Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 78

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 78
 8. janúar 2006 SUNNUDAGUR38 Hvað er að frétta? Bara allt fínt. Maður er þokkalega ferskur í byrjun árs. Augnlitur: Blágrænn, sýnist mér Starf: Ég er svokallaður alltmúligmaður. Fjölskylduhagir: Giftur og einn sonur. Hvaðan ertu? Fæðingarheimili Kópavogs. Ertu hjátrúarfullur? Já. Geng ekki undir stiga og lem oft í við og segi 7, 9, 13. Svo set ég handklæðið mitt alltaf á sama stað í almenningssturtum! Uppáhaldssjónvarpsþáttur: Extras af því sem er í gangi núna. Uppáhaldsútvarpsþáttur: Það er náttúrlega Tónlistarþáttur Dr. Gunna alla sunnudaga á milli 14 og 16 á XFM. Uppáhaldsmatur: Sushi. Fallegasti staður: Ísland séð ofan af hvaða fjalltoppi sem er. iPod eða geislaspilari: Hvorugt. Ég á lítinn USB-lykil sem er búinn að fara tvisvar í þvottavél en er enn í fullu fjöri. Mér þætti gaman að sjá iPod þola það. Hvað er skemmtilegast? Að vera glaður í góðra vina hópi. Hvað er leiðinlegast? Að flytja. Helsti veikleiki: Óþolinmæði. Helsti kostur: Skipulagning og drifkraftur (segir konan). Helsta afrek: Þau eru flest óunnin, en einu sinni hjólaði ég í bæinn frá Akranesi og í fyrra gekk ég átta sinnum upp á Esjuna. Mestu vonbrigði: Ég tók það smá inn á mig að Bush skyldi vera endurkjörinn, en annars hef ég átt gífurlega vonbrigðalausa ævi. Hver er draumurinn? Eilíft líf á ósnortinni Suðurhafseyju – en ekki hvað?! Hver er fyndnastur/fyndnust? Conan O‘Brien er góður og Hómer klikkar sjaldan. Á hvað trúirðu? Ekki neitt, en náttúruöflin eru nokkuð raunveruleg þó ég „trúi“ ekki á þau. Hvað fer mest í taugarnar á þér? Almennur hálfvitaskapur, gróðahyggja og vinsældir ömurlegheita. Uppáhaldskvikmynd: Mitt staðalsvar við þessari spurningu er North by Northwest eftir Hitchcock. Uppáhaldsbók: Ástir samlyndra hjóna eftir Guðberg. Hvað er mikilvægast? Að vera góður og breyta rétt. Eða reyna það að minnsta kosti. HIN HLIÐIN GUNNAR LÁRUS HJÁLMARSSON TÓNLISTARMAÐUR Finnst leiðinlegast að flytja HRÓSIÐ ...fær Katrín Anna Björnsdóttir, einn af prímusmótorum Femínistafélagsins, sem kallar ekki allt ömmu sína. Þegar jólabókaflóðinu er lokið ákveður Egill Einarsson, betur þekktur sem Gilzenegger, að gefa út sína nýjustu afurð en það er bókin „Biblía fallega fólksins“ sem hefur að geyma mörg af helstu leyndarmálum kyntáknsins. Höfundurinn segir að þetta sé fallegasta bók sem hann hafi séð um ævina. Hana prýði enda mynd af honum sjálfum berum að ofan á kápunni. „Hún kemur út í lok janúar,“ útskýrir hann, kokhraustur að venju. „Umbrotið er mestallt komið og núna er verið að setja myndirnar inn,“ bætir hann við. „Allir sem fengu því leiðinlegar bækur um jólin geta skilað sinni og fengið sér mína,“ skýtur kappinn inn. Egill segir íþróttakaflann vera fyrirferðarmestan en í honum gefi hann ráð um hvernig fólk geti tekið almennilega á því. „Þarna má til dæmis finna þrjár til fjórar æfingar fyrir hvern vöðva,“ segir hann. Þá fer vaxtarræktarmógullinn einnig yfir skemmtanalífið og hvernig eigi að bera sig að á „kæjanum“ eins og það er nefnt í bókinni. „Ég kafa líka djúpt ofan í stéttaskiptinguna og greini muninn á treflum og