Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 66

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 66
 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR26 menning@frettabladid.is ! Stóra svið SALKA VALKA Í kvöld kl. 20 Su 22/1 kl. 20 Fi 26/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! WOYZECK Su 15/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 29/1 kl. 20 KALLI Á ÞAKINU Í dag kl. 14 UPPSELT Su 15/1 kl. 14 Lau 21/1 kl. 14 Su 22/1 kl. 14 SÍÐUSTU SÝNINGAR! CARMEN Fi 12/1 kl. 20 FORS. miðav. 2.000- kr Fö 13/1 kl. 20 FORS.ÝNING UPPSELT Lau 14/1 kl. 20 FRUMSÝNING UPPSELT Fi 19/1 kl. 20 Gul kort Fö 20/1 kl. 20 Rauð kort Fö 27/1 kl. 20 Græn Kort Lau 28/1 kl. 20 Blá kort Nýja svið/Litla svið MANNTAFL Í kvöld kl. 20 Lau 14/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 SÍÐUSTU SÝNINGAR! ALVEG BRILLJANT SKILNAÐUR SÝNINGAR HEFJAST AÐ NÝJU Í FEBRÚAR! BELGÍSKA KONGÓ Su 15/1 kl. 20 Fö 20/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 Lau 4/2 kl. 20 GLÆPUR GEGN DISKÓINU Þr 10/1 kl. 20 FORSÝNING MIÐAV. 500- kr. Mi 11/1 kl. 20 GENERALPRUFA MIÐAV. 500- kr. Fi 12/1 kl. 20 FRUMS. UPPS. Fö 13/1 kl. 20 Lau 21/1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 Naglinn e. Jón Gnarr í samstarfi við 540 Gólf leikhús Fö 20/1 kl. 20 FRUMS. UPPS.Lau 21 /1 kl. 20 Su 22/1 kl. 20 UPPSELT Fö 27/1 kl. 20 Lau 28/1 kl. 20 ������������������������������������������ ������������������������������� ��������������������������������������������������������������������������������������������� ��������� ��������������������������������������������������������������� ����������������������������� ������������������������������������������������� ��� ��������� ������������������� ������������������������������������ ��������������� ������������ ����������������������������������������� � ������������ �������������� �� ����������� ��������������������������������� �������������������������������������������������� � �� �������������������������������������� ���������� �������������������������� Landsbankinn er stoltur bakhjarl sýningarinnar. SÝNT Í IÐNÓ KL. 20 MIÐASALA: WWW.MIDI.IS OG Í IÐNÓ S. 562 9700 laus sæti laus sæti örfá sæti laus örfá sæti laus laus sæti laus sæti laus sæti föstudagur laugardagur föstudagur laugardagur sunnudagur laugardagur sunnudagur 13.01 14.01 20.01 21.01 22.01 28.01 29.01 Kl. 20.00 Ágúst Ólafsson baritón kemur fram ásamt Kammersveitinni Ísafold á „öðruvísi“ Vínartónleikum í Íslensku óperunni þar sem flutt verða verk eftir Johann Strauss, Claude Debussy og Gustav Mahler í ústetningum Arnolds Schönberg og Antons Webern. Stjórnandi er Daníel Björnsson. Hljóðfærin harpa, víóla og flauta hljóma vel saman, ekki síst í Mosfellskirkju þar sem notaleg stemning myndast jafnan á tónleikum. „Þetta er svo falleg kirkja og alveg sérstök stemning sem myndast þar,“ segir hörpuleikarinn Gunn- hildur Einarsdóttir, sem ætlar ásamt félögum sínum í Trio artis að halda tónleika í Mosfellskirkju í dag klukkan 17. Með henni leika þau Kristj- ana Helgadóttir flautuleikari og Þórarinn Már Baldursson víólu- leikari. Á efnisskránni eru verk eftir Debussy, Bach, Telemann og Satie. „Reyndar höfum við meira á stefnuskrá hjá okkur að spila nýja tónlist, en þessir árlegu tón- leikar okkar í Mosfellskirkju eru alltaf á öðrum og léttari nótum. Þetta er hugsað sem hugljúf stund fyrir fólk að koma í kirkj- una á sunnudagseftirmiðdegi og hlusta á fallega tónlist.