Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 40
40 SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 MORGUNBLAÐIÐ 28. nóvember 1976: „Spurn- ingin nú er því sú með hverj- um hætti unnt er að tryggja kjarabætur án þess að um miklar beinar launahækkanir verði að ræða. Þetta er í raun- inni spurning, sem snýr ekki sízt að ríkisstjórninni. Það hef- ur jafnan á hinum síðari árum verið stefna Alþýðusambands- ins að það skipti ekki höf- uðmáli í hvaða formi kjarabót- in komi og telja verður að sú stefna sé óbreytt. Nú þurfa menn að átta sig á því í sam- einingu, hvort unnt er að tryggja hinum lægst launuðu, sem eru fyrst og fremst ákveðnir hópar ófaglærðra verkamanna, iðnverkafólk, ákveðnir hópar í verzl- unarmannastétt og meðal op- inberra starfsmanna og ýmsir lífeyrisþegar kjarabætur, þótt aðrar og betur launaðar stéttir geti ekki búizt við kjarabótum til jafns við þá sem best eru settir. Hér kemur margt til greina. Hugsanlegt er að ná fram kjarabótum með skatta- lækkunum. Vandinn er sá, að hinir lægst launuðu borga lít- inn sem engan tekjuskatt. Út- svarið, sem er brúttóskattur, kann hins vegar að vera orðið þessu fólki nokkur byrði.“ . . . . . . . . . . 23. nóvember 1986: „Þess má sjá ýmis merki, að hætta er á því, að verðbólgan aukist á ný og efnahagsmálin fari úr bönd- um. Tvö ríkisfyrirtæki hafa til- kynnt að þau muni óska eftir gjaldskrárhækkunum á næst- unni, Landsvirkjun og Póstur og sími. Landsvirkjun lækkaði gjaldskrá sína hinn 1. marz sl. um 10% og byggði þá á þeirri forsendu, að verðbólgan í ár mundi nema um 7–9%. Nú tel- ur Landsvirkjun að verðbólg- an í ár verði um 14% og stefnir að 10–16% hækkun um ára- mót. Póstur og sími telur sig þurfa 30–40% hækkun á gjald- skrá til þess að mæta fyr- irsjáanlegum hallarekstri á þessu ári. Um næstu mánaðamót hækka laun almennt um 2,5% skv. þeim kjarasamningum, sem gerðir voru fyrr á þessu ári. Til viðbótar ber sameiginlegri launamálanefnd ASÍ og VSÍ að ræða um hugsanlega launa- hækkun vegna þess, að hækk- un framfærsluvísitölu hefur orðið meiri en gert var ráð fyr- ir í samningsgerðinni. Leiði þær viðræður til almennra kauphækkana þýðir það að kaup hækkar almennt um nær 4,6% eftir rúma viku.“ . . . . . . . . . . 24. nóvember 1996: „Evrópu- sambandsríkin stefna mark- visst að því að taka upp sam- eiginlegan gjaldmiðil eftir tvö ár. Hvert ríkið á fætur öðru gerir nú ráðstafanir til þess að uppfylla þau skilyrði, sem sett eru fyrir þátttöku frá upphafi. Umræður um áhrif sameig- inlegs gjaldmiðils á hagsmuni okkar Íslendinga hafa verið mjög takmarkaðar. Þess vegna er það fagnaðarefni, að Íslandsbanki hf. og Lands- nefnd Alþjóða verzlunarráðs- ins hafa haft frumkvæði um það síðustu daga að efna til kynningarfunda um hinn sam- eiginlega gjaldmiðil og áhrif hans. Sigurður B. Stefánsson, fram- kvæmdastjóri Verð- bréfamarkaðar Íslandsbanka hf., flutti afar athyglisverða ræðu um þetta mál á aðalfundi Landsnefndar Alþjóða verzl- unarráðsins í fyrradag. Hann sagði m.a.: „Þegar við bætist að hagkerfið sjálft er það minnsta í veröldinni með sjálf- stætt peningakerfi svo og að útflutningstekjur eru í eðli sínu nokkuð sveiflukenndar, er að mínu áliti erfitt að finna nokkur haldbær rök af hálfu jafnlítillar þjóðar og Íslend- inga fyrir því að reka alveg sjálfstætt myntkerfi.