hnökkum. Þá verður sérstakur kafli helgaður Liverpool-mönnum en það er alveg sér-þjóðflokkur í landinu,“ útskýrir hann. Kvennaljóminn mun að sjálfsögðu einnig kenna íslenskum kynbræðrum sínum sitthvað um konur og hvernig á að umgangast þær. Egill byrjar með nýja sjónvarps- þáttinn sinn, sem hefur hlotið nafnið Kallarnir, um mánaðarmótin á Sirkus. Þá byrjar skólinn í næstu viku en hann er að nema íþróttafræði við Íþróttaakademíu Suðurnesja. „Það var nóg að gera fyrir áramót en ég náði öllu og fékk fínar einkunni. Það er vel hægt að gera þetta ef maður skipuleggur tíma sinn vel.“ - fgg Biblía fallega fólksins EGILL GILZENEGGER EINARSSON Í viðtali við bandaríska leikarann Forest Whitaker sem birtist í Fréttablaðinu í gær fór leikarinn fögrum orðum um samstarf sitt og Baltasar Kormák. Whitaker leikur aðalhlutverkið í kvikmyndinni A Little Trip to Heaven, sem Baltasar leikstýrir og nú er sýnd í kvikmyndahúsum borgarinnar. Hann útilokaði enn fremur ekki að þeir kynnu að taka upp frekara samstarf. Baltasar staðfesti þetta þegar Fréttablaðið náði tali af honum í hléi þar sem hann var að æfa í Þjóðleikhúsinu. „Við höfum verið að ræða þessa hluti lengi enda náum við vel saman í vinnu og utan hennar,“ sagði Baltasar og bætti við að Whitaker hefði þegar samþykkt að leika svokallað „cameo“- hlutverk í kvikmynd sem hefur fengið vinnuheitið Open Mic. „Hún verður gerð eftir handriti sem ég og Hallgrímur Helgason höfum verið að vinna að,“ sagði leikstjórinn en samstarf þeirra hefur áður verið gjöfult en kvikmyndin 101 Reykjavík var fyrsta kvikmynd Baltasars sem leikstjóri og var gerð eftir samnefndri skáldsögu Hallgríms. „Hugmyndin hefur fengið góðar viðtökur í Bandaríkjunum og ég er í viðræðum við stórleikara um að hann taki að sér aðalhlutverkið,“ útskýrir leikstjórinn en vildi ekkert gefa upp enda fátt öruggt í kvikmyndaborginni fyrr en það hefur verið skrifað undir alla pappíra. Baltasar sagðist finna fyrir því að hann hefði eignast góðan bandamann í Forest Whitaker enda hefur leikarinn verið lengi að og hefur góð ítök í kvikmyndaheiminum. „Ég fann það strax að hann var algjörlega heill í því sem hann sagði og vildi gera,“ segir Baltasar og greinilegt að aðdáunin er í báðar áttir. Whitaker dró heldur ekkert dul á að leikstjórinn væri ákveðinn og ýtti leikurunum fram til hins ýtrasta. „Það er alveg sama með hverjum ég er að vinna, leikararnir verða ekki teknir neinum silkihönskum, sama hvað þeir heita,“ sagði Baltasar og hló. „Við tókumst vissulega á en hann lét yfirleitt undan,“ bætti hann við í gríni og sagði að samband leikstjóra og leikara yrði að vera þannig að þeir væru opnir fyrir hugmyndum hvors annars. freyrgigja@frettabladid.is FOREST WHITAKER: FÓR FÖGRUM ORÐUM UM BALTASAR KORMÁK Leikur „cameo“-hlutverk í næstu kvikmynd leikstjórans BALTASAR KORMÁKUR Segir það ekki skipta neinu máli hvað leikararnir heiti, þeir verði ekki teknir neinum silkihönskum. 071065 FRÉTTIR AF FÓLKI Björn Bjarnason gerir hádegisviðtal sem hann fór í á NFS í vikunni að umtalsefni á heimasíðu sinni. Var þetta í fyrsta skipti sem Björn gekk inn í hljóðver fréttastofunnar við Skaftahlíð en það var sjálfur Sigmundur Ernir Rúnarsson sem var spyrill. Birni virðist hafa verið hálf brugðið vegna þess að það voru engir tökumenn heldur hafi þetta verið eins og „Í hjóðveri þar sem tæknimenn sitja utan dyra og fylgjast með og stjórna upptöku...