Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 2
2 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR FRÁ HÖFUNDI DA VINCI LYKILSINS HRINGUR TANKADOS EFTIR DAN BROWN ÓUMDEILDUR MEISTARI HINNAR ÚTHUGSUÐU SPENNUSÖGU SELD Í MEIRA EN 1.000.0 00 EINTÖK UM Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir frett@mbl.is Fréttastjórar Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Viðskiptablað vidsk@mbl.is Umsjón Björn Jóhann Björns- son, bjb@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Menning menning@mbl.is Fríða Björk Ingvarsdóttir, ritstjórnarfulltrúi, fbi@mbl.is Umræðan | Bréf til blaðsins Guðlaug Sigurðardóttir, ritstjórnarfulltrúi, gudlaug@mbl.is Sveinn Guðjónsson, svg@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók| Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Útvarp | Sjónvarp Hulda Kristinsdóttir, dagskra@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is Morgunblaðið í dag Yf i r l i t Í dag Sigmund 8 Menning 62 Staksteinar 8 Leikhús 68 Veður 8 Myndasögur 70 Daglegt líf 34/39 Krossgáta 72 Forystugrein 32 Dægradvöl 73 Viðhorf 34 Staður og stund 74 Umræðan 44/54 Dagbók 76 Bréf 48/49 Víkverji 76 Auðlesið 55 Velvakandi 76 Hugvekja 56 Bíó 74/77 Minningar 56/59 Ljósvakamiðlar 78 * * * Innlent  Jón Sigurðsson, formaður Fram- sóknarflokksins, sagði í ræðu sinni á miðstjórnarfundi flokksins í gær að forsendur fyrir stuðningi Íslands við innrásina í Írak hefðu verið rangar og að ákvarðanir íslenskra stjórn- valda í málefnum Íraks hefðu verið rangar eða mistök. Ákvarðanaferl- inu hefði einnig verið ábótavant. » 1  Pólverjar tækju undir óskir um aukið lofthelgiseftirlit ef Íslendingar legðu fram óskir þess efnis á vett- vangi Atlantshafsbandalagsins. Ekkert lofthelgiseftirlit hefur verið í Færeyjum og á Grænlandi um nokk- urt skeið og nú hefur Ísland bæst í hópinn. » Baksíða  Karl Steinar Valsson aðstoðaryf- irlögregluþjónn segir að tilkynn- ingum lögreglunnar í Reykjavík til barnaverndaryfirvalda hafi fjölgað tvöfalt á árunum 1999 til 2005 auk þess sem komið hafi upp tilvik á liðn- um árum sem hafi verið óþekkt áður. Tilkynningarnar hafi verið 1.146 1999 en 2.331 í fyrra. » Baksíða  Formaður Framsóknarflokksins, Jón Sigurðsson, sagði á miðstjórn- arfundi flokksins í gær að nauðsyn- legt væri fyrir flokkinn að aðgreina sig skýrlega frá öðrum flokkum. Framsóknarflokkurinn og Sjálf- stæðisflokkurinn hefðu ólíkar áherslur í ýmsum málum og djúp- stæður ágreiningur væri við stjórn- arandstöðuna. » 4  Hver lögreglumaður í fullu starfi á Blönduósi gaf að meðaltali út 361 sektarboð í fyrra. Það er átta sinn- um fleiri en lögreglumaður í öðrum embættum gaf út að meðaltali. » 4  Forsvarsmenn Sjóvár og VÍS telja mikilvægt að óvátryggð öku- tæki séu tekin úr umferð og lýsa vilja sínum til að stuðla að sem best- um árangri lögreglunnar í viðleitni hennar við að hafa uppi á þessum tækjum. » 6  Rekja má að minnsta kosti átta banaslys til þess að ökumaður sofn- aði undir stýri í umferðinni á Íslandi 1998 til 2005. Talið er að um 13% umferðarslysa, þar sem um fram- anákeyrslu sé að ræða, séu vegna syfju. » 6  Undirskriftalisti hefur verið sett- ur af stað á Fljótsdalshéraði þar sem skorað er á ríkisvaldið og sveitarfé- lagið að koma heilbrigðisþjónustu á svæðinu til betra horfs. » 4  Áhugafólk um verndun gamla barnaskólans á Hólmavík hefur á nýjan leik hafið undirskriftasöfnun en nú er óskað eftir því að sveit- arstjórn Strandabyggðar verndi húsnæði skólans. Fyrr í vikunni samþykkti sveitarstjórnin að verða við áskorun frá um sjötíu íbúum þar sem farið var fram á að veittur yrði frestur á niðurrifi hússins. » 8 Erlent  Síðari umferð forsetakosninga fer fram í Ekvador í dag og stendur valið á milli Alvaro Noboa og Rafael Correa. Noboa fékk 26,8% í fyrri umferðinni og Correa 22,8%. » 22 Eftir Andra Karl andri@mbl.is „ÞETTA mun óhjákvæmilega leiða til þess að ódýrara léttvín mun hækka í verði,“ segir Andrés Magn- ússon, framkvæmdastjóri Félags ís- lenskra stórkaupmanna, um ákvörð- un fjármálaráðherra að hækka áfengisgjald á sama tíma og virðis- aukaskattur verður lækkaður í 