Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 5

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 5
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags 2. mynd. Hluti afkortinu „Uppdráttr íslands" frá 1844, gerðu eftir mælingum Björns Gunnlaugssonar.5 Á kortinu eru mörk hrepp- anna fjögurra afmörkuð með litum. - The map shows the southzuest part oflceland. Detail ofa map takenfrom a map oflceland ("Upp- dráttr íslands") from the year 1844, surveyed by Björn Gunnlaugsson.5 The four relevant communes are market out by coloured borderlines. The numbers in the boxes indicate the number ofdead and the death rate for each commune. Heimildir af bólusótt árin 1670-1672, sem er síðasti faraldur fyrir Stórubólu, eru brotakenndar enda hafa dauðsföll helst verið í hópi barna og unglinga þar sem einungis voru þá liðin 12-15 ár frá bólusóttar- faraldri árin 1655-1658, sem fór „um allt landið" samkvæmt annálum.2 A milli bólusótta á 17. öld liðu annars um 18-20 ár.2 Utbreiðsla bólunnar 1670-1672 hefur væntanlega tak- markast af því að einungis voru þá 12-15 næmir árgangar auk þeirra sem sluppu í fyrri bólusótt, en ekki er vitað í hvaða hreppa bóla kom 1670-1672. Breytileiki í dánarhlut- falli eftir hreppum 1707-1709 verður hér skoðaður út frá þeirri tilgátu að bólusótt 1670-1672 hafi ekki borist til allra hreppa landsins. Tilgátan verð- ur skoðuð og fjórir fjölmennir hrepp- ar valdir til samanburðar út frá dán- arhlutfalli. Hrepparnir eru Alftanes- og Seltjarnarneshreppur í Gull- bringusýslu og Stokkseyrar- og Bæj- arhreppur (Gaulverjabæjarhreppur) í Flóanum í Arnessýslu (2. mynd). Þessir hreppar eru á tiltölulega af- mörkuðu svæði við sjávarsíðuna og lífshættir svipaðir. Hafi lífskjör manna skipt máli við skýringu á dauðsföllum í Stórubólu verður að ætla að í þessum hreppum hafi þau ekki verið svo ólík að áhrifa þeirra gæti í þeim samanburði sem notaður er. I þessum fjórum hreppum gekk Stórabóla yfir frá júní fram í nóvem- ber 1707.2 Nafnaskrá yfir íbúa Álftaneshrepps sem létust í bólusóttinni er að finna í Setbergsannál6'' og er hann eini hrepp- urinn sem slík skrá er varðveitt frá, svo vitað sé.b Finna má aldur flestra sem létust í þessum hreppi með því að nota manntalið frá 1703 og út frá fjöl- da í hverjum aldurshópi það ár má meta aldursbundið dánarhlutfall þar í bólusóttinni 1707.2 Álftaneshreppur og Seltjarnarnes- hreppur við Faxaflóa áttu sameigin- leg landamerki (2. mynd).8 Ef íbúar Seltjarnarneshrepps 1703 eru flokk- aðir í sömu aldursflokka og í Álfta- neshreppi má reikna þá dánartölu sem hefði mátt vænta („expected") fyrir Seltjarnarneshrepp með því aldursbundna dánarhlutfalli sem a Skráð hefur Gísli Þorkelsson, fæddur um 1676 líklega á Setbergi við b Varðveitt eru bréf í Þjóðskjalasafni með nafnalistum yfir látna frá ein- Hafnarfjörð, dáinn 1725, sjá formála í heimild 6. Tvær sóknir voru í staka prestum í Borgarfirði, sjá ÞÍ. Mýraprófastsdæmi B2/1. Bréfabók Alftaneshreppi.7 Dánartalið er úr þessum tveimur sóknum. 1693,1701-1720, úttekt og vísitasíur 1721-1776. 5

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.