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Einar Sigurðsson. Styrmir Gunnarsson. Forstjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. VIÐRÆÐUR VIÐ NORÐMENN Geir H. Haarde, forsætisráð-herra, skýrði frá því í gær, aðhann og Jens Stoltenberg, forsætisráðherra Norðmanna, hefðu komið sér saman um að formlegar viðræður á milli Norðmanna og Ís- lendinga um samstarf á vettvangi varnar- og öryggismála hæfust fyrir jól. Er gert ráð fyrir að fyrsti fund- urinn verði í Ósló og að þeim komi af okkar hálfu fulltrúar frá utanríkis- ráðuneyti, forsætisráðuneyti og dómsmálaráðuneyti. Þetta er mikil- væg ákvörðun og ánægjulegt að svo fljótt skuli brugðizt við breyttum að- stæðum í öryggismálum okkar Ís- lendinga. Í ítarlegri úttekt Ólafs Þ. Stephen- sen, aðstoðarritstjóra Morgunblaðs- ins, hér í blaðinu fyrir viku kom fram, að mikill áhugi er á því meðal stjórn- málamanna og hernaðaryfirvalda í Noregi að taka upp náið samstarf við okkur Íslendinga á þessu sviði. Áður hafði slíkur áhugi komið fram m.a. í persónulegum viðtölum forsætisráð- herra við norska ráðamenn. Sameiginlegir öryggishagsmunir okkar Íslendinga og Norðmanna á Norður-Atlantshafi eru augljósir. Um þá var fjallað ítarlega hér í Morg- unblaðinu fyrir rúmum 30 árum, þeg- ar miklar umræður fóru fram um varnarmál Íslands vegna áforma þá- verandi vinstri stjórnar um að loka varnarstöðinni í Keflavík. Þeir eru augljósir nú þótt með öðr- um hætti sé en þá. Það sýnist nokkuð ljóst að svarið við því, hvernig við eig- um að tryggja öryggi okkar í framtíð- inni eftir að bandaríska varnarliðið er horfið af landi brott, felst meðal ann- ars í nánara samstarfi við Norðmenn. Gera má ráð fyrir, að í þeim við- ræðum, sem fram fara á milli þjóð- anna tveggja, komi upp alls kyns vandamál, sem verður að leysa. Þess vegna má vel vera að þessar viðræður taki nokkurn tíma og ekki við öðru að búast. Um álitamálin í þessu sambandi sagði Valur Ingimundarson, prófess- or í sagnfræði við Háskóla Íslands, m.a. á fundi um öryggismál Íslands fyrir nokkrum dögum: „Tveimur spurningum er ósvarað. Í fyrsta lagi hvort íslenzk stjórnvöld vilji gera þetta formlega innan loft- ferðaeftirlits Nató eins og Norðmenn vilja og leggja áherzlu á. Því hefur ekki verið svarað. Í öðru lagi hvort Bandaríkjamenn styðji málið eins og þeir lofuðu árið 2004, en þetta kom upp þá, þegar deilan stóð um orrustu- þoturnar hér.“ Vafalaust munu viðræður okkar og Norðmanna m.a. snúast um fyrra at- riðið, sem Valur nefnir. Hitt liggur ekki endilega í augum uppi að það skipti máli hver afstaða Bandaríkja- manna er til samstarfs okkar og Norðmanna. Það er að vísu í gildi varnarsamningur milli Íslands og Bandaríkjanna en hann kemur ekki í veg fyrir, að við tökum okkar eigin ákvarðanir í öryggismálum óháð því hver afstaða Bandaríkjamanna er til þess. Ef varnarsamningurinn veldur einhverjum vandkvæðum í því sam- bandi er væntanlega hægt að breyta honum. Kjarni málsins er sá, að ríkis- stjórnin hefur tekið skjótar ákvarð- anir til þess að koma