Tíminn - 21.02.1986, Side 12
12 Tíminn
Föstudagur 21. febrúar 1986
Vilja auknar niðurgreiðslur
og aukna mjólkurdrykkju
Á fundi Búnaðarfélags Dyrhóla-
hrepps voru eftirfarandi ályktanir
samþykktar og sendar viðkomandi
aðilum:
Til landbúnaðarráðherra
Fundur haldinn í Búnaðarfélagi
Dyrhólahrepps að Ketilsstöðum
15.2.’86. skorar á landbúnaðarráð-
herra og Framleiðsluráðs, að
endurskoða nýlega afgreitt full-
virðisbúmark í mjólk, til bænda í
Vestur-Skaftafellssýslu. Vart verð-
ur unað við svo mikla framleiðslu-
skerðingu og bendir fundurinn á
eftirfarandi í því sambandi.
1) Að fáir atvinnumöguleikar eru í
héraðinu, sem bætt geta bændum
upp þá miklu tekjuskerðingu sem
hér um ræðir, þar sem landbúnaður
er nær eina tekjugreinin og mjólk-
urframleiðsla aðal undirstaðan.
2) Lítið virðist vera tekið tillit til
þess í fullvirðisútreikningi að við-
miðunarárin eru flest þau erfiðustu
um langan tíma hér um slóðir og
því lítt viðmiðunarhæf.
3) Þá átelur fundurinn harðlega
þau vinnubrögð, að setja á þessa
miklu framleiðsluskerðingu á
miðju framleiðsluári og bændur því
hagað framleiðslu sinni á allt annan
hátt en hefði framlciðslumagni ver-
ið úthlutað strax á haustnóttum.
4) Svo virðist sem lítið eða ekkert
tillit hafi verið tekið til þeirra, sem
sjálfviljugir drógu saman fram-
leiðslu, eftir beiðni Framleiðslu-
ráðs, eins þeirra sem í uppbyggingu
eru og hafa verið, þeirra hagur
verður eflaust alverstur. Par er í
flestum tilfellum um verulegar
skuldabyrðar að ræða og lítil von
fyrir dyrum ef leiðrétting fæst ekki
eða aðstoð í öðru formi. Þá verða
framleiðendur sem átt hafa í erfið-
leikum með heilsufar kúa sinna á
viðmiðunarárum sérlega illa úti þar
sem mjólkurmagn hefurþá í mörg-
um tilfellum verið í lágmarki.
Þarna þurfa að koma til vottorð
dýralækna eða ráðunauta til leið-
réttingar.
5) Fundurinn bendir á í þessu
sambandi hvort ekki megi taka fé
úr Framleiðslusjóði landbúnaðar-
ins s.b. 2. málsgr. 37 gr. laga um
framleiðslu, verðlagningu og sölu á
búvörum. Þá telur fundurinn að
auknar niðurgreiðslur á mjólk
myndu stórauka sölu.
6) Fundurinn vill undirstrika þá
staðreynd að landbúnaður á íslandi
er lang minnst styrktur af öllum
Evrópulöndum.
7) Fundurinn óttast mjög ef fram-
fylgt verður þeirri miklu skerðingu
á mjólkurframleiðslu sem boðuð
hefur verið, komi til verulegrar
vöntunar á mjólk á fyrsta verðlags-
svæði er líða tekur á sumarið og
menn búnir að fylla í sinn mjólkur-
kvóta.
8) Þá leggur fundurinn áherslu á þá
staðreynd, að fáist ekki veruleg
leiðrétting á fullvirðisrétti í mjólk-
urframleiðslu í Vestur-
ISkaftaf.sýslu hlýtur að skapast
neyðarástand á svæðinu, sem bitna
mun ekki einungis á bændum en
einnig þeim sem hafa óbeint fram-
færi sitt af landbúnaðarafurðum.
Til alþingismanna
Suðuriandskjórdæmis
Fundur haldinn í Búnaðarfélagi
Dyrhólahrepps, 15. febrúar 1986,
skorar á þingmenn Suðurlands-
kjördæmis, að þeir beiti sér fyrir
því af alefli, að stöðvaður verði,
allur innflutningur, landbúnaðar-
vara til Varnarliðsins, á Kefla-
víkurflugvelli, ef það mætti verða,
til þess að létta aðeins á þeirri
miklu umfram framleiðslu land-
búnaðarvara sem nú er í landinu.
