Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 10

Fréttablaðið - 05.09.2007, Blaðsíða 10
Í umfjöllun um skipu- lag og uppbyggingu Laugavegar, sem hófst fyrir rúmum áratug, var aldrei lagt til að húsin við Lauga- veg 4 og 6 yrðu friðuð eða varð- veitt með öðrum hætti. Fulltrúar meirihlutaflokkanna í borgarstjórn Reykjavíkur röktu sögu málsins í umræðum um það á borgarstjórnarfundi í gær. Gátu þeir þess að ákvörðun um niðurrif húsanna tveggja væri löngu tekin og biði aðeins staðfestingar. Svandís Svavarsdóttir VG tók málið upp og sagði umræðuna ekki bara snúast um þessi tilteknu tvö, málið væri stærra og viðameira. Sagði hún að meðferð húsafriðunar hefði verið snúið á hvolf; sýna þyrfti fram á hvers vegna friða bæri hús en ekki hvers vegna rífa ætti hús. Við ofurefli væri að etja þar sem rifið væri í krafti fjár- magns en verndunarbarátta væri háð í krafti hugsjóna. Hún sagði jafnframt að ekki skipti máli hver hefði ákveðið hvað hvenær, enn væri hægt að stöðva málið. Hanna Birna Kristjánsdóttir Sjálfstæðisflokki sagði að í allri meðferð málsins innan borgarkerf- isins hefði aldrei komið fram til- laga um að húsin tvö yrðu friðuð. „Enginn lagði það til,“ sagði hún og bætti við að þvert á móti hefðu allir viljað að þau yrðu rifin. Gísli Marteinn Baldursson Sjálf- stæðisflokki sagði nauðsynlegt að skilja að umræðuna um hvort rífa ætti hús og hvað koma ætti í stað- inn. Verkefni núverandi borgaryf- irvalda væri að ákveða hvað ætti að reisa á lóðunum eftir að húsin hafa verið rifin að ákvörðun R-list- ans. Dagur B. Eggertsson sagði stöðu miðborgarinnar aðra nú en var þegar skipulagsvinnan hófst fyrir rúmum áratug og til þess þyrfti að taka tillit. Laugavegurinn og næsta nágrenni hafi verið í niðurníðslu og allar áætlanir hafi miðast við að færa svæðið aftur til vegs og virð- ingar. Gat hann þess jafnframt að borgarfulltrúar Samfylkingarinn- ar sætu hjá við afgreiðslu málsins en Oddný Sturludóttir borgarfull- trúi flokksins hygðist greiða sér- atkvæði. Borgarfulltrúar VG og F- listans lýstu sig andvíga niðurrifi en meirihlutafulltrúar Sjálfstæðis- flokks og Framsóknarflokks voru fylgjandi. Enginn vildi vernda húsin við Laugaveg Það var í tíð R-listans sem ákveðið var að rífa húsin við Laugaveg 4 og 6. Núver- andi meirihluti kveðst aðeins vera að framfylgja ákvörðun fyrri meirihluta sem enginn gerði athugasemd við. Niðurrifið var til umræðu í borgarstjórn í gær. Jón Pétursson, sem dæmdur var í fimm ára fangelsi fyrir nauðgun 19. júní síðastliðinn, krefst þess að það verði rannsak- að betur hvort hann sé hugsanlega ósakhæfur vegna höfuðhöggs sem hann fékk á ferðalagi í Egypta- landi árið 1999. Málflutningur vegna málsins fór fram í Héraðsdómi Reykjavík- ur í gær. Jón var dæmdur í fimm ára fangelsi 11. október í fyrra fyrir hrottalegt ofbeldi og nauðg- un. „Ég tel mig vera búinn að rök- styðja það vel, að það sé ekki hafið yfir vafa með óyggjandi hætti, að Jón Pétursson sé hugsanlega ósak- hæfur,“ sagði Sveinn Andri Sveins- son, lögmaður Jóns, er hann lauk máli sínu í gær. Hann krafðist þess að það færi fram rannsókn á því hvort Jón væri með framheila- skaða sem getur haft í för með sér persónuleikabreytingar. Vitnaði Sveinn Andri til álits John Donne de Nite, hollensks læknis, sem starfar á Litla-Hrauni og meðferð- arheimilinu Sogni. Hann telur að kanna þurfi með „taugasálfræði- legu mati“ hvort fyrrnefndur skaði sé fyrir hendi eða ekki. Ríkissaksóknari heldur því fram að ekki séu komin fram nein gögn sem sýni fram á það að ónægar rannsóknir hafi farið fram á því hvort Jón væri sakhæfur eða ekki. Bent var á það að Tómas Zoëga geðlæknir hefði rannsakað Jón á fyrri stigum og það hefði verið mat dómara að Jón væri sakhæf- ur. Jói Fel Starfssvið Hæfniskröfur Bakaríið Jói Fel óskar eftir verslunarstjóra á Kleppsveg. Þarf að geta hafið störf strax. joifel@joifel.is 863 7579 MasterCard Mundu ferðaávísunina! Montreal

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.