Tíminn - 05.12.1989, Page 13
Þriðjudagur 5. desember 1989
Tíminn 13
Konur á Suðurlandi
Minnum ykkur á framhaldsaðalfundinn og 5 ára afmælisfagnaðinn í
Hótel Selfoss miðvikudaginn 6. des. nk. kl. 20.00.
Dagskrá: Lagabreytingar.
Önnur mál.
Myndasýning.
Nýir félagar velkomnir.
Fjölmennum.
Félag framsóknarkvenna í Árnessýslu.
Framsóknarvist - Rangæingar
Sunnudaginn 10. des. kl. 21.00 verður næst síðasta umferð í
þriggjakvöldakeppninni spiluð á Hvolnum.
Kvöldverðlaun. Heildarverðlaun eru helgarferð til Akureyrar fyrir tvo,
að verðmæti kr. 25.000,-
Framsóknarfélag Rangæinga.
Suðurland
Skrifstofa kjördæmissambands framsóknarfélaganna, Eyrarvegi 15,
Selfossi er opin mánudaga og fimmtudaga kl. 15-17, sími 98-22547.
Lítið inn, kaffi á könnunni.
Stiórn KSFS.
Páll Pétursson Einar Bollason
Kópavogur
Fundur verður haldinn að Hamraborg 5, fimmtudaqinn 7. desember.
Páll Pétursson alþingismaður flytur erindi um Tsland, EFTA og
samninga við Evrópubandalagið.
Fundarstjóri verður Einar Bollason.
Allir velkomnir.
Framsóknarfélögin í Kópavogi.
Jólahappdrætti Framsóknarflokksins
Dregið verður 23. desember n.k.
Velunnarar flokksins eru hvattir til að greiða heimsenda gíróseðla fyrir
þann tíma.
Allar frekari upplýsingar veittar á skrifstofu flokksins eða í sima
91-24480.
Framsóknarflokkurinn.
Jólaalmanak S.U.F. 1989
Útdráttur hefst 1. desember. Gerið skil og leggið baráttunni lið.
Allar frekari upplýsingar í síma 91-24480 eða 91-21379 og á
skrifstofunni, Nóatúni 21, Reykjavík.
Velunnarar, látið ekki happ úr hendi sleppa.
Samband ungra framsóknarmanna.
Framsóknarfólk Norðurlandi vestra
Skrifstofur Framsóknarflokksins og Einherja, Suðurgötu 3 á Sauðár-
króki, verða fyrst um sinn opnar mánudaga kl. 13-17 og þriðjudaga
og miðvikudaga kl. 9-12, sími 36757.
Árnesingar - nærsveitir
Spilum félagvist í samkomuhúsinu í Borgarnesi, föstudaginn 8.
desember kl. 20.30.
Síðasta kvöldið í 3ja kvölda keppni.
Mætum vel og stundvíslega.
Framsóknarfélag Borgarness.
Keflavík
Aðalfundur fulltrúaráðs framsóknarfélaganna í Keflavík verður hald-
inn á Glóðinni laugardaginn 9. desember kl. 16.00.
Stjórnin.
Reykjanes
Skrifstofa kjördæmissambandsins, Hamraborg 5, Kópavogi, s.
43222, er opin mánudaga, þriðjudaga og fimmtudaga, kl. 17-19.
K.F.R.
Kópavogur - Opið hús
Framsóknarfélögin í Kópavogi hafa opið hús á miðvikudögum kl.
17.30 til 19.00.
SPEGILL
Edward prins fékk svartan hatt
í apríl sl. var Edward Bretaprins
á ferð í Sovétríkjunum og þá
kynnti hann sér auðvitað leikhús-
lífið, því að það er hans aðaláhuga-
mál.
Prinsinn kynntist rússneskum
nemendum í leiklistarskóla í
Moskvu, en það stóð einmitt til að
skólinn færi í haust í leikferð til
Englands með uppfærslu sína á
leikriti Arthurs Miller „í deigl-
unni“ (The Crucible). Edward
prins sagðist lofa því að koma á
sýninguna hjá þeim og heilsa upp
á hópinn.
Það loforð hélt hann í október
sl. þegar rússnesku leiknemend-
urnir voru á ferð í London og léku
í Hammersmith's Riverside The-
atre.
Þegar prinsinn kom að tjalda-
baki að óska hópnum til hamingju
með vel heppnaða sýningu, þá
varð hann bæði undrandi og glaður
þegar honum var færður svartur,
fínn hattur að gjöf. Hann sagðist
svo sannarlega ætla að nota hattinn
heilmikið. Prinsinn ungi er mjög
þunnhærður og notar mikið höfuð-
föt.
Michael Caine og Roger Moore í skotapilsum í myndinni „Hitt í mark“
Michael Caine og Roger Moore
í skotapilsum í nýrri mynd
Tvær kvikmyndahetjur breska
heimsveldisins eru nú við kvik-
myndaleik í Skotlandi. Það eru
þeir Michael Caine, 56 ára og
Roger Moore, sem er 62 ára. Báðir
eru þeir heimsþekktir fyrir leik í
kvikmyndum, enda hafa kapparnir
verið í kvikmyndabransanum árum
og áratugum saman. Michael Ca-
ine er sagður þekktastur fyrir
myndirnar „Endalok í Berlín" og
„Órninn er sestur", en Roger Mo-
ore frægastur sem 007-hetjan, en
hann lék James Bond í mörgum
myndum.
í Skotlandi er verið að taka upp
kvikmynd sem nefnd er „Bull's
Eye“ (Hitt í mark). Þar leika þeir
saman, Caine og Moore, en þetta
er gamanmynd um kjarnorkufræð-
ing og svikahrapp og njósnir.
Leikararnir eru glæsilegir í
skoska þjóðbúningnum, skotapilsi
og tilheyrandi, en eru augsýnilega
báðir nokkuð farnir að láta á sjá
með árunum. Snyrtimeistararnir
þurfa lengri tíma nú til að farða
þessa herra en hér áður fyrr, segja
þeir. Hárið er farið að þynnast, svo
hártoppar eru nauðsynlegir, og svo
þarf að „spartla" ofan í hrukkur og
sprungur, eins og á gömlum múr-
vegg fyrir málningu.
Kvikmyndin „Bull's Eye“ er að
mestu leyti tekin upp við Inverary
kastala í nágrenni við Glasgow.
Talað er um að kostnaður við
myndina verði um það bil 1,3
milljarðar íslenskra króna. Leik-
stjóri myndarinnar er Michael
Winner, en í einu af kvenhlutverk-
unum er Debbie Barrymore, sem
er dóttir Rogers Moore.