“ Trio artis hefur starfað saman frá árinu 2002, en í ár urðu þær mannabreytingar að Jónína Auður Hilmarsdóttir víóluleikari sagði skilið við tríóið, en í staðinn er Þórarinn Már kominn og sér um víóluleikinn. „Þetta eru frekar ólík hljóð- færi, harpan, víólan og flautan, en þau passa einhvern veginn ofsalega vel saman,“ segir Gunn- hildur. Undanfarin ár hafa tónleik- ar í Mosfellskirkju í ársbyrjun verið fastur liður hjá Trio artis, og margir tónleikagestanna hafa komið ár eftir ár. „Við spilum alltaf Debussy- sónötuna fyrir flautu, hörpu og víólu, en það er af því að þetta er fyrsta stykkið sem var samið fyrir þessa samsetningu hljóðfæra. Okkur finnst það líka alveg þess virði, því þetta stykki hljómar svo fallega en er um leið mjög djúpt stykki og óhefðbundið. Fólki veitir satt að segja ekkert af því að heyra það einu sinni á ári, því það hljómar ekki bara mjög vel við fyrstu áheyrn heldur verður það alltaf betra og betra, það dýpkar og dýpkar og er í miklu uppáhaldi hjá okkur.“ ■ ÞÓRARINN MÁR, KRISTJANA OG GUNNHILDUR Þau ætla að bjóða upp á ljúfa hörputóna með víólu og flautu á árlegum tónleikum Tríó artis í Mosfellskirkju. Fagrir tónar í fögru húsi Breski kammerkórinn The Tall- is Scholars, sem er talinn einn af fremstu kórum heims, kom fram á tónleikum í Langholtskirkju í gær þar sem hann flutti verk eftir bresk tónskáld, meðal annars William Byrd og Thomas Tallis. Í kvöld heldur kórinn aðra tónleika í Langholtskirkju og flytur þá meðal annars Missa L‘homme armé eftir Josquin des Prez og hið margfræga Misrere eftir Gregorio Allegri, en það er verk sem Páfagarður leyfði ekki að væri dreift út fyrir raðir eigin söngvara fyrr en hinn ungi Mozart skrifaði það upp eftir heyrn. Þess má geta að hljóðritun kórsins á messum Josquins des Prez var valin einn af 100 bestu sígildu geisladiskum allra tíma í desemberhefti breska tónlistar- tímaritsins Gramophone. Á tónleikunum í kvöld, sem hefjast klukkan 20, kemur einnig fram íslenski kammerkórinn Carmina, sem sérhæfir sig í flutningi endurreisnartónlistar og hefur fengið frábæra dóma fyrir söng sinn. Kórarnir flytja í sameiningu verk eftir Palestrina, Clemens og Crecquillon. The Tallis Scholars hefur í yfir þrjá áratugi sérhæft sig í tónlist endurreisnartímans og nýtur einstakra vinsælda um allan heim fyrir einstaklega vel samhæfðan og blæbrigðaríkan söng. Syngja aftur í kvöld THE TALLIS SCHOLARS Þessi óviðjafnanlegi breski endurreisnarkór heldur seinni tónleika sína hér á landi í kvöld. Ungur stjórnandi er að taka við söngsveitinni Fílharmoníu í næstu viku. Magnús Ragnarsson heitir sá og hefur hann undanfarin ár dvalið í Svíþjóð við nám og störf. Hann lauk á síðasta ári organista- og stjórnandanámi frá Tónskólanum í Gautaborg og Háskólanum í Upp- sölum. Áður hafði hann lært bæði á píanó og stundað söngnám og hefur haldið bæði píanótónleika og söng- tónleika, auk þess að koma fram á tónleikum sem organisti og stjórnað bæði kór- og hljómsveitarverkum. Síðastliðið ár hefur hann verið fast- ráðinn sem organisti í kirkju suður af Stokkhólmi. Næsta verkefni kórsins verða tvennir tónleikar um páskana þar sem flutt verða tvö verk, Stabat mater eftir Joseph Hayden og Vesperae solennes de con- fessores eftir Wolfgang Amadeus Mozart. Hvorugt þessara verka hefur áður verið flutt í heild sinni hér á landi, en þekktan kafla úr verki Mozarts, Laudate Dominum, flutti Söngsveitin á síðustu aðventutónleikum sínum. Söngsveitin hefur æfingar undir stjórn Magnúsar að loknu jólaleyfi strax á morgun og verða reglulegar æfingar á mánudags- og miðvikudagskvöldum í vetur. Fyrir þá sem áhuga hafa á að syngja með kórnum verða raddpróf haldin á fyrstu æfingum misserisins. Vönu og áhugasömu söngfólki bent á að hringja í formann, Einar Karl Friðriksson, í síma 892 2613. Tekur við Fílharmoníu > Ekki missa af ... ... sýningu þeirra Kees Visser, Þórs Vigfússonar og Ívars Valgarðssonar, sem opnuð var í Nýlistasafninu í gær. ... sýningum myndhöggvarans Péturs Bjarnasonar og færeyska listmálarans Kára Svensson, sem báðar voru opnaðar í Hafnarborg í Hafnarfirði í gær. ... sýningu systranna Ingileifar og Áslaugar Thorlacius sem opnuð var í Gallerí +, Brekkugötu 35 á Akureyri.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.