7% en breytingin er gerð til að sam- ræma álagningu virðisaukaskatts á vörur og þjónustu hjá hótelum og veitingastöðum. Andrés segist geta slegið því föstu að um áttatíu prósent af því léttvíni sem almenningur kaupi sé undir 1.300 krónum og því muni þessi breyting hafa áhrif á pyngju almenn- ings. Hann segir gagnrýnivert að á meðan virðisaukaskatturinn sé lækkaður sé laumað inn verðhækkun á áfengi í söluhæstu flokkum. Í Morgunblaðinu í gær sagði Árni Mathiesen fjármálaráðherra að verðbreytingar yrðu ekki stórvægi- legar. „Álagningin sem er óháð verð- inu hækkar en álagningin sem er háð verðinu lækkar. Áfengi sem er þá dýrara lækkar en það sem er ódýr- ara hækkar innan sömu áfengisteg- undar.“ Andrés segir þetta vera afturför þar sem afgerandi þáttur í ákvörðun viðskiptavina við val á víni sé verðið. Án þess að hafa forsendur frum- varpsins fyrir framan sig segist hann telja að hækkun á flösku af léttvíni sem kostar þúsund krónur í dag myndi nema um hundrað krónum. „Vín sem kostar í kringum þúsund til tólf hundruð krónur hækkar hlut- fallslega meira en dýrara vín og þá kemur þetta til með að hafa bein áhrif á neytandann,“ segir Andrés og bætir við að neytandinn hefði frekar átt að njóta góðs af breytingunum. Leiðir til verðhækkana í flokki ódýrari léttvína Ákvörðun ráðherra um hækkun áfengisgjalds gagnrýnd Í HNOTSKURN »Samkvæmt frumvarpifjármálaráðherra lækkar virðisaukaskattur á áfengi í 7% þrep 1. mars nk. »Á móti á áfengisgjald aðhækka og mun líkast til skila 3,8 milljörðum í rík- iskassann. »Þetta mun leiða af sér aðdýrara vín lækkar í verði en ódýrara vín innan sömu áfengistegunda hækka. ÞÓTT kuldaboli hafi ráðið ríkjum á landinu undan- farna daga stöðvar það ekki hörkutól sem hjóla um borgina. Veður ætti þó að fara hlýnandi á næstu dögum og stefnir í rigningu um miðja næstu viku. Það er trú- lega verra en frost og stillur undanfarinna daga fyrir hjólreiðamenn og aðra sem njóta útivistar. Morgunblaðið/G. Rúnar Hjólað um borgina í frosti og logni ODDVITI Samfylkingarinnar í bæj- arstjórn Kópavogs segir ummæli Gunnars I. Birgissonar, bæjarstjóra Kópavogs, þess efnis að Samfylking- unni sé margt betur gefið en að segja sannleikann, dæma sig sjálf. „Gunnar hefur þennan háttinn á þegar hann verður rökþrota, að segja menn bulla og ljúga, slík um- mæli bæjarstjórans dæma sig sjálf,“ segir Guðríður Arnardóttir, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi. „Við erum einfaldlega með gögn sem hafa verið lögð fram í skipulagsnefnd og bæjarstjórn, og við lesum þessar töl- ur beint upp úr þeim. Maður þarf ekki annað en að kunna að lesa til að geta skilið þessi gögn.“ Samfylkingin deildi á mikla fjölg- un íbúa í vesturbæ Kópavogs, og gagnrýndi kynningu á skipulags- breytingunum. Bæjarstjórinn hafn- aði þessum mál- flutningi, og sagði staðreyndina þá að fækkað hefði um 400 íbúa í vesturbæ Kópa- vogs. „Það skiptir engu máli þótt íbúum á Kársnesi hafi fækkað á undanförnum ár- um. Staðreyndin er sú að miðað við núverandi íbúafjölda og þau gögn sem liggja fyrir, gæti íbúafjöldi allt að tvöfaldast,“ segir Guðríður. Kynningarferli snúið við Þetta velti þó á því hvers konar byggð myndist þarna, en í útreikn- ingum sínum sé miðað við fjölda íbúða sem fyrirhugað sé að reisa á svæðinu, og einfaldlega reiknað með þremur íbúum í hverri íbúð. Gagnrýni Samfylkingarinnar hef- ur einnig beinst að því að kynning- arferli fyrir íbúa hafi verið snúið við. „Það var samþykkt um miðjan ágúst í sumar að byrja á því að kynna rammaskipulag fyrir þessar viða- miklu breytingar sem standa til úti á Kársnesi. Í framhaldi af því átti að fara í að auglýsa breitt deiliskipulag á ákveðnum reitum innan þess rammaskipulags. Það sem gerist svo er að rammaskipulaginu er frestað í kynningu, en þessir litlu reitir innan skipulagsins eru reknir í gegn í aug- lýsingum.“ Af þessu leiði að fólk nái ekki að meta heildarmyndina, heldur þurfi að mynda sér skoðun á áhrifum breytinganna miðað við einn reit í einu, segir Guðríður. Hafnar ásökunum um lygar Samfylkingarinnar Guðríður Arnardóttir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.