í veg fyrir, að tómarúm skapist í öryggismálum. Því ber að fagna og ganga má út frá því sem vísu að þessum viðræðum verði hraðað eins og kostur er. Í Morgunblaðinu í gær, föstudag, birtist frásögn af fundi, sem efnt var til undir heitinu: Opinberar stofnanir í orrahríð fjölmiðla og hagsmunasamtaka. Þar töl- uðu þeir Friðrik Sophusson, forstjóri Landsvirkjunar, og Magnús Pétursson, forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss, sem báðir hafa reynslu af því að stjórna stofnunum í „orrahríð fjölmiðla“, sem vafalaust er umtalsverð lífsreynsla. Á fundi þessum beindi Magnús Pét- ursson nokkrum orðum að Morgunblaðinu og um- fjöllun þess um spítalann og það gerði Siv Frið- leifsdóttir heilbrigðisráðherra raunar líka. Á fundinum sagði Magnús Pétursson m.a.: „Mér sýnist sumir fjölmiðlar, og ég nafngreini Morgunblaðið, telji heppilegra að þeir veki við- brögð lesenda við fréttum, umfjöllun og leiðurum með því að taka afstöðu til manna og málefna fremur en að setja fram hlutlausar fréttir.“ Forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss bætti svo við: „Þetta má vel vera rétt afstaða fyrir málefnalega, lýðræðislega umfjöllun í landinu – ég er ekki að hafna þessu, en hitt þykir mér einnig koma sterklega til álita að upplýstir lesendur dragi mestar ályktanir af vönduðum fréttum þar sem flestum hliðum mála er lýst og þær settar fram. Fyrir minn smekk eru það vönduðustu fjöl- miðlarnir, sem hafa burði til að varpa ljósi á sem flestar hliðar mála og hafa rúm fyrir sjónarmið fólks í samræmi við það.“ Og Magnús Pétursson sagði ennfremur: „Það sem ég á við er það, að í þeirri greiningu, sem ég hef fengið (frá Fjölmiðlavaktinni) kemur fram, að Morgunblaðið er sá fjölmiðill, sem tekur mest af- stöðu til málefna, sem varða heilbrigðismál eða spítalann (LSH). Eitthvað af því er jákvætt, annað neikvætt og annað er hlutlaust en ég hef ekki kom- ið nálægt því hvernig það mat er unnið, ég verð bara að taka því eins og nýju neti … Þar kemur fram að 60% af umfjöllun Morgunblaðsins eru með afstöðu. Það er hærra en annars staðar í öðrum fjölmiðlum. Ríkisútvarpið sem kannski á að vera hlutlaust er þó með um 40% þar sem er (gildis) hlaðin afstaða … Ég hef ekkert á móti því að menn hafi afstöðu, það er allt í lagi. En ég vil að lesand- inn átti sig á því þegar fjölmiðill hefur afstöðu og það eru margir vandaðir og góðir fjölmiðlar sem hafa það en lesandinn verður að átta sig á því.“ Í frásögn af þessum umræðum hér í Morgun- blaðinu segir jafnframt: „Í samtali við Morgun- blaðið eftir fundinn, þar sem Magnús var beðinn um að skýra þessa afstöðu nánar, sagði hann að þegar hann segi, að 60% af umfjöllun Morgun- blaðsins séu hlaðin afstöðu sé hann að vitna í út- tekt sem Fjölmiðlavaktin vann fyrir LSH. Þar sé ekki greint á milli aðsends efnis, forystugreina blaðsins og frétta í blaðinu, inn í tölunni sé allt þrennt. Spurður hvort hann telji að í fréttum um LSH sem birtar eru í Morgunblaðinu sé tekin af- staða sagði Magnús: „Ég held að það sé, já, ég geri ekki lítið úr því. Ég tel að fréttir séu gildishlaðnar og þær geta verið gildishlaðnar jákvætt eða nei- kvætt.