Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 72

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 72
 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR32 FÓTBOLTI Ferill hollenska varnar- mannsins Winstons Bogarde er ákaflega áhugaverður en margir hafa spurt sig að því hvernig honum datt í hug að eyða bestu árum ferilsins í frystikistunni hjá Chelsea þegar hann hefði hæglega getað gengið til liðs við annað félag og fengið fyrir það fínan pening. Bogarde útskýrir það í nýútkominni ævisögu sinni sem ber nafnið „Þessi svarti maður mun ekki beygja sig fyrir neinum“. Í ágúst árið 2000 hélt Bogarde að hann væri á leið til Newcastle en Bobby Robson, þáverandi stjóri Newcastle, vildi ólmur fá hann til félagsins eftir að hann hafði verið leystur undan samningi hjá Barcelona. Chelsea steig síðan inn í myndina á elleftu stundu og bauð Bogarde helmingi betri samning en Newcastle gerði. Slíkum samningi gat Bogarde ekki hafnað. Feitur samningur Hann skrifaði undir fjögurra ára samning við Gianluca Vialli og félaga en samningurinn átti að færa honum 2 milljónir punda í aðra hönd, rúmar 227 milljónir króna. Þegar Bogarde mætti á æfingu hjá Chelsea þrem vikum síðar var búið að reka Vialli en staðan var óþægilega lík þeirri sem Bogarde hafði lent í hjá AC Milan. Þá samdi hann við Arrigo Sacchi, sem var rekinn fyrir fyrsta leik og við tók Fabio Capello en Bogarde og hann áttu aldrei skap saman og rifust oft heiftarlega á æfingasvæðinu. Fyrir vikið eyddi Bogarde mestu af sínum tíma í Mílanó í áhorfendastúkunni en landi hans Louis van Gaal kom honum til bjargar fyrir leiktíðina 1997- 98 og fékk hann til Barcelona. Leiktíðin gekk vel og Bogarde var í lykilhlutverki í meistaraliði félagsins. Næsta tímabil gekk ekki eins vel og van Gaal var látinn blæða fyrir gengið. Perreira, sem tók við, hafði enga trú á Bogarde og leysti hann undan samningi við félagið þó að ár væri eftir af samningnum. Þaðan fór hann til Chelsea og fljótlega lenti hann í sömu vandamálum við Claudio Ranieri, stjóra Chelsea sem tók við af Vialli, og hann lenti í með Capello. Bogarde var vanur að skipta sér mikið af æfingum og það þoldu hvorki Capello né Ranieri. Fékk ekki númer Þeim lenti saman og úr varð að Ranieri sendi Bogarde í varaliðið. Síðar gekk hann enn lengra með því að láta Bogarde ekki einu sinni fá númer og hann ákvað að niðurlægja Hollendinginn á háu laununum með því að láta hann æfa með unglingaliði félagsins. Þrátt fyrir það datt Bogarde aldrei í hug að fara fram á sölu. Ástæðan var einföld: Hann vildi ekki gefa eftir peningana sem hann hafði samið um við Chelsea. Í ævisögunni er sagt að ástæðan sé bakgrunnur Bogardes. Hann var yngstur þrettán systkina og ólst upp við mikla fátækt. Hann átti gott samband við móður sína en faðir hans var drykkfelldur og sjaldan heima. „Ég var mikið í fótbolta og ef það hefði ekki gengið hefði ég orðið glæpamaður,“ segir Bogarde í bókinni en hann talar einnig um hneykslið hjá Ajax árið 1996 þegar í ljós kom að dökkir leikmenn félagsins voru með mun lægri laun en þeir sem voru hvítir á hörund. Þegar Bogarde fékk síðan draumasamninginn hjá Chelsea ákvað hann frekar að taka launin en berjast fyrir framtíð sinni í boltanum. Hann skammast sín ekkert fyrir þá ákvörðun. Mínir peningar „Af hverju átti ég að kasta frá mér 15 milljón evrum? Þegar ég skrifaði undir samninginn voru peningarnir orðnir mínir og ég ætlaði ekki að sleppa takinu af þeim. Vissulega hefði ég getað farið annað og spilað fyrir minni pening en ef fólk þekkir bakgrunn minn þá verður það vart hissa. Ég var alltaf mjög fátækur og slíkt fólk sleppir ekki taki af peningum sem búið er að bjóða þeim. Það fá fáir tækifæri til þess að græða svona mikið. Ég er kannski ein verstu kaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar en mér er alveg sama,“ sagði Bogarde en játaði þó að það hefði verið auðmýkjandi reynsla að labba framhjá æfingum aðalliðsins með strákunum í unglingaliðinu. Það voru oft þung spor. Bogarde hengdi dagatal á vegginn heima hjá sér þegar sextíu dagar voru eftir af samningnum við Chelsea og hann setti X yfir dagana eins og fangi sem er að bíða eftir að komast út. Líf hans var ömurlegt þessa daga og hann lifði óheilbrigðu lífi, drakk romm í kók á daginn, talaði í símann og horfði á DVD. Laus úr prísundinni 14. maí 2004 losnaði hann loksins úr prísundinni sem hann hafði sjálfur byggt sér. Hann er hættur knattspyrnuiðkun í dag og er í dag meðeigandi fyrirtækis í Hollandi sem setur upp tónleika. Hann stefnir einnig á að hjálpa Súrínam að komast á HM 2014 en hann tengist því landi líkt og margir þeldökkir Hollendingar. henry@frettabladid.is Byggt á efni frá soccernet.com Ég er kannski ein lélegustu kaup í sögu ensku úrvalsdeildarinnar Hollenski varnarmaðurinn Winston Bogarde segir í nýútkominni ævisögu að hann skammist sín ekkert fyrir að hafa þegið peninga frá Chelsea þótt hann hafi ekki fengið að spila. Hann segir aldrei hafa komið til greina að yfirgefa félagið og semja um lægri laun til þess að fá að spila. BOGARDE Í LEIK MEÐ BARCELONA Hápunktur ferilsins hjá Bogarde var tími hans hjá Barcelona en þar lék hann stórt hlutverk í sigursælu liði. