Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 6

Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 6
 Lögreglumönnum sem standa vaktina á höfuðborgarsvæðinu hefur fjölgað í svipuðu hlutfalli við fjölda íbúa á síðasta einum og hálfum áratug. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra eru 565 íbúar fyrir hvern lögreglumann á höfuðborg- arsvæðinu nú, en voru 476 árið 1990. Stefán Eiríksson, lögreglustjóri höfuðborgarsvæðis- ins, varar við því að of mikið sé lesið í þessar tölur, og bendir á að bæði starfsmenn fjarskiptadeildar og sérsveitarmenn hafi færst frá lögreglunni í Reykjavík til Ríkislögreglustjóra. Þeir sinni einkum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu og réttara væri að telja þá með. Árið 1990 voru 476 íbúar fyrir hvern lögreglumann á höfuðborgarsvæðinu, hjá embættum lögreglu í Reykjavík, Kópavogi og Hafnarfirði. Fimm árum síðar hafði íbúum fjölgað en lögreglumönnum ekki í hlutfalli við það, og voru þá 509 íbúar fyrir hvern lögreglumann. Árið 2001 voru 526 íbúar á hvern lögreglumann, en rétt er að geta þess að árið 2000 fluttust 14 stöðugildi í fjarskiptamiðstöð lögreglunnar í Reykjavík til Ríkislögreglustjóra. Árið 2003 færðust 16 sérsveitarmenn til Ríkislög- reglustjóra en lögreglan í Reykjavík fékk tíu stöðu- gildi til að bæta upp fyrir brotthvarfið. Árið 2006 voru 544 íbúar fyrir hvern lögreglumann, og í byrjun árs 2007 voru þeir orðnir 565. Stefán Eiríksson bendir á að í dag séu um 340 lögreglumenn starfandi hjá lögreglu höfuðborgar- svæðisins. Til þess að samanburður við fyrri ár sé sanngjarn þurfi að bæta við þann fjölda fjörutíu sérsveitarmönnum og tuttugu starfsmönnum fjarskiptamiðstöðvar. Sé það gert er hlutfallið svipað og árið 1990, 477 íbúar á lögreglumann. Samkvæmt upplýsingum frá Ríkislögreglustjóra eru að jafnaði um tíu stöðugildi sérsveitarmanna á vöktum á höfuðborgarsvæðinu. Þegar ekki sé þörf á mannskap í þjálfun og önnur verkefni, svo sem öryggisgæslu vegna komu erlendra þjóðhöfðingja, séu fleiri sérsveitarmenn í almennum verkefnum á höfuðborgarsvæðinu. Lögreglumenn hlut- fallslega færri en 1990 Almennum lögreglumönnum á vakt virðist ekki hafa fjölgað í takt við fjölgun íbúa á höfuðborgarsvæðinu. Hlutfallslegur fjöldi hefur staðið í stað sé tekið tillit til breytinga á sérsveit og starfsmanna fjarskiptamiðstöðvar segir lögreglustjóri. SKEMMTILEG NÁMSKEIÐ ónsalir Bæjarlind 2 sími 534-3700 www.tonsalir.is Erum að taka á móti umsóknum á eftirfarandi námskeið: * Gítarnámskeið * Trommunámskeið * Rafbassanámskeið Námskeiðin eru ætluð byrjendum á aldrinum 7-14 ára. * Partýgítarnámskeið Ætluð fullorðnum byrjendum í gítarleik. Upplýsingar og innritun á www.tonsalir.is Námskeið hefjast um miðjan september Tónsalir er ryþmískur tónlistarskóli þar sem leitast er við að viðhalda gleðinni í hljóðfæranáminu Gefa ætti þeim sem skulda skatta færi á að greiða sjálf- ir, og innheimta aðeins beint af launum með fulltingi vinnuveit- enda ef menn standa ekki í skilum, segir Pétur Blöndal, formaður efna- hags- og skattanefndar Alþingis. Í Fréttablaðinu í gær var fjallað um mál manns sem þurfti að greiða fjármagnstekjuskatt en fékk ekki að greiða skuld sína sjálfur, heldur var hún sjálfkrafa dregin af laun- um hans í gegnum vinnuveitanda. Pétur segir gagnrýni mannsins réttmæta; fólk ætti að hafa mögu- leika á því að greiða sínar skuldir sjálft. „Ég get alveg fallist á það að þeir sem vilja standa í skilum við skattkerfið megi það, en það sé ekki verið að innheimta hjá þeim eins og af vanskilamönnum,“ segir Pétur. Hann segir eðlilegra að farið sé í laun manna standi þeir ekki skil, og bendir á að launagreiðandinn sjái ekki út frá þeim gögnum sem hann fái hvers eðlis skuld launamanns- ins sé, hvort hann skuldi fjármagns- tekjuskatt eða aðra skatta. Pétur segist oft hafa gagnrýnt að Alþingi hafi gefið skattyfirvöldum óþarflega mikinn forgang á kröfur sínar á borgarana umfram aðrar kröfur. Hann útilokar ekki að hann muni beita sér fyrir breytingu á þessu kerfi. „Ég hef áhuga á að heyra af öllum vandkvæðum sem eru á samskipt- um borgaranna og skattyfirvalda, ég vil gjarnan gera þau sem ein- földust og vingjarnlegust,“ segir Pétur. Skilvísir geti borgað beint Oddur Friðriks- son, yfirtrúnaðarmaður starfs- manna á Kárahnjúkasvæðinu, vill að Vinnumálastofnun stöðvi starfsemi verktakafyrirtækjanna GT-verktaka og Hunnebeck. Fyrirtækin eru undirverktakar Arnarfells við Hraunaveitu Kárahnjúkavirkjunar. Ekki liggur ljóst fyrir hvort fyrirtækin hafa greitt starfsmönnum sínum laun samkvæmt kjarasamningum. Gissur Pétursson, forstjóri Vinnumálstofnunar, segir að ekki sé ljóst hvort stofnunin muni grípa til aðgerða gegn fyrirtækj- unum. Gissur segir að Vinnumála- stofnun rannsaki hvort fyrirtækin hafi brotið kjarasamninga og að hugsanlega verði starfsemi þeirra stöðvuð ef svo er. Stöðvi vinnu fyrirtækjanna Hefur þú fordóma gagnvart útlendingum? Finnst þér auglýsing Símans með Jesú Kristi í aðalhlutverki ósmekkleg? Rúmlega 40 prósent landsmanna styðja framboð Íslands til Öryggisráðs Samein- uðu þjóðanna, samkvæmt nýrri könnun sem Capacent gerði fyrir utanríkisráðuneytið. Um þriðj- ungur er andvígur því. Stuðningurinn hefur vaxið frá því árið 2005, en þá voru 28 prósent landsmanna hlynntir framboðinu og rúmur helmingur andvígur því. Í vikunni hefst fundaherferð sem ráðuneytið stendur fyrir í samvinnu við alla háskóla landsins þar sem alþjóðamál og framboðið til Öryggisráðsins verður kynnt. Fleiri styðja framboðið nú

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.