“ Og ennfremur segir: „Aðspurður hvort honum finnist Morgunblaðið skera sig úr hvað þetta varð- ar, sagði Magnús: „Samkvæmt því, sem ég hef um þetta er allt sem í blaðinu er gildishlaðnara en hjá öðrum fjölmiðlum.““ Á umræddum fundi sagði Siv Friðleifsdóttir heilbrigðisráðherra m.a.: „Ég hef tekið eftir því, að Morgunblaðinu er frekar uppsigað við Land- spítalann og við ýmislegt, sem átt hefur sér stað í heilbrigðismálum. Ég hef ákveðnar skýringar á því sem ég ætla að halda fyrir sjálfa mig.“ Síðan segir í frásögn Morgunblaðsins af fund- inum: „Siv tók sem dæmi að Morgunblaðið hafi haldið því á lofti að andrúmsloft þöggunar ríkti á LSH. Blaðið hafi einnig tekið með fremur órétt- mætum hætti upp úr viðhorfum landlæknis, þar sem aðeins hafi verið fjallað um það sem var óþægilegt fyrir LSH en ekki það sem var já- kvætt.“ Það er erfitt að finna orðið gildishlaðið í orða- bókum en ummæli Magnúsar Péturssonar verða ekki skilin á annan veg en þann, að hann sé að halda því fram að fréttir Morgunblaðsins af mál- efnum spítalans séu litaðar, í fréttunum komi fram afstaða blaðsins til þeirra mála, sem um er fjallað og að hann beiti Fjölmiðlavaktinni fyrir sig í þessu sambandi og telji sig hafa undir höndum skýrslu eða greiningu frá því fyrirtæki, sem sýni fram á þetta. Ummæli hans benda til þess að hann hafi ekki sjálfur farið rækilega ofan í þessa skýrslu heldur tekið henni eins og „nýju neti“, svo vitnað sé til orða hans sjálfs. Það geta nú varla talizt vönduð vinnubrögð hjá forstjóra Landspítala – há- skólasjúkrahúss að koma fram með alvarlegar ásakanir á hendur Morgunblaðinu á opinberum vettvangi án þess að hafa farið rækilega ofan í þau gögn, sem hann leggur þeim ásökunum til grund- vallar. Hér með er skorað á Magnús Pétursson að leggja þessa skýrslu fram, svo að hver og einn, sem áhuga hefur á geti kynnt sér hvort forstjóri spítalans fer með rétt mál þegar hann leggur skýrslu Fjölmiðlavaktarinnar út á þennan veg. Er ekki sjálfsagt að gera það? Fáránlegur málflutningur M álflutningur Magnúsar Péturs- sonar í garð Morgunblaðsins á umræddum fundi var fárán- legur eins og raunar kemur fram í ummælum hans sjálfs. Í orðum hans er allt sett í einn stóran grautarpott, sem Magnús hrærir svo í. Í stórum dráttum má segja, að fjallað sé á síðum Morgunblaðsins um málefni Landspítala – há- skólasjúkrahúss með þrennum hætti. Í fyrsta lagi birtir blaðið fréttir af málefnum spítalans. Þar er að finna upplýsingar um málefni spítalans og um- sagnir nafngreindra aðila innan og utan spítalans um þau málefni, sem fréttin snýst um. Það væri fróðlegt að sjá, hvort Magnús Pétursson gæti sýnt fram að fréttir Morgunblaðsins um málefni spít- alans séu litaðar af skoðunum blaðsins. Svo er auð- vitað ekki. Þegar fyrirtæki á borð við Fjölmiðla- vaktina greinir fréttir í jákvæðar fréttir eða neikvæðar fréttir, telst það t.d. „neikvæð“ frétt ef Morgunblaðið birtir frétt um að spítalinn sé kom- inn yfir mörk fjárlaga í rekstri sínum. Það liggur í augum uppi, að ekki verður komizt hjá því að birta slíkar fréttir og þær eru neikvæðar í þeim skiln- ingi, að stofnunin stendur frammi fyrir ákveðnu vandamáli en það er ekki neikvæðni af hálfu