Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 2
Bjarni, lagðir þú þig í Líma? „Miðað við eindregnar yfirlýsingar Vilhjálms Þ. Vil- hjálmssonar borgarstjóra og Björns Inga Hrafnssonar, for- manns borgarráðs, þá hef ég ekki áhyggjur af því að Orkuveita Reykjavíkur verði einkavædd,“ segir Össur Skarphéðinsson iðn- aðarráðherra. Hann átti óopinber- an fund með Guðmundi Þórodds- syni, forstjóra Orkuveitunnar, og Hjörleifi B. Kvaran seinni partinn í gær. „Við áttum engan opinberan fund með iðnaðarráðherra en ég get hitt Össur þegar ég vil,“ sagði Hjörleifur. Einar Karl Haralds- son, aðstoðarmaður Össurar, stað- festi í gærkvöld að fundurinn hafi farið fram og hafist klukkan fjög- ur. Þar voru málefni fyrirtækisins til umræðu og þá helst fyrirsjáan- leg breyting á rekstrarformi Orkuveitunnar. Össur segist ekki vera á móti því að rekstrarformi fyrirtækis- ins verði breytt úr sameignarfyr- irtæki í hlutafélag. Það sé að mörgu leyti heppilegt rekstrar- form og geri fyrirtækinu frekar mögulegt að taka þátt í útrás íslenska orkuiðnaðarins. Vilhjálmur Þ. Vilhjálmsson borgarstjóri sagðist á borgar- stjórnarfundi í gær líta svo á að Orkuveitan ætti að vera áfram í samfélagslegri eigu, þrátt fyrir hlutafélagavæðinguna. Stjórn fyrirtækisins hefur nú þegar samþykkt tillögu til eigenda fyrirtækisins að það verði hlutafé- lag frá 1. janúar 2008. Reykjavík- urborg er langstærsti eigandinn, með um 93,5 prósenta hlut, Akra- nesbær á 5,5 prósent, Borgar- byggð um 0,76 prósent og Borgar- fjarðarsveit um 0,17 prósent. Málið var til umfjöllunar á borg- arstjórnarfundi í gær en borgar- ráð fjallar um tillöguna á fundi á fimmtudaginn. Svandís Svavarsdóttir, borgar- fulltrúi Vinstri grænna, lýsti yfir vonbrigðum sínum með það á borgarstjórnarfundinum að tillag- an virtist hafa meirihlutafylgi á þingi. „Iðnaðarráðherra tekur full- an þátt í þessum leiðangri,“ sagði Svandís. Össur segir öllu máli skipta að tryggt sé að almannaveiturnar, heita og kalda vatnið, séu áfram í félagslegri eigu. Átti leynifund með stjórnendum OR Össur Skarphéðinsson iðnaðarráðherra segist hlynntur hlutafélagavæðingu Orkuveitu Reykjavíkur. Hann fundaði með stjórnendum OR seinni partinn í gær. Iðnaðarráðherra tekur fullan þátt í leiðangrinum, segir Svandís Svavarsdóttir. Fellibylurinn Felix náði landi í gær í afskekktu strandhéraði Níkaragva. Á sama tíma gekk hitabeltisstormurinn Henríetta yfir suðurenda Baja California-skagans. Felix var fellibylur af hæsta styrkleika, 5. stigs samkvæmt mati bandarísku fellibyljamiðstöðvarinn- ar, er hann náði strönd Níkaragva við botn Karíba- hafs. Meðalvindstyrkur í bylnum var þá 260 km/klst og sviptust þök af húsum, þar á meðal lögreglustöð, rafmagnslínur féllu og það rigndi eins og hellt væri úr fötu. Því var spáð að Felix ynni mun meira tjón er hann færðist inn yfir þéttbýlli svæði í Hondúras og Gvatemala. Búist var við að bylurinn skildi allt að 64 úrkomusentimetra eftir í höfuðborgunum Tegucigalpa og Gvatemalaborg. Árið 1998 staðnæmdist fellibylurinn Mitch í fjóra daga yfir sama svæði. Nærri 11.000 manns fórust og yfir 8.000 týndust. Felix er 31. Atlantshafsfellibylur- inn af hæsta stigi frá því mælingar hófust árið 