sími 411-1600. Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Laugardals- og Háaleitis er að Síðumúla 39, sími 411-1500. Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Breiðholts er í Álfabakka 12, sími 411-1300. Þjónustumiðstöð fyrir íbúa Árbæjar, Grafarholts og Norðlingaholts er að Bæjarhálsi 1, sími 411-1200. Þjónustumiðstöð fyrir íbúa í Grafarvogi og á Kjalarnesi er í Langarima 21, sími 411-1400. Akstursþjónusta Nýjung í þjónustu fyrir eldri borgara í Reykjavík • • • Ferðir geta verið allt að 30 á mánuði og kostar hver ferð 250 kr. sem miðast við almennt staðgreiðslugjald hjá Strætó bs. sem sér um framkvæmd þjónustunnar. Þeir sem hafa þegar ferða- þjónustu í félagsstarf á vegum Reykjavíkurborgar þurfa ekki að sækja um að nýju. Reglur og nánari upp- lýsingar ásamt umsóknar- eyðublöðum er hægt að nálgast á öllum þjónustumiðstöðvum í Reykjavík og á vef Reykja- víkurborgar, reykjavik.is. Vekjum athygli á að í þjónustusíma Reykja- víkurborgar 411-1111 fást allar upplýsingar. ������������� Sviðsstjóri Velferðarsviðs Reykjavíkurborgar • • • • • • • • • • • • • • • Í afkomuspám bankanna kemur fram að gengishagnaður sé meginástæðan fyrir þessum umskiptum en hann hefur aldrei verið meiri en á fjórða ársfjórðungi. Landsbankinn spáir því til dæmis að afkoma Kauphallarfélaga verði fjórfalt meiri á fjórða ársfjórðungi 2005 en á sama tíma fyrir ári síðan. ÞÓRÐUR MÁR JÓHANNESSON, FORSTJÓRI STRAUMS - BURÐARÁSS Straumsmönnum er spáð mestum hagnaði á fjórða ársfjórðungi eða yfir þrettán milljörðum samkvæmt spám Íslandsbanka og Landsbankans. Gengishagnaður leikur stórt hlutverk í uppgjöri félaganna. 160 milljarðar í árshagnað Hagnaður helstu Kauphallarfélaga nærri fjórfaldast á fjórða ársfjórðungi. Gengishagnaður fjármálafyrir- tækja í sögulegu hámarki. Spáð minni hækkun Úr- valsvísitölunnar í ár. AFKOMA FÉLAGA Í KAUPHÖLL ÍSLANDS* (upphæðir í milljónum króna) Ársafkoma Fjórði ársfjórðungur Actavis 5.335 1.855 Bakkavör 3.343 1.021 Dagsbrún 788 237 FL Group 17.246 10.673 HB Grandi 757 -177 Icelandic Group 28 50 Íslandsbanki 22.781 7.194 KB banki 46.672 11.923 Kögun 636 201 Landsbanki 24.707 8.501 Marel 508 111 Mosaic Fashions 1.455 533 SÍF 968 979 Straumur 27.324 13.261 Tryggingamiðstöðin 7.983 2.596 Össur 866 315 Alls 161.397 59.273 * Meðaltalsspá greiningardeilda Íslandsbanka og Landsbankans FR ÉTTA B LA Ð IÐ /STEFÁ N
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.