Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 10
H ver er staða öryggismála í Norður-Atlantshafi þegar bandaríska varn- arliðið er farið frá Ís- landi? Þegar tómarúm skapast getur það virkað eins og opið boðskort, bæði til þeirra, sem kunna að hafa eitthvað misjafnt í huga, og hinna, sem kunna að vilja taka upp þráðinn. Það er því ekki víst að allir, sem skoði boðskortið, séu velkomnir. Norðmenn voru fyrstir til að bregðast við brottför varnarliðsins frá Keflavík og eru þeir tilbúnir að auka samstarf við Ísland í öryggis- og varnarmálum og jafnvel að senda orrustuþotur og eftirlitsvélar reglu- bundið til landsins. Í Morgunblaðinu fyrir viku kom skýrt í ljós að þeim er fullkomin alvara og telja að aukið eft- irlit á Atlantshafi þjóni þeirra örygg- ishagsmunum. Á föstudag tilkynntu Geir H. Haarde forsætisráðherra og Jens Stoltenberg, hinn norski starfs- bróðir hans, að formlegar viðræður milli Íslands og Noregs myndu hefj- ast um þessi mál nú fyrir jól. Ekki eini staðurinn þar sem dregið hefur úr viðbúnaði Aðrir bandamenn Íslendinga eru mun skemmra á veg komnir en Norðmenn í greiningu sinni á örygg- ismálum norður í Atlantshafi, ef þeir eru þá farnir að leiða hugann að þeim. Það er hins vegar ljóst að fimmta grein stofnsáttmála Atlants- hafsbandalagsins, sem kveður á um varnarskuldbindingu gagnvart ein- stökum ríkjum þess, er í þeirra huga í fullu gildi og leggi Íslendingar fram erindi þar sem fram kemur að á Ís- landi hafi vaknað áhyggjur um að ör- yggi landsins sé ógnað vegna skorts á eftirliti verður það tekið til ræki- NATO MUN HLUSTA Öryggismál í Norður-Atlants- hafi eru ekki efst á baugi í um- ræðum innan Atlantshafs- bandalagsins um þessar mundir. Í höfuðstöðvum banda- lagsins í Brussel fer þó ekki á milli mála að telji Íslendingar að þeir séu nú berskjaldaðir og taki öryggismál sín upp á vett- vangi NATO verði því erindi tekið af alvöru. Misjafnt er eftir því við hverja er talað hvort tal- in er ástæða til að Bandaríkja- menn verði með einhverjum hætti leystir af hólmi. Pólverjar myndu líta slíkt erindi með miklum velvilja, en Frakkar segjast engar vísbendingar hafa um að öryggismálum sé áfátt á þessum slóðum. EPA Breytt bandalag Viðfangsefni Atlantshafsbandalagsins hafa breyst eftir lok kalda stríðsins. Nú eru hryðjuverk talin helsta hættan, sem steðji að aðildarríkjum NATO. Hér er flaggað í hálfa stöng í höf- uðstöðvum NATO í Brussel eftir að hryðjuverkamenn sprengdu sprengjur í þremur neðanjarðarlestum og strætisvagni í London í júlí í fyrra. Eftir Karl Blöndal kbl@mbl.is UTANRÍKIS- OG ÖRYGGISMÁL ÍSLANDS Minni viðbúnaður Herflugvélar á Thule-flugvelli. Danir vekja athygli á því að dregið hafi úr viðbúnaði víðar en á Íslandi, m.a. á Græn- landi, þar sem nú sé aðeins ratsjár- stöðin í Thule eftir. » 14 Eftirlit á hafi Norsk Orion- eftirlitsflugvél á herflugvelli á Sik- iley. NATO hefur haldið uppi eft- irliti á Miðjarðarhafi til að sporna gegn hryðjuverkum og glæpum. Bandalagið vill auka vitneskju sína um það, sem er að gerast á höf- unum. » 16 Samskiptin við Rússland Fram- kvæmdastjóri NATO, Jaap de Hoop Scheffer, fundar með Vladímír Pút- ín Rússlandsforseta. Ólík sjónarmið eru uppi meðal NATO-ríkja varð- andi samstarf við Rússa. » 16 Skip eða leiðsla? Rússar hyggjast nú flytja gas um leiðslu til Evrópu fremur en með skipum til Banda- ríkjanna. Það hefur áhrif á matið á stöðunni á N-Atlantshafi. » 16
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.