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES WINSTON BOGARDE Bogarde átti ekki sjö dagana sæla hjá Chelsea en hann sætti sig þó við stöðuna þar vegna góðra launa. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES HVAÐ? HVENÆR? HVAR? JANÚAR 5 6 7 8 9 10 11 Sunnudagur ■ ■ LEIKIR  14.00 Hamar/Selfoss og Höttur mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta í Hveragerði.  14.00 Valur og Skallagrímur mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta í Kennaraháskólanum.  15.00 Snæfell og Valur B mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta á Stykkishólmi.  17.00 Haukar og RK Vegeta mæt- ast í Evrópukeppni kvenna í hand- bolta á Ásvöllum.  17.30 Breiðablik og KR mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta í Smáranum.  19.15 Tindastóll og Keflavík mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta á Sauðárkróki.  19.15 Þór Þorl. og Njarðvík mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta á Þorlákshöfn.  19.15 Haukar og Þór. Ak. mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta á Ásvöllum.  18.00 Skallagrímur og ÍR mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta kvenna í Borgarnesi.  14.00 Keflavík B og UMFH mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta kvenna í Keflavík.  20.00 Laugdælir og Breiðablik mætast í bikarkeppni Lýsingar og KKÍ í körfubolta kvenna á Laugarvatni. ■ ■ SJÓNVARP  13.50 Ítalski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Siena og Inter.  15.50 Enska bikarkeppnin á Sýn. Bein útsending frá leik Burton og Man. Utd.  17.50 Gillette-sportpakkinn á Sýn.  18.20 Enska bikarkeppnin á Sýn. Bein útsending frá leik Leicester og Tottenham.  20.20 Spænski boltinn á Sýn. Bein útsending frá leik Villarreal og Real Madrid.  22.00 NFL-deildin á Sýn. Bein útsending frá leik Cincinnati og Pittsburgh. FÓTBOLTI Michael Owen, framherji Newcastle, vonast til þess að ná skjótum bata eftir að hafa farið í aðgerð vegna beinbrots sem hann hlaut í leik gegn Tottenham á gamlársdag. „Það er ekki langt síðan enginn hafði heyrt um þessi meiðsli en núna er hægt að smala í heilt byrj- unarlið enska landsliðsins yfir þá sem brotið hafa þetta bein,“ sagði Owen um beinbrotið en meðal þeirra sem lent hafa í samskonar meiðslum eru David Beckham, Steven Gerrard og Gary Neville. „Gerrard spilaði aftur sjö til átta vikum eftir að hann lenti í þessu en aðrir voru aðeins lengur að ná sér. En ég er mjög jákvæður og krosslegg fingurna um góðan bata. Ég fór í aðgerð í síðustu viku sem heppnaðist mjög vel og vonast til að geta hreyft mig sem allra fyrst.“ - hþh Owen lætur ekki deigan síga: Ætlar að snúa fljótt aftur MICHAEL OWEN Ætlar sér að spila á HM. FRÉTTABLAÐIÐ/GETTY IMAGES FÓTBOLTI Thierry Henry, franski sóknarmaðurinn hjá Arsenal, kveðst ætla að vera áfram hjá Ars- enal og að hann hafi aldrei heyrt í neinum frá Barcelona, en Henry hefur verið sterklega orðaður við spænska stórliðið á síðustu vikum og mánuðum. Henry hefur loksins tjáð sig um þessar sögusagnir og það er skemmst frá því að segja að markaskorarinn segir ekkert til í þeim. „Sannleikurinn er sá að ég elska Arsenal og hef tekið þá ákvörðun að vera áfram hjá félaginu,“ segir Henry. Hann hefur lengi verið í viðræðum við forráðamenn félagsins um áframhaldandi samning, en núverandi samningur hans á að renna út eftir næsta tímabil. „Ég segi það við alla stuðningsmenn félagsins og annað fólk sem styður mig að mig langar að leiða liðið á okkar nýja heimavöll,“ segir Henry en tímabilið í ár er það síðasta sem Arsenal leikur á Highbury. „Nú þegar ég hef ákveðið mig er aðeins tímaspursmál hvenær við göngum frá lausum endum. Ég mun tala við Arsene Wenger og fjármálastjórann David Dein um framtíðina. Ég hef aldrei talað við neinn frá öðru félagi en Arsenal. Ég vona að nú að þessi umræða um framtíð mína sé á enda,“ sagði Henry að lokum, greinilega búinn að fá sig fullsaddan á hinum endalausu sögusögnum. - vig Thierry Henry tjáir sig loksins um orðróminn um að hann sé á leið til Barcelona: Ég verð áfram hjá Arsenal THIERRY HENRY Hefur ákveðið að vera áfram hjá Arsenal.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.