Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16

Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 16
fréttir og fróðleikur Barnaverndarstofa gaf nýverið út skýrslu um stöðu barnaverndarmála á fyrsta ársfjórðungi þessa árs. Þar kemur fram að tilkynning- um til barnaverndarnefnda hefur fjölgað um tæp 29 prósent á milli ára. Innan við helmingur þeirra mála sem koma til nefndanna eru könnuð frekar. Alls bárust barnaverndarnefnd- um 2.227 tilkynningar um 1.802 börn í janúar, febrúar og mars á þessu ári, sem er um 29 prósent fleiri tilkynningar en á sama tíma á síðasta ári. Að sögn Braga Guð- brandssonar, forstjóra Barna- verndarstofu, er þessi fjölgun í samræmi við þróun síðustu ára. „Það er alltaf árleg aukning og á síðustu fimm árum hefur málun- um fjölgað að meðaltali um tíu prósent á ári.“ Af málum þeirra 1.802 barna sem tilkynnt voru á tímabilinu var hafin rannsókn á 762 málum, eða í 42 prósentum tilvika. „Hlutfall þeirra mála sem fara til frekari rannsókna fer lækkandi og það er áhyggjuefni. Þá er sú hætta til staðar að við séum ekki að rann- saka öll þau mál sem skyldi,“ segir Bragi. Hann segir að engin aukn- ing hafi orðið á starfsmannafjölda hjá barnaverndarnefndum sveitar- félaganna og því sé sívaxandi álag á starfsliðið. Starfsmannastöðn- unin haldist svo að verulegu leyti í hendur við fækkun rannsókna. Hlutfall þeirra mála sem könn- uð eru frekar er breytilegt milli landshluta. Aðeins fjórðungur til- kynninga eru kannaðar frekar af barnaverndaryfirvöldum í Reykja- vík. Í nágrenni Reykjavíkur er hlutfallið 46 prósent og á lands- byggðinni eru 59 prósent allra til- kynninga skoðaðar nánar. Bragi segir ástandið vissulega misjafnt eftir sveitarfélögum enda séu barnaverndarnefndir 32 á öllu landinu. „Heildarmyndin er hins vegar alveg skýr.“ Flestar tilkynningarnar bárust vegna áhættuhegðunar barna, eða rúm 52 prósent. Til áhættuhegð- unar teljast afbrot, neysla á vímu- efnum, ofbeldishegðun og erfið- leikar í skóla. 28,5 prósent tilkynninga voru vegna vanrækslu foreldra. Þar er algengust van- ræksla varðandi umsjón og eftirlit með barni, en aðrir þættir eru lík- amleg, tilfinningaleg og námsleg vanræksla. 18,5 prósent tilkynn- inga til barnaverndarnefnda voru vegna sálræns, líkamlegs eða kyn- ferðislegs ofbeldis. Fæstar til- kynningar bárust vegna þess að líf eða heilsa ófædds barns væri talin í hættu, eða 0,4 prósent. Eftir því sem tilkynningarnar verða fleiri þá verða þær stundum efnisminni, að sögn Braga. Þrösk- uldurinn fyrir tilkynningar hafi lækkað og fagfólk í skólakerfinu, heilbrigðiskerfinu og hjá lögreglu sé meðvitaðra um að tilkynna um grunsemdir sínar. Það er lögregl- an sem tilkynnir barnaverndar- mál í meira en helmingi tilvika. Skólayfirvöld tilkynna um tíu pró- sent þeirra og heilsugæslur eða sjúkrahús rúmlega sjö prósent. Meðal annarra sem tilkynna eru ættingjar, nágrannar og foreldrar barna. Aðeins níu tilkynningar á tímabilinu bárust frá börnunum sjálfum. „Þetta lækkandi hlutfall rann- sókna segir okkur að barnavernd- arkerfið getur ekki brugðist við þessu ákalli um að rannsaka mál sem skyldi,“ segir Bragi. „Það þýðir ekki að vera annars vegar með kerfi sem hvetur fólk til að tilkynna til barnaverndarnefnda þegar það hefur áhyggjur og vera svo með kerfi sem getur ekki sinnt því. Ég held að við séum öll sam- mála um að við eigum að leggja það sem hægt er í að tryggja öryggi barnanna, og það verður ekki gert nema með því að hlúa að þessari starfsemi.“ Allir sammála um öryggi barna Hert löggæsla Enn er beðið eftir nýju húsi Smiðjuvegi 5 200 Kópavogur www.skola. is Sími 585 0500 Opið virka daga 9-18 og laugardaga 10-14 O D D I H Ö N N U N P O 7. O 07 .7 47 Stórútsala á prjónagarni og hannyrðavörum til 22. september allt að 0%6

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.