Tíminn - 07.03.1984, Side 1
íslendingaþættir fylgja bladinu í dag
FJOLBREYTTARA
OG BEIRA BUÐ!
Miðvikudagur 7. mars 1984
57. töiublað - 68. árgangur
Siðumúla 15-Pósthólf370Reykjavík-Ritstjórn86300-Augiýsingar 18300- Afgreiðsla og áskrift 86300 - Kvöldsímar 86387 og 86306
Tillögur á borði menntamálaráðherra um Lánasjóð fslenskra námsmanna:
EKKERT TllilT VERM TEKIÐ
TIL FÉLAGSLEGRA AÐSTÆÐNA!
og endurgreiðslum háttað eins og venjuleg bankalán ættu fhlut
■ Hugmyndir um verulega
uppstokkun á málefnum Lána-
sjóðs íslenskra námsmanna
liggja nú á borði menntamála-
ráðherra til ákvörðunar, en sam-
kvæmt þeim er gert ráð fjrir að
breyta sjóðnum úr því að vera til
tryggingar framfærslu náms-
manna í lánastofnun fyrir fjár-
festingarlán sem standi undir
sér. Er lagt til að ekkert tillit
verði tekið til félagslegra að-
stæðna, víxillán til fyrsta árs
nema verði afnumin, kröfur um
námsafköst aukin og upphæð
lánsins ekki miðuð við reiknaða
framfærsluþörf. Þá er reiknað
með að herða svo kröfur um
endurgreiðslur að lánin taki ekki
aðrir en þeir sem telja nám sitt
skila sér nægilegum arði til
endurgreiðslu lánsins að námi
loknu.
Skýrsla þessi er enn trúnað-
armál í ráðuneytinu, cn hefur
þó lítillega verið kynnt forystu-
mönnum lánasjóðsins.
Sjá nánar bls 3
-b
Flateyri við Önundarfjörð:
Fjórtán tonn af
svartolíu í höf nina
■ „Ég veit ekki nákvæmlega
hvað margir fuglar hafa fundist
dauðir en ég held að þeir séu
teljandi á fingrum annarrar
handar. Þó að þetta hafi verið
talsvert magn af olíu sem fór í
sjóinn virðist hún enn sem komið
er ekki hafa unnið veruleg spjöll.
Hún virðist annaðhvort hafa far-
ið með veðrinu á haf út eða þá
grafist ofan í fjörurnar hérna
innfjarðar" sagði Steinar Guð-
mundsson, hreppstjóri á Flat-
eyri við Önundarfjörð þegar
Tíminn spurði hann hvort lífríkið
í firðinum hefði orðið fyrir tjóni
af völdum olíumengunar.
Fyrir um það bil þremur vikum
átti það óhapp sér stað hjá
starfsfólki frystihússins Hjálms
á Flateyri, að 14 tonn, tæpir 20
þúsund lítrar, af svartolíu fóru í
höfnina. Þegar starfsfólkið fór
heim frá vinnu á föstudagskvöld-
ið var dæla við dagtank í frysti-
húsinu skilin eftir í gangi. Fljót-
lega fylltist tankurinn og olían
fór að flæða um yfirfallsrör
tanksins. Ekki var tekið eftir
þessu fyrr en starfsfólk mætti til
vinnu aftur á mánudag en þá
voru eins og áður greinir 14 tonn
runnin í höfnina.
„Við fengum óljósar fréttir af
þessu fljótlega eftir að óhappið
átti sér stað. Hins vegar voru þær
þess eðlis að ekki þótti ástæða til
að gera neitt sérstakt í málinu.
En fyrir nokkrum dögum heyrð-
um við að dauður fugl hefði
fundist á fjöru og fljótlega eftir
það sendum við mann þarna
vestur. Hann gerði þarna rann-
sóknir og sem betur fer er ekki
að sjá að veruleg spjöll hafi
hlotist af þessu," sagði Magnús
Jóhannesson, settur siglinga-
málastjóri, þegar Tíminn for-
vitnaðist um þetta mál hjá
honum.
Magnús sagði, að vissulega
væri þetta alvarlegt mál því að
mikið fuglalíf.meðal annars æð-
arvarp.væri í Önundarfirði. Að-
spurður um hvort það væri ekki
kæruleysi hjá þeim sem þarna
áttu hlut að máli, að tilkynna
ekki atburðinn strax til Siglinga-
málastofnunar, sagði hann að
líklega hefði fólk ekki gert sér
grein fyrir því um hversu mikið
af olíu var að ræða þar sem hana
hefði fljótlega rekið út á haf.Sjó.
