Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 6
6 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR Þrettán dóu í fangauppreisn Þrettán fangar létust í óeirðum í öryggisfangelsi í Hondúras á fimmtudagskvöld. Upp úr sauð eftir að til átaka kom á milli tveggja hópa fanga og skiptust þeir á skotum með fyrrgreindum afleiðingum. Ekki er ljóst hvernig fangarnir komust yfir byssur. HONDÚRAS UMBOÐSMAÐUR ALÞINGIS Lögreglu- manni sem kvartaði yfir ákvörðun dóms- og kirkjumálaráðherra um skipun yfirlögregluþjóns við emb- ætti sýslumannsins á Seyðisfirði var ekki mismunað, samkvæmt áliti umboðsmanns Alþingis. Í kvörtun lögreglumannsins var því haldið fram að ákvörðun ráðherra hefði farið gegn jafnræðisreglu stjórnarskrár og rannsóknarreglu stjórnsýslulaga auk þess sem því var haldið fram að rökstuðningur ráðherra hefði ekki verið í samræmi við efni stjórnsýslulaga. Í áliti sínu tók umboðsmaður ekki undir þessi sjónarmið og álítur að ekki sé tilefni til athugasemda. - jss Umboðsmaður Alþingis: Ákvörðun ráð- herra stendur BIROBIDZHAN, AP Í sjálfstjórnar- héraði gyðinga, langt austur í Síberíu, hefur bjartsýni leyst bölmóð af hólmi því í fyrsta sinn í háa herrans tíð fer gyðingum þar fjölgandi og fyrir vikið er þar mikil menningarleg vakning. Ísraelsríki er ekki eina landsvæðið í heiminum sem sérstaklega er helgað gyðingum því eitt sjálfstjórnarhérað Rússlands var beinlínis sett á fót sem heimaland rússneskra gyðinga. Það heitir Jevrejskaja avtonamaja oblast, sem þýðir einfaldlega sjálfstjórnarhérað gyðinga, og er að finna við kínversku landamærin austast í Síberíu. Amur- fljót rennur á landamærum þess og Khabarovsk-héraðs en í því kom upp skæð bensenmengun á dögunum. Enda þótt Jósef Stalín hafi ekki látið stofna héraðið fyrr en 1934 tóku gyðingar að flytjast þangað strax á þriðja áratugnum, af fúsum og frjálsum vilja, ólíkt mörgum öðrum þegnum Sovétríkjanna sem voru fluttir nauðugir til Síberíu. Blómatími héraðsins var svo á fjórða áratugnum þegar gyðingar alls staðar að úr heiminum flykktust þangað, dagblöð voru gefin út á jiddísku og mikil gróska ríkti í menningarlífinu. Nokkrum árum síðar tók hins vegar að halla undan fæti, stalínísku hreinsanirnar á síðari hluta fjórða áratugarins og síðari heimsstyrjöldin drógu mesta máttinn úr íbúunum og við hrun Sovétríkjanna árið 1991 færðu margir sig um set til Þýskalands eða Ísraels. Þótt gyðingar séu í dag aðeins 4.800 af 190.000 íbúum héraðsins ríkir bjartsýni í þeirra herbúðum því teikn eru á lofti um að samfélag þeirra sé að sækja í sig veðrið. Á árinu 2004 fluttu 200 gyðingar þangað frá Ísrael og Þýskalandi en aðeins 80 íbúar héraðsins héldu til landsins helga. Ástæðurnar sem fólkið gefur eru til dæmis ótti við hryðjuverk og framandi menning. Einn þeirra sem sneru aftur til Rússlands er hinn 69 ára gamli Israil Prosmushkin en hann fylgdi í fótspor sonar síns sem ekki gat fundið vinnu í Ísrael. „Þar er erfitt að vera fyrir unga fólkið. Það þarf að vakna í rauðabítið og vinna langt fram á kvöld.