Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 68

Fréttablaðið - 08.01.2006, Blaðsíða 68
KVIKMYNDIR UMFJÖLLUN Það verður ekki af Eli Roth tekið að hann hefur fullkominn skilning á frumefnatöflu hrollvekjunnar þar sem saman verða að fara ofbeldi, nekt og grín í réttum hlutföllum. Frumraun hans, Cabin Fever, sló verðskuldað í gegn og sýndi svo ekki varð um villst að hér var kominn fram kvikmyndagerðarmaður sem myndi hrista rækilega upp í hryllingsmyndageiranum. Nýj- asta mynd kappans, Hostel, gerir það svo um munar og hér er viðbjóðurinn svo yfirgengilegur að Cabin Fever er eins og hvert annað leikskólaleikrit og bara upphitun fyrir það sem koma skyldi. Í Hostel fylgir Eli þremur gröðum bakpokaferðalöngum eftir á kynlífs- og sukkferðalagi þeirra um Evrópu. Aðalsprautan í hópnum er Íslendingurinn Óli, sem notar alíslenska djammreynslu sína til þess að hjálpa bandarískum ferðafélögum sínum að komast yfir konur og dóp. Félagarnir telja sig heldur betur komna í feitt þegar þeir eru staddir í Amsterdam og frétta af farfuglahemili í Slóvakíu þar sem gyðjur taka á móti ferðalöngum með útglenntar lappir. Strákarnir verða ekki sviknir og velta sér upp úr holdsins lystisemdum þar til Óli hverfur með dularfullum hætti. Myndin skiptir þá um gír og Hostel hættir að vera kynlífs- fantasía unglingspilta og breytist í harðsoðinn „splatter“ hrylling sem gengur líklega fram af öllum sem eru ekki vel skólaðir í hryll- ingsglápi. Stúlkurnar eru nefni- lega beita og lokka ferðamenn í net glæpahyskis sem rænir fólki í þeim tilgangi að leyfa auðmönn- um að pynta það og drepa gegn vænni greiðslu. Þegar ástarbrím- inn rennur af drengjunum ranka þeir við sér í einhvers konar verk- smiðju dauðans þar sem fórnar- lömbin eru bundin á stól í litlum klefum og böðlar þeirra ganga í skrokk á þeim með hnífum, töng- um, byssum, skærum, vélsögum, borvélum og öðrum óhefðbunum morðtólum. Roth gefur ekkert eftir í við- bjóðnum og skilur ekki mikið eftir fyrir ímyndunaraflið. Hann er heldur ekkert að rembast við að bregða áhorfendum með stöðl- uðum hryllingsmyndatrixum en kýlir fólk frekar niður í sætin með hreinræktuðum viðbjóði. Leikararnir eru ekki að vinna nein stórkostleg þrekvirki enda varla verið að ætlast til þess. Derek Richardson ber af aðalleik- urunum og maður þjáist virkilega með honum þegar hann er kominn í stól slátrarans. Eyþór Guðjóns- son stendur sig einnig með prýði. Ofleikur ofsahressa Íslendinginn mátulega og heldur uppi fjörinu fyrri hluta myndarinnar og það er ekki laust við að maður sakni hans eftir að Óli hverfur. Eli reynir markvisst að ganga fram af áhorfendum og það er ekki hægt að segja annað en að honum takist það býsna vel. Hvert viðbjóðsatriðið rekur annað og í hvert skipti sem maður telur að hann sé búinn að toppa og komist ekki lengra dúkkar upp svæsnari viðbjóður. Það segir sig því sjálft að Hostel er alls ekki mynd fyrir alla og viðkvæmir ættu að halda sig víðsfjarri. Þeir sem kunna hins vegar að meta almennilegan viðbjóð fá heilmikið út úr Hostel og sjálfum leið mér ákaflega vel þar sem Eli tókst einu sinni að fá mig til þess að gretta mig af viðbjóði. Hostel er þvottekta hryllingur; gerð fyrir lítinn pening, sneisa- full af berum brjóstum, rössum, blóðsúthellingum og limlest- ingum sem líða manni seint úr minni. Þórarinn Þórarinsson Dásamlegur viðbjóður HOSTEL LEIKSTJÓRI: ELI ROTH AÐALHLUTVERK: JAY HERNANDEZ, DEREK RICHARDSON, EYÞÓR GUÐJÓNSSON Niðurstaða: Hostel er þvottekta hryllingur; gerð fyrir lítinn pening, sneisafull af berum brjóstum, rössum, blóðsúthellingum og limlestingum sem líða manni seint úr minni. Ofurfyrirsætan Kate Moss mun neyðast til þess að snúa aftur til Englands á næstunni þar sem lögregluyfirvöld þar í landi vilja ná tali af henni vegna meintrar fíkniefnaneyslu hennar. Moss hefur að undanförnu verið í sjálfskipaðri útlegð frá heimahögunum og alið manninn í Bandaríkjunum. Eins og frægt er orðið náðust myndir af Moss þegar hún virtist vera að sniffa kókaín á skemmtistað í september síðastliðnum. Þrátt fyrir að hafa eytt mánuði í meðferð vegna fíkniefna í Arizona hefur hún haldið áfram að forðast England og er, að sögn kunnugra, að hugsa um að flytja alfarið til Bandaríkjanna. Í vikunni tilkynnti varalögreglustjórinn í London, Tarique Ghaffur, að Moss þyrfti að koma til landsins hið snarasta þar sem það væri henni og rannsókn málsins fyrir bestu. Ef hún mætti ekki til yfirheyrslu hið fyrsta væri ljóst að handtökuskipun yrði gefin út á hana. Að sögn náinna vina hefur Moss aldrei streist á móti því að tala við lögregluna. ,,Hún er einfaldlega svo upptekin þessa daga og vikur að hún hefur ekki komist í það. Hún mun vafalaust mæta á lögreglustöð á næstu vikum þegar hún hefur tíma.