“ Björn greinir enn fremur frá því að Sigmundur hafi stoltur sagt frá því að upptökuverið væri stærra en hjá BBC World Service TV. Það svífur sannkölluð Idol-stemning yfir vötnum þegar Björn Ingi Hrafnsson opnar kosningamiðstöð sína á Suðurlandsbraut 24. Sig- mar Vilhjálmsson ætlar að kynna dagskrána en Davíð Smári og Heiða, sem kepptu bæði í Idol stjörnuleit, skemmta gestum og gangandi ásamt Bjarna Ara. Björn Ingi hefur verið mjög áberandi í fjölmiðlum að undanförnu og ætlar greinilega tjalda öllu til svo að hann landi fyrsta sætinu á lista Fram- sóknarflokksins í Reykjavík fyrir komandi borgarstjórnarkosningar. Það vekur þó athygli að hvorugur Idol-keppendanna hafnaði í fyrsta sæti en frambjóðandinn hefur vaðið fyrir neðan sig hvað sigur- vegara varðar því Bjarni Ara hafði sigur í Látúnsbarkanum á sínum tíma. Það gerist ekki oft að ljóðabækur skjótist upp sölulista bókaverslanna og skáldið Kristian Guttesen fagnar því nú að ljóðabók hans Litbrigðamygla sé komin í annað sæti sölulista yfir kiljur hjá Pennanum Eymundsson. Listinn er að vísu svolítið sérstakur, sem helgast af því að krampakippir jólabókaflóðsins hríslast um hann með tilheyrandi bókaskilum. Kristian segist á bloggsíðu sinni vera hæstánægður með að koma í kjölfar Hugleiks Dagssonar sem trónir á toppnum með myndasögubókina Bjargið okkur enda sé Hugleikur „afburða hæfileikaríkur listamaður“. FRÉTTIR AF FÓLKI Jóhanna Thorsteinson, leikskólastjóri í Kópavogi, er ein þeirra sem gefa kost á sér í annað sæti í prófkjöri Sjálfstæð- isflokksins í Kópavogi vegna bæjarstjórnar- kosninganna í vor. Þar etur hún meðal annars kappi við Ármann Kr. Ólafsson, aðstoðarmann fjármálaráðherra, og gamla bæjar- málarefinn og varabæjarfulltrú- ann Braga Michaelsson. Jóhanna hefur stýrt leikskólum í Kópavogi og víðar um áratugaskeið og þykir líklegt að sú reynsla muni nýtast henni í prófkjörinu þar sem leikskólamál í bænum eru í kaldakoli vegna óánægju starfsfólks með launakjör og foreldra með skort á þjónustu. Það er því ekki útilokað að reitt barnafólk í bænum setji traust sitt á leikskólakennarann. Þar fyrir utan hefur Jóhanna það á stefnuskrá sinni að gera fólki kleift að vera heima með börnum sínum til tveggja ára aldurs. Hryllingsmyndin Hostel var frumsýnd á föstudaginn en eins og kunnugt er eru leikstjóri hennar, Eli Roth, og framleiðandinn Quentin Tarantino, komnir í hóp mestu Íslandsvina. Það var líka fyrir þeirra tilstilli að Hostel var heimsfrumsýnd í Reykjavík í nóvember. Eli kom hingað með glóðvolgt eintak en það kostaði Sony umtalsverðar fjárhæðir að flýta lokafráganginum fyrir Íslandsheimsóknina. Kvikmyndarisinn hafði takmarkaðan áhuga á því að leggja út í aukakostnað vegna forsýningar á jafn litlu markaðssvæði en þá létu Roth og Tarantino í sér heyra og linntu ekki látum fyrr en málið var í höfn. Þetta þykir segja meira en mörg orð um slagkraft og völd Tarantinos í Hollywood. ÞÞ 550 5000 AUGLÝSINGASÍMI
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.