Til Mjólkursamsölunnar í
Reykjavík og Mjólkurbús
Flóamanna Selfossi
Fundur í Búnaðarfélagi Dyr-
hólahrepps, haldinn að Ketilsstöð-
um 15. febrúar 1986, skorar ein-
dregið á Mjólkursamsöluna og
Mjólkurbú Flóamanna, að hefja nú
þegar framleiðslu, sölu og dreif-
ingu á 'A 1. fernum með venjulegri
gerilsneyddri nýmjólk. Þægilega
útbúnum til drykkjar, t.d. í nesti
fyrir skólabörn, börn í dagvistun,
skyndibitastaði, o.fl. En mjólk í
þannig pakkningum virðist einmitt
vanta á markaðinn. Fundurinn
bendir á að þetta yrði ódýrasti og
hollasti drykkjarkosturinn fyrir
neytendur og um leið sá þjóðhags-
lega hagstæðasti, mundi að öllum
líkindum stórauka mjólkursölu og
þá um leið minnka tannskemmdir
og fl. kvilla. Þá bendir fundurinn á
þá staðreynd að sumar af þeim
drykkjarvörum sem nú keppa við
mjólkina, eru blandaðar rotvarnar-
efnum og hlýtur mjólkin að hafa
þar yfirburði hvað hollustu snertir.
AÐ UTAN
Konur mótmæla kjarnorkuvopnum
Árið 1981 komu konur í Green-
ham á Englandi upp búðum við hcr-
stöð Bandaríkjamanna þar í sveit til
að mótmæla kjarnorkuvopnum.
Fjóru og hálfu ári síðar eru samt 96
kjarnorkuskotflaugar þegar komnar
til Greenham en konurnar eru
óhræddar.
Þrátt fyrir margar tilraunir til að
losna við þær eru þær stöðugt við
búðirnar, margar hverjar illa á sig
komnar, og trúa því og treysta að
mótmæli þeirra eigi sér tilgang. Um
40 konur á öllum aldri halda nú til við
herbúðirnar sem eru um 96 km vest-
ur af London. Þær eru þar en hafa
engar fastar mótmælaaðgerðir í
frammi og geta ekki sagt hversu lengi
þær verða. Bara að vera þarna er
þýðingarmikið. „Það mun vekja at-
hygli á óréttlæti þessa heims,“ segja
þær.
Margir halda að blaðafregn í síð-
asta mánuði um að Sovétnjósnarar
væru meðal þeirra, væri enn ein til-
raun til að fá almenningsálitið upp á
móti konunum. Fréttin birtist í viku-
blaðinu Jane’s Defence Weekly. Þar
var gefið í skyn að sérþjálfaðir
Sovétnjósnarar hefðu gengið til liðs
við konurnar og væru tilbúnir til at-
lögu ef Sovétríkin gerðu innrás.
Sovétríkin mótmæltu fréttinni og
mörg bresk blöð voru einnig á sama
máli. Blaðið The Guardian gerir þá
meinyrtu athugasemd að Greenham
sé enginn sældarstaður og Sovét-
njósnararnir megi vera ansi vel þjálf-
aðir ef þeir eigi að þola óþrifnaðinn
og kuldann. Ekkert húsaskjól, engin
hreinlætisaðstaða og oftast úrhellis-
rigning!
„Þegar við komum hingað fyrst
var litið á okkur sem lesbíur, dræsur
eða slæmar mæður, a.m.k. hræði-
lega heimskar og illa upplýstar um
varnir landsins.
Núna erum við álitnar bráðvel
greindar, vel þjálfaðar, en að sjálf-
sögðu álitnar vinna fyrir andstæðing-
inn,“ sagði ein kvennanna sem stödd
var við búðirnar.
Daglega fá þær heimsókn frá yfir-
völdum sem hafa það verkefni að
hreinsa mesta skítinn og óþverrann á
staðnum. Oftast ferþað þannigfram
að þrír sterklegir menn koma akandi
í sendibíl í fylgd lögreglu. Þá rjúka
konurnar til, vefja í flýti saman fleti
sín, grípa potta og pönnur. setja á
börur og leita á náðir nágrannanna.
Fílefldu mennirnir hirða þá allt sem
konurnar hafa ekki náð að taka sam-
an og slökkva tjaldbúðaeldinn.
Nokkrum mínútum síðar eru kon-
urnar aftur komnar á staðinn. Nær-
vera þeirra hefur mætt andúð í nær-
liggjandi borg Newbury, en þar er
þeim bannaður aðgangur að
veitingahúsum, verslunum og krám.
Lögreglan rannsakar nú kæru vegna
árásar á tvær konur er ráðist var á er
þær voru í fasta svefni.
Konurnar í Greenham trúa því að
andúðin gegn þeim sé sönnun þess
að nærvera þeirra veki andóf manna
gegn kjarnorkuvopnum.
Þær hafa oft brotist inn í herbúð-
irnar. Eitt sinn voru 22 konur dregn-
ar fyrir rétt vegna þess að þær óku
strætisvagni um hersvæðið og höfðu
ekið um 8 km áður en þær voru
stöðvaðar. Slík atvik sanna það að
öryggisgæslan er ekki í lagi, segja
þær, þrátt fyrir 1300 Bandaríkjaher-
menn.
