Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 65

Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 65
Í safni drottningar í nágrenni Viktoríustöðvarinnar í London, dvaldi ég langalengi við skoðun sýn- ingar á teikningum meistarans fyrir liðlega ári sem ég greindi seinna frá í Sjónspegli, en hyggst engan veg- inn herma af henni hér. Vík aðeins að viðamiklu úrvali bóka um lista- manninn sem falar voru í sölubúð og listaverkabókum yfirleitt. Bæk- urnar voru af öllum stærðum og gerðum, og hin viðamesta, mikil og stór um sig og afskaplega vel hönn- uð,væri í senn stöðutákn eigenda og djásn hvers heimilis. En stærð og flottheit bóka um listamenn er ekki veigurinn heldur innihaldið og hönn- unarleg útgeislun þeirra, jafnframt sá áhugi sem þær kunna að vekja hjá kaupandanum, og þannig séð er ég að vissu leyti mun ánægðari með litlu kiljuna en ég hefði nokkru sinni orðið með þá stóru. Augljóst að ég gæti ekki gengið með hana í vas- anum, þyrfti helst hjólbörur til vilji maður hafa slíka doðranta með- ferðis, en engan veginn er ég að lasta birtingarmyndina né prédika einhvern sósíalisma í útgáfu bóka, þar skal fjölbreytni ríkja … Aðra kilju af svo til ná-kvæmlega sömu stærð enþriðjungi færri blaðsíður,rakst ég einnig á við til- tektirnar og var þar komin: „Den Munch jeg mødte“, eftir Inger Alver Gløersen sem fjallar um ævilöng kynni höfundar af málaranum. Þetta var önnur dularfull tilviljun því nokkur skyldleiki þykir með snill- ingunum, þó helst hvað náðargáfu og útlit snertir og prófíll þeirra hafði augljósar hliðstæður. Nú þekkti ég Aage Marcus ekki neitt en listasaga Maríu Marcus, sem gæti hafa verið eiginkona hans eða dóttir, var með þeim fyrstu sem ég keypti um dagana. Hugkvæmdist því miður ekki að nota bókasafnið góða á Aka- demíunni árin mín þar, áhugi minn á þeirri hlið listnáms og listmiðlunar öllu minni en seinna varð. Hins veg- ar kynntist ég Inger í sambandi við dvöl á heimili og vinnustofu vinar míns, málarans Snorre Andersen í Ramsnes, í nágrenni Åsgårdstrand, staðnum sem Munch gerði ódauð- legan í verkum sínum. Einn daginn heimsóttum við Snorre gömlu kon- una sem tók vel á móti okkur og gaf mér bókina sína sem hafði komið út 1956 og endurútgefin 1962. Bókin fékk mjög góða dóma og Jean Hei- berg prófessor við listakademíuna í Ósló lét svo um mælt, að hann hafi trauðla lesið neitt sem jafnskil- merkilega hafi greint sér frá mann- inum að baki sköpunarferlinu. Inger þessi var stjúpdóttir Sigurd Høst málfræðings og lektors sem keypti fyrsta málverkið sem Munch seldi um dagana og fleiri eftir það. Ein- dregin bakhjarl og ráðgjafi mál- arans sem sjálfur var heimagangur í húsi hans í Borre í nágrenni Åsgår- dstrand, hvar Munch undi hag sín- um mikið vel og átti sér uppáhalds- hægindastól úr leðri. Gamla konan vildi einhverra hluta vegna endilega að ég settist í þennan stól en Snorre hafði greint frá áhuga mínum á listamanninum og að ég hafði skrif- að nokkrar greinar um hann. Hún sagði sig eiga safn merkilegra ljós- mynda tengdar Munch sem aldrei hefðu komið fyrir sjónir almennings og fékk um leið þá hugmynd að ég miðlaði þeim fyrstur manna svo fremi sem ég hefði áhuga á að skrifa bók um snillinginn. Ég kom alveg af fjöllum en í framhaldinu vorum við í bréfasambandi næstu árin, áður hafði hún boðið Munchsafninu