Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 48

Fréttablaðið - 05.09.2007, Qupperneq 48
Ég var að bíða eftir flugi frá Got-landi þegar ég kom auga á hann. Fyrst horfði ég bara og velti því fyrir mér hvort þetta væri örugglega hann. Ég lét augun hvarfla yfir á aðra farþega og leit svo aftur á hann. Jú, í samanburði við hina var þetta Nikolaj Lie Kaas, fyrsti leikarinn til að fá þrenn Bodil-verðlaun fyrir þrítugt og lék m.a. í Idioterne. Þarna sat hann og dottaði og enginn virti hann viðlits. Svíar! hnussaði ég en bara innan í mér. Þeir vita greinilega ekkert um danska kvikmyndagerðarlist. tók sig upp. Mér fannst ég þurfa að gera eitthvað. Átti ég ekki að vinda mér að manninum og segja eitthvað? „Minn bara á Gotlandi! Varstu kannski að leika í bíómynd eða hvað?“ Samt sat ég kyrr, enda rudda- legt að ræna þreyttan mann hvíld- inni. Ég hef ekki verið nálægt jafn- þekktum manni síðan ég mætti – og haldið ykkur fast – Colin McCredie í klósetttröppunum í Háskólabíói. Jú, mikið rétt, rauðhærða Skotanum sem leikur Stuart Fraser í Taggart. Auðvitað falaðist ég eftir einkavið- tali! Hvílíkt skúbb! sveif líka einu sinni á Wyclef Jean úr The Fugees á Fornebu og skiptist á orðum við hann. „Minn bara í Noregi, ha? Stendur eitt- hvað til? Sjónvarpsþáttur! Gaman, gangi þér rosavel.“ Um leið og ég kom inn á hótel hringdi ég í vin minn til að segja að ég hefði rétt í þessu verið að rabba við Wyclef Jean. „Hann stóð nú við hliðina á mér á Kaffibarnum um daginn,“ sagði vinur minn og það rifjaðist upp fyrir mér að hljómsveitin var nýkomin af klakanum. ég hef aldrei heyrt að Nikolaj hafi komið til Íslands. Hann átti ég alein og þarna svaf hann spotta- korn frá mér án þess að nokkur gæfi honum gaum. Og líklega var það þess vegna sem óróinn seytlað- ist smám saman úr mér og andar- drátturinn varð aftur reglulegur. Þegar kallað var út í vél rumskaði Nikolaj, stóð upp og teygði úr sér. Hann settist rétt fyrir aftan mig í vélinni en samt var ég pollróleg eins og sú sem umgengist hefur þá ríku og frægu alla tíð. Ég meina, ég á enn tölvupóstfang Colins McCred- ie! Samt fyndist mér leiðinlegt ef enginn hefði frétt af því að ég hefði næstum því spjallað við sjálfan Nikolaj Lie Kaas. Jag och min kändis

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.