Annað meiri háttar verkefni
kvennanna er að hindra flutninga
hernaðarvopna til Salsbury, en þar
fara sameiginlegar heræfingar fram.
Þessi flutningur á sér oftast stað að
næturlagi. Þá leggjast konurnar nið-
ur fyrir framan flutningalestina og elta
hana síðan þessa 48 km um landið.
Yfirmaður Bandaríkjahers í
Evrópu Charles Donnelly, skrifaði í
blað í fyrra að þeim tækist að komast
á æfingar í 75% tilvika. Yfirvöld
átelja mótmælakonurnar vegna auk-
ins kostnaðar lögreglu við flutning-
ana.
Þrátt fyrir að konurnar hafi séð
árangur á ýmsuni sviðum er það samt
staðreynd að hernaðarvopnin eru
komin til Greenham og verða þar um
ófyrirsjáanlega framtíð. En um-
heimurinn hefur tekið eftir ógn
kjarnorkuvopna. Þúsundir kvenna
hafa tekið sig saman í mótmælagöng-
ur. Nú sitja þær kringum varðeldinn
á köldum kvöldum og rifja upp sögur
af réttarhöldum og fangelsisdvöl.
Nokkrar kvennanna hafa innritað
sig í menntaskóla í bænum. Ein seg-
ist hafa byrjað að læra esperanto {
bréfaskóla en hætt eftir 2 tíma vegna
þess að námsefnið klíndist allt í mold
og leðju þegar yfirvöld staðarins
komu í eftirlitsferð.
TÍMARIT !- iililiWH ..laiWIÍ'" .„iJIIHaF! ..J.IJIIT1- .Mliiip1 ................................................................................................................................................................................................................................................................................................................................. ............................. ................................................................................. ......................................................................................... ............................ ................................................. ; ...........................
Æskan
Sigurður Helgi í opnuviðtali
Fjölbreytt efni er í 1. tölublaði
Æskunnar-á þessu ári. Þar er m.a.
„Opnuviðtalið“ við Sigurð Helga en
hann söng með föður sínum, Pálma
Gunnarssyni, á plötunni Friðarjól,
sem kom út fyrir síðustu jól. Sigurð-
ur Helgi segir frá gerð plötunnar, tal-
ar um áhugamál sín og lýsir drauma-
prinsessunni.
Veggmyndin að þessu sinni er af
tónlistarmanninum Billy Idol. Fjall-
að er í blaðinu um íslenska fram-
haldsmyndaþáttinn Á fálkaslóðum
og birtar myndir úr honum. Bjössi
bolla er í leynilögreglustarfinu og
gengur á ýmsu.
íris Stefánsdóttir, 14 ára, kynnir
bresku hljómsveitina Ultravox. Birt-
ar eru verðlaunaritgerðir í Pislasam-
Opnuviðtalið er við Sigurð Helga,
sem söng með Pálma, pabba sínum
inn á plötu.
keppni Æskunnar og Rásar 2 og
úrslit í Vinsældavali poppþáttarins.
Æskan er 56 síður og prentuð í
Odda hf. Ritstjórar eru Eðvarð Ing-
ólfsson og Karl Helgason. Útgefandi
er Stórstúka íslands.
Orðaleikur I og II
Verkefni fyrir grunnskólanema
Bjallan hf. hefur sent frá sér verk-
efnin Orðaleik, 1. og 2. hefti. Verk-
efnin eru fyrir grunnskólanema á
aldrinum 9-11 ára.
í Orðaleik eru verkefni í samfé-
lagsfræði og íslensku og ætluð að
örva nemendur í sjálfstæðum vinnu-
brögðum.
í bókunum er m.a. fjallað um
málshætti, myndlestur ,lesskilnings-
verkefni úr þjóðsögum og ævintýr-
um, gamlar gátur, bókfræði, svo sem
verkefni um titilblað, efnisyfirlit,
efnisorð, landakort, krossgátur,
myndagátur og fleira.
Hefti þessi eru ætluð sem ítarefni
fyrir grunnskólanema og kosta 150
krónur heftið.
Hver er ég?
Leiðarvisir í ættfræði
Nýlega kom út hjá Bjöllunni hf.
bókin Hver er ég? Leiðarvísir í ætt-
fræði eftir Herdísi Sveinsdóttur og
Ragnhildi Helgadóttur. Áhugi á ætt-
fræði hefur lengi einkennt Islendinga
og ættfræði er gildur þáttur í bók-
menntaarfi okkar.
í bókinni Hver er ég? er gengið út
frá einstaklingnum, fjallað um föð-
ur- og móðurætt hans, hvaðan af
landinu ættirnar eru og einnig er sýnt
hvernig hægt er að rekja ættir. Bókin
endar á ættfræðigátum úr íslend-
ingasögunum.
í bókinni Hver er ég? er hægt að líma
inn myndir af ættmennum. Á forsíðu
er gömul Ijölskyldumynd.