“ Þarf að snúa aftur til Englands KATE MOSS Gæti hugsanlega verið í vondum málum. FRÉTTIR AF FÓLKI Unglingastjarnan Lindsay Lohan hefur komið af stað orðrómi um að hún sé ófrísk. Nýlega sást vinur hennar gefa henni óléttupróf á sjúkrahúsinu þar sem hún dvelur um þessar mundir eftir að hafa fengið asmakast. Lohan er sögð eiga í ástarsambandi við leikarann Jared Leto. Kevin Federline, eiginmaður popp-prinsessunnar Britney Spears, segir það algjört rugl að Britney hafi hent honum út af heimili þeirra fyrir nokkru síðan. Hann segir jafnframt að Britney hafi ekki látið draga bílinn hans í burtu frá heimilinu heldur hafi hann verið fjarlægður vegna viðgerða. Í útvarpsviðtali við Ryan Seacrest Idol-kynni sagði hann jafnframt að þau ætluðu ekki að eignast annað barn alveg strax. Nafn óskarsverðlaunaleikarans Kevin Spacey var fyrir mistök sett á lista yfir þekkt samkynhneigt fólk sem verður notaður í breskum skólum til að eyða fordómum gagnvart samkynhneigðum. Þeir sem voru einnig settir á listann voru rithöfundarnir Oscar Wilde og Tennesse Williams. Lengi hefur verið uppi orðrómur um að Spacey sé samkynhneigður en hann hefur aldrei viljað ræða kynhneigð sína opinberlega. Breska leikkonan Kate Beckin- sale hefur vísað algerlega á bug orðrómi um að hún sé að halda framhjá eiginmanni sínum Len Wiseman. Beckinsale giftist Wiseman fyrir nítján mánuðum eftir að hafa kynnst honum við tökur á myndinni Underworld árið 2003. Scott Stapp, fyrrum söngvari rokksveitarinnar Creed, hefur trúlofast kærustu sinni Jaclyn Nesheiwat, sem var kjörin ungfrú New York árið 2004. Þau ætla að ganga upp að altarinu í Flórída 10. febrúar næstkomandi. Stapp og Nesheiwat hittust í janúar á síðasta ári á samkomu í New York og hafa verið óaðskiljanleg allar götur síðan. Stapp, sem er 32 ára, stofnaði Creed sem vann Grammy-verðlaunin árið 2000 fyrir lagið With Arms Wide Open. Hann gaf út sína fyrstu sólóplötu á síðasta ári og heitir hún The Great Divide. Scott Stapp genginn út HUGSAÐU STÓRT SÍMI 564 0000 Sýnd kl. 2, 4, 6, 8, 10 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 2 og 4 ÍSLENSKT TAL „Persónurnar eru trúverðugar og leikurinn í flestum tilvikum fyrsta flokks“...„Baltasar finnur smjörþefinn af Hollywood“ ���� - Dóri DNA - DV ���� - Toronto Sun Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum ���1/2 - MMJ Kvikmyndir.com ��� - Topp5.is Sýnd kl. 3.20, 5.40, 8 og 10.20 Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10 B.i. 16 ára Lúxus kl. 3.45, 5.50, 8 og 10.10 ....eiturgóð mynd.... Sirkus 30.12.05 ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára SÍMI 551 9000 400 kr. í bíó! Gildir á allar sýningar merktar með rauðu Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30 B.i. 12 ára Sýnd kl. 3 Íslenskur texti Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 B.i. 14 ára 20% afsláttur af miðaverði fyrir viðskiptavini KB banka „...líklega besta kvikmyndatónlist Íslendings til þessa“ VG - Fréttablaðið ...áhugaverð og fáguð kvikmynd sem veitir ferskum straumum inn í íslenska kvikmyndagerð ���� - HJ MBL Stórkostleg ævintýramynd frá meistara Terry Gilliams byggð á hinum frábæru Grimms ævintýrum með Matt Damon og Heath Ledger í aðalhlutverkum ��� - D.Ö.J. kvikmyndir.com ���� - Ó.Ö.H. DV SJÚKUSTU FANTASÍUR ÞÍNAR VERÐA AÐ VERULEIKA! Stranglega bönnuð innan 16 ára ���� „...mikið og skemmtilegt sjónarspil...“ - HJ MBL Sýnd kl. 3, 5, 7, 9 og 11 B.i. 16 ára ....eiturgóð mynd.... Sirkus 30.12.05 Sýnd kl. 6, 8 og 10
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.