Tíminn - 21.02.1986, Page 3
Föstudagur 21. febrúar 1986
Tíminn 3
Kúabændur á Snæfellsnesi stofna félag:
Þeir hlýðnu nú negldir
í lítilli framleiðslu
- en hinir standa meö pálmann í höndunum
Kúabændur á sunnanverðu • Snæ-
fellsnesi víta sérstaklega þau vinnu-
brögð sem viðhöfð eru gagnvart
frumbýlingum. „Þeir eru með teikn-
ingar frá Byggingastofnun landbún-
aðarins, lán frá Stofnlánadeild, og bú-
mark frá Búmarksnefnd framleiðslu-
ráðs. Þegar svo framkvæmdum er
lokiðog þeireru nú að byrja að fram-
leiða fá þeir sáralítinn framleiðslu-
rétt. Fundurinn lýsir landbúnaðar-
ráðherra ábyrgan fyrir stöðu þessara
manna nú|‘ segir m.a. í ályktun sem
samþykkt var á stofnfundi Félags
kúabænda á sunnanverðu Snæfells-
nesi nýlega. Flestir hinna 49 mjólk-
urframleiðenda á svæðinu gengu í fé-
lagið.
Einna sárast þykir mönnum þar
vestra hve skerðingin er mikil hjá
þeim bændum sent á undanförnum
árum hafa farið eftir tilmælum um að
draga úr framleiðslunni hjá sér.
„Þeir eru núna negldir í lítilli fram-
leiðslu. Þeir sem hins vegar tóku
ekkert mark á þessu og framleiddu
að fullu upp í sitt búmark, standa nú
með pálmann í höndunum.
Skerðingin hjá þeim síðarnefndu
er að vísu meiri nú, en þrátt fyrir það
standa þeir eftir með miklu stærra bú-
mark og þar af leiðandi meiri lífslík-
ur,“ sagði Magnús Guðjónsson, í
Hrútsholti form. hins nýstofnaða
félags.
Sem dæmi nefndi hann menn sent
dregið hafa saman undanfarin ár og
mega nú aðeins framleiða upp í um
70% af sínu upphaflega búmarki, en
aðrir sem héldu áfram að framleiða á
fullu fái nú að nota um og yfir 90% af
sínu búmarki.
„Þeim er nú hegnt sem hikuðu við
að kaupa fóðurbæti í stórum stíl til
að bæta upp lélegan heyfeng eftir
þau óþurrkasumur sem hér komu
hvert af öðru. Hefðu þeir framleitt
meiri mjólk með stórfelldum fóður-
bætiskaupum - þó þeir hefðu gert
öllum bölvun með því-stæðu þeir nú
með mun meiri framleiðslurétt.
Þetta þykir mörgum sárt,“ sagði
Magnús.
Fundurinn samþykkti kröfu á
landbúnaðarráðherra að hann hlut-
ist til um að í þeim héruðum sem illa
hefðu orðið úti af veðurfarslegum á- •
stæðum verði veitt aukin verðábyrgð á
mjólk til 1. sept. n.k. Er það m.a.
rökstutt með því að reglugerðin um
stjórn mjólkurframleiðslunnar hafi
komið allt of seint, og að fram-
leiðsluréttur hafi verið tekinn af
mönnum sem dregið hafi saman
vegna óska og áróðurs frá ráða-
mönnum landbúnaðarins.
Jafnframt krefst fundurinn þessað
reglugerð um stjórn mólkurfram-
leiðslunnar fyrir næsta verðlagsár
verði birt eigi síðar en 1. maí n.k.
Þá er lagt til að lög verði sett um
hámarksstærð búa. En hins vegar
harðlega mótmælt að greitt verði fyr-
ir mjólk sem bændur hafa framleitt
umfram búmark verðlagsárið 1984/
85. nema hvað ekki verði verðskert
undir 300 ærgilda framleiðslu.
-HEI
V • ^
Mv B p|m 1
■ * ‘. íwfrasBB í? 'Tl ffWtó
Samkeppni um nafn
á Hagkaupshúsið
Hagkaup hf. hefur ákveðið að
efna til verðlaunasamkeppni um
nafn á húsið sem nú er að rísa í nýja
miðbænum í Reykjavík og á að hýsa
fjölmargar verslanir, veitinga- og
þjónustufyrirtæki. Þátttaka er öll-
um heimil og verða fyrstu verðlaun
125.000 krónur.
Byggingin er á tveim hæðum og
er þar um að ræða yfirbyggðar
verslunargötur, af því tagi sem er-
lendis eru þekktar undir natninu
„shopping malls
Dómnefnd í samkeppninni skipa
Jón Ásbergsson forstjóri, Valdi-
mar Kristinsson viðskiptafræðing-
ur og Jón Pálmason stjórnarfor-
maður. Sérstakur ráðgjafi dóm-
nefndar er Guðni Kolbeinsson
íslenskufræðingur.
Þessi mynd var tekin af Auði er hún lagði upp í ferð sína til þátttöku í fegurð-
arsamkeppninni Miss Europc International.
Tilvonandi
fegurðardrottning?
Auður Pálmadóttír, 22 ára gömul
skrifstofustúlka hjá Flugleiðum, hélt
í fyrradag utan til þátttöku í keppn-
inni um titilinn Miss Europe
International 1986. Tímaritið Lúxus
sá um val þátttakanda frá íslandi í
k'eppnina, en þetta er í annað skiptið
sem keppnin ferfram. Síðast var það
í Vínarborg en nú fer hún frani á
Möltu. Ferð Auðar hefst í Munchen
í Þýskalandi þar sem þátttakcndur í
keppninni koma fyrst saman. Þaðan
verður sendur út sjónvarpsþáttur,
þar sem stúlkurnar verða kynntar.
Úrslit verða kunngerð 28. febrúar.
Hótel Hvolsvöllur:
Skemmtikvöld
á föstudaginn
Eigendur Hótel Hvolsvallar hafa
ákveðið að efna til sérstakra
skemmtikvölda fyrir íbúa á staðnum
og nærsveitarmenn og verður fyrsta
skemmtikvöldið næsta föstudags-
kvöld. Þar skemmta Sigurður Ólafs-
son söngvari og hestamaður og Skúli
Halldórsson tónskáld.
Skemmtikvöldið hefst með borð-
haldi kl. 20., en boðið verður upp á
þríréttaðan veislumat. Dúettinn í
Reykjavík leikur á meðan á borð-
haldi stendur og að loknum
skemmtiatriðum verður dansað til
kl.2.
Á Hótel Hvolsvelli eru 34 her-
bergi. Góð aðstaðaerfyrir gesti m.a.
gufubað, sóllampar og nuddpottur.
Hótel Hvolsvöllur er upplagður
staður fyrir minni hópa til að halda
árshátíðar á.
Gr<5ö þjonisLStci
JS/Iiki ö li rvci l
Ömgg viðskipti
BÍLAKAUP
Borgartuni 1, -105 Reykjayik.
Símar 686010-686030