Náttúrufræðingurinn

Årgang

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 63

Náttúrufræðingurinn - 2008, Side 63
Tímarit Hins íslenska náttúrufræðifélags Guðrún G. Þórarinsdóttir, Valdimar Ingi Gunnarsson og Björn Theódórsson KRÆ kl i n g aræ kt Á ÍSLANDI Kræklingur (Mytilus edulis) nefnist einnig bláskel, krákuskel eða kráka. Þessi tegund tilheyrir ættinni Mytilidae og ættkvíslinni Mi/tilus, en til hennar teljast allmargar tegundir víðsvegar um heim. Heimkynni kræklings eru víða á norðurhveli. I Norðaustur-Atlantshafi finnst hann frá Hvítahafi suður til Frakklands og í kringum Bretlandseyjar, Fær- eyjar og Island. I Norðvestur-Atl- antshafi finnst þessi tegund frá Kanada suður til Norður-Karólínu í Bandaríkjunum og á suðurhveli við Suður-Ameríku og á Falklandseyj- um.11 Norður-Atlantshafi eru kræk- lingstegundirnar M. galloprovincialis og M. trossulus einnig algengar2 og eru dæmi um blöndun þessara teg- unda innbyrðis og við M. edulis.3 NÝTING OG FRAMLEIÐSLA Erlendis hafa hinar ýmsu kræk- lingstegundir verið veiddar og ræktaðar öldum saman til matar. í Frakklandi eru heimildir um kræk- lingarækt frá árinu 1235 en nútíma- rækt á sér aðeins um 60 ára sögu.4 Heimsframleiðslan hefur aukist mikið á undanförnum áratugum, eða úr tæpum 400 þúsund tonnum árið 1970 í tæpar 1,8 milljónir tonna árið 2004 en þar af eru aðeins um 200 þús. tonn villtur kræklingur. Árið 2004 var framleiðsla í Asíu um 1 milljón tonna en Kínverjar fram- leiddu þar mest rúm 700 þús. tonn. I Evrópu voru framleidd um 745 þús. tonn, sem voru að stærstum hluta M. edulis. Spánverjar fram- leiddu mest Evrópuþjóða, um 300 þús. tonn, en aðrar þjóðir sem voru með umtalsverða framleiðslu voru Danir (um 100 þús. tonn), Frakkar (um 75 þús. tonn) og Hollendingar (um 67 þús. tonn) (http://www.- fao.org). Kræklingur hefur lítið verið nýtt- ur hérlendis.5 Á síðari árum hefur færst í vöxt að fólk fari í kræklinga- fjörur og tíni sér til matar. Á árun- um 1985-1987 var gerð tilraun með ræktun kræklings í Hvalfirði á veg- um Napa hf.6 og Hafrannsókna- stofnunin stóð fyrir tilraun árið 1973. Árið 1997 hófu einkaaðilar ræktun á kræklingi í Mjóafirði og frá 2000 hafa 11 aðrir aðilar stundað ræktun í tilraunaskyni víðsvegar 67' - 66* 65' 62” Hcstfjörður Arnarfjörður Kolgrafafjörður Hvammsfjörður HvalQörður 63° " Mjóifjörður Hamarsfjörð 28° 26° 24° 22° 20° 18° 16° 14° 12° 10° 2. mynd. Staðsetning krækiingaræktunar við ísland 2004. - The experimental culturing sites in Iceland 2004. Náttúrufræðingurinn 76 (1-2), bls. 63-69, 2007 63

x

Náttúrufræðingurinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.