Tíminn - 14.02.1981, Síða 1
Siðumúla 15 ■ Pósthólf 370 • Reykjavik Ritstjórn 86300 • Auglýsingar 18300 Afgreiðsla og áskrift 86300 • Kvöldsímar 86387 & 86392
Líkur á að Þórshafnartogarinn sé úr sögunni:
Gengur Framkvæmdastofn-
unin inn í skaðabætur?
Hef sterka löngun til þess”, segir Sverrir Hermannsson forstjóri
>»
JSG — Allt útlit er nú fyrir að
samningum útgerðarfélags
Norður-Þingeyinga við norska
aðila um kaup á skuttogara,
verði rift. Að loknum fundi með
forstjóra Framkvæmdastofn-
unar rikisins i gær, sem þing-
menn Norðurlands eystra sátu
ásamt forvigismönnum út-
gerðarfélagsins, sagði Jóhann
Jónsson framkvæmdastjóri
Hraðfrystistöðvar Þórshafnar.
Þó að málið væri ekki frágengið
og þvi ekki séð hver endanleg
niðurstaða yrði, en hennar yrði
að vænta strax eftir helgi.
Stjórn Framkvæmdastofn-
unar samþykkti á fimmtudag,
að Byggðasjóður myndi aðeins
leggja til 20% af upphaflegu
kaupverði togarans, sem var 21
milljón n.kr. eða 2,7 milljarðar
gamalla króna. „Þar sem kaup-
verðið er nú 3,5 milljarðar,
þýðir þetta að það vantar 2-300
milljdnir króna upp á, og það
var vitað fyrirfram að kaup-
endur voru engan veginn færir
um að brUa það bil. An þess ég
vilji fara að gera st jórnarmönn-
um i Framkvæmdastofnun upp
hvatir þá hlýtur þessi afstaða
þvi að merkja að þeir vilji að
kaupin gangi til baka”, sagði
Sverrir Hermannsson, forstjóri
i samtali við Timann i gær.
Eggert Haukdal formaður
stjórnarinnar staðfesti að þetta
væri sin afstaða: „Ég tel að það
verði að leita ódýrari lausnar á
vandamálum ÞórshafnarbUa
heldur en liggur fyrir” sagði
Eggert.
Sverrir Hermannsson taldi
ekki vera aðrar leiðir sjáan-
legar til að bjarga kaupunum,
nema rikisstjórnin sjálf gripi til
nýrra ráða.
En þegar litur Ut fyrir riftun
kaupsamnings þá vaknar
spurningin um skaðabætur
vegna þess. Fram hefur komiö
að veitt hefur verið banka-
ábyrgð vegna 10% kaupverðs-
ins, en Sverrir Hermannsson
kvað engan vafa leika á að þeim
peningum næði Framkvæmda-
stofnun til baka enda styddist
hUn við fyrirvara vegna fjár-
mögnunar sem I samningnum
var. En mun Framkvæmda-
stofnun greiða aðrar skaða-
bætur?
„Gangi þetta mál til baka og
menn yrðu fyrir fjárhagslegum
áföllum af þeim sökum þá hef
ég sterka löngun til að hjálpa fá-
tækum mönnum á Þórshöfn og
Raufarhöfn til að hjálpa þeim út
Ur þvi. Stjórnvöld eru nefnilega
ekkert saklaus i þessu máli”,
sagði Sverrir Hermannsson.
Sjó-
manna-
deilan í
strand
AB — Siðdegis i gær slitnaði upp
úr viðræðum sjómanna og út-
vegsmanna að ósk beggja aðila.
Báðir aðilar kváðust ekket hafa
að ræða að sinni, vegna þess
hvernig horfði i sambandi við
ákvörðun á fiskverði.
Klukkan rumlega 18 i gær kom
yfirnefnd verðlagsráðs saman til
fundar öðru sinni i gær til að ræða
fiskverðsákvörðun.
1 gær stóðu vonir til. þess að
fiskverð yrði ákveðið i gær, eða i
siðasta lagi i gærkvöldi, en i gær-
kvöldi voru horfur þannig að full-
vist var talið að ekki næðist sam-
komulag um fiskverð i bráð. Þar
var talinn ráða mestu rikis-
stjórnarfundurinn i gærmorgun.