í Ósló ljósmyndirnar til kaups en það hafði ekki sýnt tiltakanlegan áhuga sem fór bersýnilega illa í hana. Safnið mun hafa fengið ávæning af þessu og seinna frétti ég að það hafði fest sér myndirnar og um leið hætti gamla konan að skrifa mér. Helstur grunnur hugmyndarinnar um að ég skrifaði bók um listamanninn um leið brostinn, en gaf hana þó ekki al- veg upp á bátinn, aðrar og nærtæk- ari ástæður komu til … Fór að hugsa til þess að við-líka kiljur um íslenskamyndlistarmenn eru allsóþekktar á Íslandi, og ef það væri í farvatninu að skrifa um einhvern settu menn sig í hátíðlegar stellingar. Fræðileg úttekt er í senn góð og gild, hitt ekki síður að bregða upp mynd af persónunni að baki listaverkanna þótt ekki sé um neina beina ævisögu að ræða heldur op- inskáa og gagnsæja úttekt. Þannig bækur, einkum ef þær væru skrif- aðar á lifandi máli, myndu trúlega ganga mun betur út en hinar stóru og íburðarmeiri sem margur kaupir frekar til gjafa en af ástríðu. Eru þá nokkurs konar sýndarmennska og stöðutákn eins og til að mynda einn metri af Laxness og Gunnari Gunn- arssyni í bókahillunni. Kjarvalskver Matthíasar Johann- essen kemst næst slíku útgáfuferli en það er öðru fremur um sam- talsbók að ræða en hugleiðingar og úttekt Matthíasar sjálfs á lista- manninum. Hins vegar tel ég það engan veginn slæma hugmynd að gefa kverið út í kiljuformi og leggja samtímis meiri áherslu á þesslags kynningu á íslenskum listamönnum. Allir hefðu efni á að nálgast slíkar bækur án mikilla fjárútláta og hafa þær í vasanum ef þeim hugnast svo. Hér komin ein leið til að gera ís- lenska myndlist gagnsærri – og ekki vanþörf á. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 65 Myndir, lampar, vasar, skálar, úti- eða inniblómapottar... OPIÐ Í DAG Ármúla 42 sími 895 8966 Opið alla daga frá kl. 10-18 MIKIÐ ÚRVAL AF EINSTÖKUM JÓLAVÖRUM S. 568 1410 og 482 1210 - Grænir og góðir! upplifðu              Gleðilegar jólaferðir! Vinnustaðir! Leiksskólar! Grunnskólar! Fjölskyldur! Jólatré valin, jóla- markaður Sólheimum, jólalög og sögur í Skál- holti og margt fl. Sértilboð á allar jólahlaðborðsferðir. Sjá: www.gtyrfingsson.is SJÖUNDU tónleikar tónleikarað- arinnar Tónað inn aðventu í Nes- kirkju verða í dag klukkan 17. Þá mun organisti kirkjunnar, Stein- grímur Þórhallsson, setjast fyrir framan orgelið og halda sína árlegu tónleika. Mun hann flytja verk eftir J.S. Bach, Frescobaldi, A. Guilmant og C. Franck. Steingrímur er einnig listrænn stjórnandi „Tónað inn aðventu“, en markmið hátíðarinnar er að lista- menn sem tengjast kirkjunni eða vesturbæ á einhvern hátt hafi vett- vang til að koma fram. Einnig er markmiðið að setja á fót listahátíð vesturbæjar með aðsetur í Nes- kirkju, þar sem ungir og aldnir sýni afrakstur vinnu sinnar. Steingrímur lauk píanókenn- araprófi frá Tónlistarskólanum í Reykjavík árið 1998 og kantorprófi frá Tónskóla þjóðkirkjunnar. Árið 2001 útskrifaðist hann með Magist- ero di organo frá Kirkjutónlist- arskóla Páfagarðs. Haustið 2002 var Steingrímur ráðinn organisti við Neskirkju eftir að hafa starfað um tíma sem skóla- stjóri Tónskólans á Hólmavík. Hann hefur víða komið fram á tónleikum, m.a. á Tónlistardögum Dómkirkj- unnar. Orgeltónleikar Steingríms Þórhallssonar í Neskirkju
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.