Morg- unblaðsins í garð spítalans, að birta slíka frétt. Það er einfaldlega sjálfsagt í opnu og lýðræðislegu samfélagi að birta slíka frétt eða er Magnús Pét- ursson ekki sammála því? Ef Morgunblaðið birtir t.d. frétt um það að spít- alanum hafi tekizt að eyða einhverjum biðlistum er það „jákvæð“ frétt í skilningi Fjölmiðlavaktarinn- ar en hefur ekkert með að gera hvort blaðið sem slíkt er jákvætt eða neikvætt í garð spítalans. Það er einfaldlega frétt, sem sjálfsagt er að birta. Nátengt fréttum eru svo fréttaskýringar um málefni spítalans, sem Morgunblaðið birtir stöku sinnum. Fréttaskýringar eru skrifaðar undir nafni viðkomandi blaðamanns og í fréttaskýringum hef- ur blaðamaðurinn svigrúm til að koma fram með sínar skoðanir, þótt því sé haldið í lágmarki. Fyrir tæpum tveimur árum fól ritstjórn Morgunblaðsins einum hæfileikaríkasta blaðamanni yngri kynslóð- arinnar á blaðinu, Sunnu Ósk Logadóttur, að vinna ítarlega úttekt á málefnum Landspítala – háskólasjúkrahúss. Blaðamaðurinn lagði í þetta mikla vinnu og einbeitti sér nær eingöngu að þessu verkefni í þrjá mánuði. Úttektin birtist hér í blaðinu snemma sumars árið 2005. Blaðamaðurinn fékk sérstök verðlaun fyrir þessa úttekt. Varla getur það verið gagnrýnisvert að Morgunblaðið leggi svo mikla vinnu í umfjöllun um eina mik- ilvægustu stofnun landsmanna? Í öðru lagi lýsir Morgunblaðið stöku sinnum skoðunum sínum á málefnum Landspítala – há- skólasjúkrahúss. Það er gert í forystugreinum blaðsins, hér í Reykjavíkurbréfum og jafnvel í Staksteinum. Í þessum tilvikum er um ritstjórn- argreinar að ræða og lesendum blaðsins ljóst að þar er Morgunblaðið sjálft að lýsa skoðunum sín- um til þessara málefna. Ekki fer á milli mála hver ábyrgð ber á þessum skrifum. Nafn hins sama er birt í blaðinu dag hvern Í þriðja lagi birtir Morgunblaðið aðsendar greinar frá fólkinu í landinu um málefni Landspít- ala – háskólasjúkrahúss. Þar birtast skoðanir við- komandi einstaklinga, sem Morgunblaðið hefur ekkert með að gera. Það getur komið fyrir í stöku tilvikum, að ritstjórn blaðsins geri athugasemdir við framsetningu greinahöfunda, fyrst og fremst þó ef talið er að greinahöfundar séu að brjóta meiðyrðalöggjöf, en einnig ef nafngreindir ein- staklingar eru uppnefndir í viðkomandi greinum. Sumt af þessu eru greinar, sem starfsmenn Land- spítala – háskólasjúkrahúss skrifa, í öðrum tilvik- um fólk, sem hefur átt samskipti við spítalann og í enn öðrum tilvikum eru þessar greinar eftir fólk, sem hefur einfaldlega áhuga á málefnum spítalans og nýtir sér lýðræðislegan rétt sinn til að láta skoðun sína í ljós. Er Magnús Pétursson ekki sam- mála því, að það sé sjálfsagt að fólk innan og utan spítalans lýsi skoðunum sínum? Í Morgunblaðinu í gær, föstudag, kemur fram að Magnús Pétursson blandar þessum efnisþátt- um öllum saman. Með því að blanda saman frétt- um, leiðurum og aðsendum greinum fær hann út þá niðurstöðu, að umfjöllun Morgunblaðsins sé það, sem hann kallar „gildishlaðin“. Þetta er svo ótrúleg vitleysa, að engu tali tekur. Er forstjóri Landspítala – háskólasjúkrahúss að Laugardagur 25. nóvember Reykjavíkur
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.