Óskar Vigfússon sagði i gær-
kvöldi við blaðamann Timans að
sér virtist að spurningin væri
hvort rikisstjórnin væri ekki nú
að gleypa sinn banabita, en að
öðru leyti vildi Óskar ekki tjá sig
um stöðu mála.
Blaðamaður Timans hitti Stein-
grim Hermannsson sjávarút-
vegsráðherra að máli i gærkvöldi
og spurði hann hvað Óskar hefði
átt við með þessum orðum sinum.
Steingrimur sagðist ekki geta
tjáð sig um það á nokkurn hátt.
Ráðherra var að þvi spurður
hvað hefði verið rætt á rikis-
stjórnarfundi i gærmorgun hvað
fiskverðsákvörðun snertir.
„Það er nú ekki hægt að greina
frá þvi i einstökum atriðum'að
svo komnu máli. Hitt er þó óhætt
að segja, að fram hafa komið
tvær hugmyndir um fiskverð.
önnur frá sjómönnum og Utvegs-
mönnum, sem er 19% hækkun frá
1. janúar, og 5,5% hækkun 1.
mars. Hin hugmyndin er frá fisk-
kaupendum, 16% frá 1. janúar og
'5% hækkun 1. mars. Ég neita þvi
ekki að hugmynd kaupenda er
verulega nær hugmynd okkar i
rikisstjórninni, þvi við viijum
halda okkur sem næst þvi áætlaða
fiskverði, sem var áætlað fyrir 1.
mars”, svarði sjávarútvegsráð-
herra.
Stefáni Halldórssyni hefur tekist aö snúa á vörn A-Þjóöverja og skora, en þaö dugöi ekki þvf ólympiu-
meistarar fóru meö sigur af hólmi 18:16 i Laugardalshöli i gærkvöldi. Þjóöirnar reyna aftur meö sér á
morgun og hefst leikurinn kl. 20. ,
TimamyndrRóbert.
Kauphækkunin
5,95% 1. mars
— Hækkun framfærsluvisitölu 14,3% nóv.-janúar
HEI — „Veröbótahækkun
launa frá 1. mars n.k. veröur
5,95% samkvæmt reikningi
kauplagsnefndar samkvæmt
ákvæðum bráðabirgðalaganna
er sett voru um áramótin.
Samkvæmt bráðabirgðalög-
unum var framfærsluvisitala
reiknuð Ut og sett á 100 i byrjun
janúar s.l. Við Utreikning visi-
tölunnar i byrjun febrúar
reyndist hún vera 102 stig
(nánar tiltekið 101,62 stig)
miðað við janúarbyrjun. Mest
varð hækkunin 4 stig þennan
mánuð, á liðunum: föt og skó-
fatnaður snyrtivörur og snyrt-
ing og fiskur og fiskvörur, sem
sýnist kannski hlálegt Ut frá
striði verðlagsyfirvalda-Ein-
hverjum kynni að sýnast þessi
hækkun hláleg á siðastnefnda
liðnum með strið verðlagsyfir-
valda og fisksala i huga.
t frétt frá Hagstofunni kemur
einnig fram, að samkvæmt eldri
visitölugrunni (100 i jan. 1968)
hafi framfærsluvisitalan verði
3295 stig i byrjun febrúar. 1
byrjun nóvember s.l. var þessi
visitala 2883 stig, þannig að
framfærsluvisitalan hefur sam-
kvæmt þvi hækkað um 14,3% á
þessu þriggja mánaða timabili.
Búnaðar-
þing sett
ámánudag
HEI — Næstkomandi
mánudag, 16. febrúar kl.
10.00 verður Búnaðar-
þing sett i Bændahöll-
inni. Fulltrúar á
Búnaðarþingi eru 25, en
auk þeirra sitja fundi
þess stjórn og ráðunaut-
ar Búnaðarfélags
íslands, sem hafa þar
málfrelsi og tillögurétt.
WJH;