1886 og sá áttundi á síðustu fimm árum. Óttast tjón í Hondúras og víðar „Mér sýnist á öllu að ég fái útborgað 95 þúsund krónur á mánuði það sem eftir er af minni ævi og á þeirri upphæð ætla stjórnvöld mér og dóttur minni að komast af,“ segir Þórdís Tinna Aðalsteinsdóttir, krabbameinssjúk móðir. Í gær barst fjöldi áskorana til Tryggingastofnunar, heilbrigðis- og félagsmálaráðuneytis þar sem skorað var á stjórnvöld að leiðrétta þegar í stað kjör öryrkja og aldraðra til samræmis við íslenskan veruleika. Veikindi Þórdísar Tinnu og Gíslínu Erlendsdóttur, sem einnig er með ólæknandi krabbamein, urðu kveikjan að mótmælunum. Þórdís segir þetta baráttu við kerfið og það ranglæti sem sjúklingum er gert að sæta. Hún nefnir sem dæmi að þar sem foreldrar hennar hafi mikið þurft að liggja inni á sjúkrahúsi hafi þeir misst ellilífeyri sinn; sjálf geti hún búist við skerðingu á þeim bótum sem henni eru fengnar nú ætli lífeyris- sjóður hennar að koma til móts við hana. „Bæturnar eru ekki mönnum bjóðandi og fáranlegt að veikt fólk sé sífellt lamið niður af kerfinu,“ segir Þórdís. Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðardóttur félagsmálaráðherra, bendir á að félagsmálaráðuneyti taki við málefninu um áramót. „Við vitum af þessu, erum vakandi fyrir stöðunni og munum gera okkar til að bæta úr þegar að því kemur,“ segir Hrannar. Flugvél ævintýra- mannsins Steves Fossett hefur verið týnd síðan á mánudaginn. Fossett flaug frá flugvelli í Nevada-ríki í Bandaríkjunum, á einshreyfils Bellanca flugvél, á mánudaginn en kom ekki til baka á þeim tíma sem hann ætlaði. Í gær tilkynnti vinur Fossets yfirvöldum flugmála í Reno-ríki að hann væri týndur. Ian Gregor, talsmaður flugmálayfirvalda í Virgíníu, sagði í gær að leitað hefði verið að Fossett án árangurs. Hann sagði að leitarmenn hefðu ekki hugmynd um hvar Fossett væri að finna og að vandamálið væri meðal annars það að hann hefði ekki sagt neinum hvert hann ætlaði. Flugvél hans týnd í tvo daga Fjórtán ára drengur slasaðist á fæti þegar hann lenti í árekstri við annan fjórtán ára dreng í Vestmannaeyjum, en báðir óku mótorkrosshjólum. Hvorugur hefur réttindi til að aka slíku hjóli. Slysið varð inni í Vestmanna- eyjabæ og var annað hjólið óskráð. Drengurinn meiddist ekki mikið. Umferðarstofa sendi frá sér tilkynningu vegna málsins í gær, þar sem fram kom að töluvert hafi verið um slys upp á síðkastið þar sem unglingar og börn aki mótorkross- eða fjórhjólum réttindalaus. Það sé óheimilt nema á tilteknum svæðum. Próflaust barn ók á annað Tvær konur á fimmtugsaldri voru fluttar til Reykjavíkur á sjúkrahús eftir harðan árekstur á Reykjanesbraut við Grænás rétt fyrir klukkan sjö í gærkvöldi. Læknir á slysadeild sagði að konurnar yrðu báðar lagð- ar inn en vildi ekki kalla meiðsl þeirra alvarleg. Eitthvað gæti þó átt eftir að koma í ljós. Tveggja ára gamalt barn var í öðrum bílnum og að sögn lögregl- unnar á Suðurnesjum slapp það án mikilla meiðsla. Þar mun bílstóll hafa bjargað miklu. Lögregla segir annan bílinn hafa ekið framan á hinn. Talið er að önnur konan hafi sofnað með þessum afleiðingum. Tvær slösuðust í hörðum árekstri

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.