Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 67

Morgunblaðið - 26.11.2006, Blaðsíða 67
inn í undirdjúpin en skynsamlegt var. Þótt vont sé að snúa frá hálf- kláruðu verki varð hann að láta sig hafa það enda ótækt að valda sam- ferðafólkinu frekari áhyggjum. Hægar var farið yfir til baka og bet- ur kíkt í kringum sig. Ljóst var að um mjög merkan hellafund var að ræða. Eftir að hafa lent í vandræð- um með að finna leiðina til baka, gjótuna þröngu þar sem grjótið hafði verið forfært, komst Björn þó í íssalinn á ný og út undir bert loft, þreyttur en kátur. Eftir hellaferðina fór Björn til Þorlákshafnar, heimsótti Guðmund Brynjar og búralegur lýsti hann hellinum sem Guðmundur Brynjar hafði fundið þrettán árum áður án þess að vita af því. Glæsileikinn með ólíkindum Sunnudaginn 8. maí 2005 var aft- ur haldið í Búra. Saman í för voru Albert Ólafsson, Björn Hróarsson, Guðmundur Brynjar Þorsteinsson, Guðrún Ingibjörg Hálfdanardóttir, Jóhanna Guðmundsdóttir, Ómar Smári Ármannsson og Viktor Guð- mundsson. Íssalurinn skartaði sínu fegursta sem daginn áður og undr- uðust hellafararnir stærð og mik- ilfengleika hellisins. Þegar gengið hafði verið nokkuð á aðra klukku- stund var komið að „indjánanum“ eða stærðar steini sem tyllir sér milli gólfs og loft og hefur lögun ekki ósvipaða og fjöður. Á þessum stað sneri Björn við daginn áður. Aðeins um hundrað metrum innar tók við upprunalegt gólf og á löngum köflum er hellirinn ekkert hruninn og allur hinn glæsilegasti. Gífurlegar hvelfingar eru í honum og aðeins örfáir hraunrásarhellar hér á landi sambærilegir að stærð. Þótt einstaka hrun sé í hellinum á þessum kafla verður hann sífellt heillegri eftir því sem innar dregur og veggir hans ótrúlega glæsilegir. Enn innar tók við gífurleg hvelfing en síðan snarlækkar til lofts og frá þessari hvelfingu halda göngin áfram en lofthæðin er „aðeins“ fjórir til fimm metrar. Glæsileikinn er hins vegar með ólíkindum og allt stráheilt þótt allir Suðurlands- skjálftar í um 5000 ár hafi látið þarna til sín taka. Í rásinni er fal- Hvelfingar Í Búra eru víða gríðarlegar hvelfingar og miklir salir. Urð og grjót Búri er víða mikið hruninn og erfiður yfirferðar. legur hraunfoss, nærri mannhæðar hár. Á vit ævintýranna Enn kom hellirinn á óvart og nú sem aldrei fyrr. Þegar komið var á að giska rúman kílómetra inn stóðu hellamenn á gati. Því betur ekki al- veg í bókstaflegri merkingu en þótt þakþykktin sé örugglega mikil og þótt hæð hellisins sé um ellefu metr- ar skammt frá þessum stað blasti nú við mikill svelgur. Hann er alveg lóðréttur, um 5 metrar í þvermál og 17 metra djúpur. Niðri í undirdjúp- unum, þess vegna á um 50 metra dýpi í hrauninu, mátti glögglega sjá hvar hellirinn heldur áfram – á vit ævintýranna. Engin lína eða sigtæki voru með í för auk þess sem farið var að draga af mannskapnum enda ekkert áhlaupaverk að koma sér á þennan stað og morgunljóst að ann- an daginn í röð þyrfti að snúa frá hellinum án þess að hafa farið hann á enda. Svelgurinn er með miklum hraun- taumum og hinn glæsilegasti og á sér ekki hliðstæðu í öðrum hraun- helli á Íslandi. Svelgurinn vekur margar spurn- ingar sem enn er ósvarað. Ljóst var að þótt hellirinn væri ekki fullkann- aður og enginn vissi hvert hann lægi eða hvað hann hefði að geyma þá var hann samt sem áður einn stærsti og merkilegasti hraunhellir á Íslandi. Ferðin til baka gekk vel en það voru þreyttir hellafarar sem upp komu. Laugardaginn 21. maí var haldið í Búra á ný með það að markmiði að fara niður hraunfossinn innst í hell- inum og kanna hvað þar væri undir. Leiðangursmenn voru Ásbjörn Hagalín Pétursson, Björn Hróars- son, Daði Hrannar Aðalsteinsson, Guðmundur Brynjar Þorsteinsson