Vilji Alþingis að engu hafður:
Tillagan týndist í
iðnaðarráduneytinu
Þrátt fyrir skjót við-
varnarliðsmanna
ki að bjarga lífi
iverjans sem slasaðist
um borð í Jóni Finnssyni
i gær. Hér er þyrla varn-
rliðsins við Borgarspítal-
inn, en þangað var mað-
irinn fluttur.
Tímamynd Árni Sæberg
■ „Ég kannast ekki við að þessi þingsálvktunartillaga hafi verið lögð fyrir mig eða mitt ráðuneyti eftir að hún var sam- þykkt og kann enga skýringu á því hvers vegna hún kom ekki á mitt borð,“ sagði Hjörleifur Guttormsson fyrrvcrandi iðnað- arráðherra á Alþingi í gær, er fjallað var um tillögu um inn- lendan lífefnaiðnað, sem sam- þykkt var á Alþingi 4. maí 1982. Hjörleifur taldi að hér væri merkt mál á ferðinni þótt svona hafi til tekist. Sverrir Hermannsson núver- andi iðnaðarráðherra sagðist hins vegar hafa fundið þessa tillögu í ráðuneytinu, en þangað barst hún skömmu eftir að hún var samþykkt og hafi verið skip- aður starfshópur í Rannsóknar- ráði til að huga að þessum málum. Sagði Sverrir að tillagan hafi mislagst í ráðuneytinu. Guðmundur Einarsson bar upp fyrirspurn til ráðherra um hvað orðið hafi af þessari þings- ályktunartillögu. Guðmundur Bjarnason kvaðst fagna því að skriður væri loks að komast á málið. Ingvar Gíslason óskaði nánari skýringa á því
Brotist inn í vöruga Þremur kíl ■ Þrem kílóum af dínamíti, 100 rafmagnshvellhettum með 4ra metra kveikiþráðum, 20 stykkjum af nýrri tegund tund- urþráða og sprengihnalli var stolið úr vörugámi við Eskihh'ð um eða eftir helgina. im í Eskihlíð: lóum af dína Að sögn RLR varð þjófnað- arins vart í gær þegar sást að brotLst hafði verið inn i gáminn og þar brotnar upp járnkistur með sprengiefninu í. Gámur- inn og sprengiefnið er í eigu Reykjavíkurborgar. míti stolið Rannsóknarlögreglan vill beina því til fólks að hafa augun opin enda eru þessir hlutir stórhættulegir í höndum þeirra sem ekki kunna með þá að fara. -GSH
hvernig svona mál gætu mis-
lagst í ráðuneyti, eða komist ekki
í póst frá Alþingi til iönaðarráðu-
neytis, en hér væri um að ræða
eina af merkari tillögum sem
fram hafa komið um atvinnumál.
Tillaga þessi var flutt af Guð-
mundi G. Þórarinssyni ásamt
fimm öðrum þingmönnum
Framsóknarflokksins og var hún
samþykkt sem fyrr segir í maí
1882. í henni felst að ríkisstjórn-
inni væri falið að beita sér fyrir
að komið verði á fót öflugum
innlendum lífefnaiðnaði. Al-
þingi samþykkti að ríkisstjórnin
léti vinna að málinu með mark-
vissri rannsóknaráætlun þar sem
svara yrði leitað við því hvaða
lyf, lyfjahráefni, hormóna og
lífhvata geti verið hagkvæmt að
vinna úr innyflum fiska, hvala,
og sláturdýra, sem falla til hér-
lcndis. OÓ
Banaslys um borð í
Jóni Finnssyni:
Skipverji féll
fyrir borð með
snurpuvírnum
■ Banaslys varð um borð í
nótabátnum Jóni Finnssyni RE
506, þar sem hann var að
veiðum út af Snæfellsnesi í
gærmorgun. Þar féll maður
fyrir borð með snurpuvírnum
og slasaðist alvarlega. Hann
var fluttur á slysadeild Borgar-
spítalans með þyrlu frá varnar-
liðinu en var látbm þegar þang-
að kom.
Að sögn Hannesar Hafstein
hjá SVFI fékk hann tilkynn-
ingu um slysið um kl. 11.50 í
gærmorgun. Haft var samband
við varnarliðið á Keflavíkur-
flugvelli og var þyrla þaðan
komin í loftið kl. 12.13 og aö
skipinu kl. 12.50. Sjúkraliðar
úr þyrlunni voru scndir um
borð til að reyna að hjúkra
manninum og hann \ar síðan
tekinn um borð í þyrluna sem
lenti við Borgarspítalann kl.
14.40. Þá var maðurinn látinn.
GSH