Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 61

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 61
SUNNUDAGUR 8. janúar 2006 21 Benedikt Hermann Hermannsson hefur að undanförnu gert það gott í tónlistarheiminum og gaf á síðasta ári út plötu undir nafninu Benni Hemm Hemm. Við báðum hann um að telja upp fimm plötur sem hann væri að hlusta á þessa dagana. Animal Collective - Feels (Fat Cat Records - 2005) Lögin á þessari plötu, eins og á öðrum plötum Animal Collective, eru sambland af ofsafengnum spuna og hreinum popplögum. Rass - Andstaða (Smekkleysa - 2004) Textarnir eru stuttir og pólitískir og tónlistin er hörð og beinskeytt. Purrkur Pillnikk - Í augum úti (Smekkleysa - 2001) Textarnir eru frábærir, sándið er geðveikt og krafturinn ótrúlegur. Mörg laganna á þessari plötu eru ódauðleg snilld, það liggur í augum úti. Anthony Burr og Skúli Sverrisson - a thousand incidents arise (Workers institute - 2005) Falleg og dáleiðandi plata. Hún er einhvern veginn kyrrstæð og á hreyfingu á sama tíma. Það er ekki beinlínis auðvelt að koma auga á þróunina sem á sér stað en samt finnur maður mjög greinilega fyrir henni. Björk - Drawing Restraint 9 (One Little Indian - 2005) Mér finnst þessi plata alveg mögnuð. Hún fer út um allt. Raddpælingar í ætt við Medúllu, Stravinskí-legar blásaraútsetningar, rímur, og svo skemma harpan, rafhljóðin og Will Oldham ekki fyrir. ,,Þetta er svolítið snúið,“ segir Einar Már Guðmundsson rithöfundur þegar hann er spurður hverjir hafi haft mest áhrif á hann í gegnum tíðina. ,,Það er auðvitað hægt að nefna eitthvað sem maður hefur lesið, hlustað á eða séð. Eftir því sem árin líða er þetta nú komið í einhvers konar allsherj- arkokkteil áhrifavalda.“ Aðspurður hvort hann geti nefnt einhverjar ein- stakar persónur sem hafi haft áhrif á hann segir hann að af nógu sé að taka. ,,Auðvitað fer þetta svolítið eftir stað og stund og aldri manns sjálfs. Þegar maður er ungur vill maður oft verða fyrir áhrifum úr ýmsum áttum.“ Einar segist þó vera nokkuð jákvæður gagnvart breytingum. „Ég á voðalega erfitt með að nefna einhvern einn sem hefur mótað mig öðrum fremur þar sem ég er nokkuð mót- tækilegur fyrir ýmsum hug- myndum. Það er líka alveg nauð- synlegt að geta tekið breyting- um. Menn tala oft um að vera s a m k v æ m i r sjálfum sér og það vill oft þýða að menn hafi sömu skoðanir allt sitt líf. Ég verð þó að nefna Guðberg Bergs- son. Hann var einn af þeim sem opn- uðu skáldlega sýn á heiminn fyrir mér. Svo eru auðvitað menn eins og Karl Marx sem hafa haft nokkur áhrif á mann í gegnum tíðina.“ ÁHRIFAVALDURINN EINAR MÁR GUÐMUNDSSON Guðbergur opnaði sýn > Benni og plöturnar hans
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.