“ Í höfuðstaðnum Birobidzhan ríkir mikil menningarleg vakning þessa dagana. Jiddíska leikhúsið hefur verið endurreist, nýjar sýnagógur byggðar og farið er að kenna hebresku og jiddísku á ný í nokkrum barnaskólum. Kynþáttahatur er landlægt víða í Rússlandi og því segjast íbúar Birobidzhan glaðir yfir að búa í andrúmslofti umburðarlyndis. „Allt er opið, allir eru saman og allir hjálpa hver öðrum,“ segir einn þeirra. sveinng@frettabladid.is Bjartsýni vex á meðal gyðinga í austurvegi Eftir mögur ár hillir undir bjartari tíð í sjálfstjórnarhéraði gyðinga í Síberíu. Gyðingar hafa flust þangað unnvörpum undanfarin ár, jafnvel frá landinu helga, og áhugi hefur kviknað á siðum og hefðum sem áður voru gleymd. KENNSLUSTUND Í BIROBIDZHAN Mordechai Shainer rabbíni kennir börnum jiddísku í einni af spánýjum sýnagógum borgarinnar. Meni sonur hans er á meðal þeirra sem njóta handleiðslu hans. FRÉTTABLAÐIÐ/AP Mannfall í óveðri Í það minnsta þrettán manns hafa týnt lífi í Sofala- héraði í Mósambík í miklu fárvirði sem þar hefur geisað undanfarna daga. Átta hinna látnu fórust í eldingum en hinir drukknuðu í flóðum. Tjón af völdum óveðursins er umtalsvert, einkum á ökrum sem farið hafa á kaf. MÓSAMBÍK DÓMSMÁL Kona sem á og rekur kínverska nuddstofu í Kópavogi hefur verið dæmd til að greiða fyrrverandi starfsmanni sínum tæpar 4,7 milljónir króna í bætur vegna vangoldinna launa. Maðurinn fékk hjá konunni frítt fæði og húsnæði og starfaði hjá henni í um tvö ár. Konan var kærð til lögreglu 9. mars í fyrra fyrir að hafa falsað nafn starfsmannsins á tvo ráðningarsamninga. Hún var svo í nóvember dæmd fyrir skjalafals í Héraðsdómi Reykjaness, en þar vann maðurinn á fimmtudag einkamál á hendur henni. Í samningi sem konan gerði við manninn í ferð til Kína haustið 2001 kemur fram að hann þyrfti ekki að vinna lengur en 12 tíma á dag og ætti að fá um 10.000 krónur í mánaðarlaun. Í dómnum kemur einnig fram að maðurinn hafi aldrei fengið orlof og hans einu frídagar hafi verið lögbundir frídagar. Hann fékk engin laun greidd en konan sendi foreldrum hans í Kína um 147.499 krónur. Maðurinn, sem enga íslensku skildi og átti erfitt með ensku, komst á snoðir um að réttur væri á honum brotinn þegar hann kynntist í Alþjóðahúsi kínverskumælandi Íslendingum. Hann hætti því á nuddstofuni í desember 2003. - óká Kona sem á og rekur kínverska nuddstofu dæmd til að greiða bætur: Borgi tæpar fimm milljónir NUDDSTOFAN Í KÓPAVOGI Eigandi nudd- stofunnar þarf að borga kínverskum manni bætur fyrir að hafa þrælað honum út í tvö ár á lúsarlaunum. FINNLAND Forsetakosningar fara fram í Finnlandi í janúar. Átta eru í framboði, þar á meðal núverandi forseti, Tarja Halonen, forsætisráðherrann Matti Vanhanen og fyrrverandi fjármálaráðherra, Sauli Niinistö. Skoðanakannanir benda til að baráttan verði einkum milli þeirra þriggja. Finnskar forsetakosningar eru tvískiptar. Fyrri hluti kosninganna fer fram 15. janúar. Ef frambjóðandi fær meira en helming atkvæða ber hann sigur úr býtum. Ef enginn nær svo mörgum atkvæðum verður kosið aftur á milli tveggja efstu frambjóðendanna. Í sendiráði Finnlands fengust þær upplýsingar að skoðanakannanir í byrjun desember hefðu sýnt að Tarja Halonen fengi um 40 prósent atkvæða, Niinistö fengi um 20 prósent og Vanhanen kæmi þétt á eftir með um 19 prósent. Hinir frambjóðendurnir mælist með 2-5 prósent atkvæða. Ef svo fer sem horfir verður kosið aftur milli tveggja efstu frambjóðendanna 29. janúar. U t a n k j ö r f u n d a r a t k v æ ð a - greiðsla er þegar hafin í sendiráði Finnlands í Reykjavík. - ghs Forsetakosningar fara fram í Finnlandi nú í janúar: Þrír frambjóðendur berjast TARJA HALONEN Á ÍSLANDI Forseti Finnlands, Tarja Halonen, milli Vigdísar Finnbogadóttur, fyrrverandi forseta Íslands, og Ólafs Ragnars Grímssonar, forseta Íslands, hér á landi fyrir nokkru. FRÉTTABLAÐIÐ/PJETUR KJÖRKASSINN Á að ráðast í gerð Norðlinga- ölduveitu? Já 50% Nei 50% SPURNING DAGSINS Í DAG: Á að breyta Íbúðalánasjóði í heildsölubanka? Segðu skoðun þína á vísir.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.