og Pétur Ásbjörnsson yfirklifrari. Vegna klifurbúnaðar og þess að hellafararnir bjuggust allt eins við langri hellaferð voru þungar byrðar á baki. Þrátt fyrir það hröðuðu menn sér inn hellinn og að svelgnum mikla. Innarlega í hellinum sést víða hvar hrun er þakið hrauni. Greini- legt er að töluvert hrun hefur átt sér stað í hellinum meðan þar var enn hraunrennsli. Síðan hefur hækkað í hraunánni og hún húðað stórgrýtið. Eru steinarnir með því þynnri hraunhúð því ofar sem þeir eru og ólíklegt að þeir hafi lengi verið á kafi. Líklegra er að rennslið niður hellinn hafi lent í teppu skamma stund og þá hækkað svo í hraunánni að hún náði að húða grjótið. Er þetta enn eitt dæmið um að hrun í hellum á sér yfirleitt stað skömmu eftir að þeir myndast en eftir það hrynur lítið eða ekkert. Við svelginn hófu þeir feðgar, Pétur og Ásbjörn, að undirbúa ferðalagið niður hraunfossinn. Sprungur eru nokkrar og því auð- velt að koma fyrir festingum og ekki leið á löngu þar til línan lá traust niður á botn svelgsins. Björn Hró- arsson fór fyrstur fram af brúninni og lét sig síga til botns utan á glæsi- legum hraunfossinum. Ekki var hann raunar kominn langt þegar Pétur Ásbjörnsson kallaði á eftir honum: „Gaman að hafa kynnst þér!“ Birni varð ljóst áður en botni var náð að svelgurinn væri dýpri en menn höfðu áætlað ofan frá. Mæling gaf síðan til kynna að hraunfossinn er um 17 metra hár. Lofthæðin í svelgnum er því rétt um 20 metrar. Fóru nú félagarnir niður í svelginn einn af öðrum og er þetta nátt- úruundur hið ótrúlegasta, hvar og hvernig sem á það er litið. Fara má undir veggi svelgsins, gegnt foss- inum, og upp stórgrýtisbrekku fá- eina metra en ekki fannst leið áfram eftir rásinni. Vel má vera að þarna mætti með réttum áhöldum færa til grjót og finna leiðina áfram en það tókst ekki að þessu sinni. Þar sem leiðin lokast inn frá svelgnum eru um fimm metrar niður á neðsta hluta svelgsins en þar hefur hraunið greinilega haldið áfram niður og þá líklega þaðan áfram eftir hellisrás. Hver hún er, hvar hún er og hvort hún er enn til staðar er hins vegar óvíst með öllu. Vel gekk að klifra upp fossinn, taka saman klifurdótið og arka út hellinn. Búri kortlagður Hellaferðin tók rúmar sex klukkustundir og enn kom Búri á óvart. Búri var kortlagður 17. og 18. júní 2005. Þeir Björn Hróarsson og Guð- mundur Brynjar Þorsteinsson fengu til liðs við sig fimm þaulreynda breska hellamenn til verksins, Ed Waters, Hayley Clark, James Beg- ley, Phil Collett og Phil Wharton. Kortið er meðfylgjandi og reyndist hellirinn 980 metrar á lengd. Enn eru þó ókönnuð göng út frá hellinum en þau eru í um 8 metra hæð frá gólfi og er eftir að klifra þangað Íslenskir hellar eftir Björn Hróarsson er 674 blaðsíður í tveimur bindum og prýdd fjölda ljósmynda, sem flestar eru teknar af höfundi. Útgefandi er Vaka-Helgafell – Edda útgáfa 2006. Undirheimur Búri var kortlagður 17. og 18. júní árið 2005 og er heildarlengd hellisins um 980 metrar. Hraunfoss Hraunfossinn innst í Búra er um 17 metra hát. Hellisbotn Innst í Búra er 17 metra djúpur svelgur. MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 26. NÓVEMBER 2006 67 Þorleifur er sérfræðingur á sviði fisklífeðlisfræði hjá Rannsóknastofnun fiskiðnaðarins á Ísafirði. Mánudaginn 27. nóvember flytur Dr. Þorleifur Ágústsson erindi: Rannsóknir á þorskeldi í sjókvíum. Allir velkomnir. Fræðsluerindi Landbúnaðarháskóla Íslands á Keldnaholti Erindið hefst kl. 3 e.h. og er haldið í fundarsal LbhÍ á Keldnaholti, 3. hæð. Stökksteikt andarbringa með volgri andarlifur, mangó og sætum kartöflum í súrsaðri plómusósu domo restaurant bar þingholtsstræti  reykjavík sími  
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.