Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 34

Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 34
Því hefur oft verið haldið fram að konur séu konum verstar, og þeim finnist fátt skemmtilegra eða meira gefandi en að tala illa um kynsystur sinnar. Óvísindalegar rannsóknir hafa sýnt fram á að umræddar konur stunda þessa sérstöku iðju oftar en ekki yfir rjúkandi kaffibolla eða svitn- andi hvítvínsglasi (hvort það svitn- ar vegna kulda vínsins sem í því er, eða hreinlega af því að því blöskrar svo orðræðan sem það verður vitni að skal látið liggja á milli hluta). Ég hef hins vegar staðfestar heimildir fyrir því að áðurnefnt leirtau verður líka vitni að allt öðrum og skemmtilegri samræð- um, auk þess að hafa sjálf orðið vitni að og tekið þátt í slíku athæfi. Konur geta nefnilega líka verið konum bestar, og karlmönnum líka. Ófáar samkomur, hvort sem þær fara fram yfir kaffi eða hvítvíni, konfekti eða gulrótarstrimlum, hafa snúist upp í einhvers konar lofsöng til kvenna sem hópurinn þekkir, kannast við eða hefur bara heyrt af. Við prísum hvor aðra og lofum í bak og fyrir, allveg öfund- arlaust. Ég lofa. Þetta er satt. Ég hef einhvurn (eins og amma mín segir) tíma áður skrifað um þann fádæma góða sið að hrósa fólki, og í sömu andrá sakað Íslend- inga um að vera ekki nógu iðna við kolann í þeim efnum. Ég hef hins vegar áttað mig á því að þetta var helber misskilningur hjá mér. Við hrósum alveg glás, en bara helst ekki þegar hólhafinn (sá sem hrós- að er) er nálægur. Fréttablaðið var lengi vel með dálk að nafni Hrósið á öftustu síð- unni í blaðinu. Í gær fékk ég ósk um að hann yrði endurvakinn, þegar viðmælandi minn vildi til- nefna framkvæmdastjóra Jazzhá- tíðar Reykjavíkur sem hólhafa dagsins. Því get ég ekki komið við öðru vísi en hér. Ég hef hins vegar sjálf orðið þeirrar gæfu aðnjót- andi að fá tvö hrós á síðustu dögum og vil því nota þetta tækifæri til að hrósa þeim sem hrósa, þið eigið allan heiður skilinn. Bónus-vinningur 20 milljónir Alltaf á mi›vikudögum! 20 100 120 1. vinningur MILLJÓNIR Fá›u flér mi›a fyrir kl. 16 í dag e›a taktu sén s á a› missa af flessu ! MILLJÓNIR Á LAUSU! E N N E M M / S ÍA / N M 2 9 5 12 Potturinn er tvöfaldur og stefnir í 100 milljónir. Ofurpotturinn stefnir í 20 milljónir og bónusvinningurinn í 20 milljónir. Tvöfaldur pottur2

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.