Náttúrufræðingurinn

Árgangur

Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 41

Náttúrufræðingurinn - 1977, Blaðsíða 41
nm tæplega talist, þótt eflaust beri við að marflær leggist á lasburða dýr. Það leiðir af sjálfu sér, að marflær og þanglýs gegna mjög mikilvægu lilut- verki í starfsemi lífríkisins í fjöru, og ná áhrif þeirra raunar langt út fyrir fjöruna sjálfa, bæði upp og niður fyr- ir hana. Þessi dýr umbreyta orku og efni, sem felast í smásæjum lífverum og lífrænum leifum í það forrn, sent stærri dýr geta nýtt, en marflær og þanglýs eru mikilvæg fæða fyrir marg- ar tegundir fiska og fugla. Vitað er að sprettfiskur, seiði ufsa og hrognkelsis, svo og bleikja nærast oft að miklu leyti á þanglúsum og marflóm, sem þau sækja í fjöruna um flóð. Sam- kvæmt erlendum rannsóknum eru þanglýs, en þó einkum marflær, uppi- staðan í fæðu æðarunga fyrstu 5—6 vikurnar eftir að þeir klekjast, en hér- lendar athuganir á þessu skortir. Þeg- ar lágsjávað er sækir rnikill fjöldi vað- fugla ofan í fjöruna í ætisleit. Vafa- lítið eru það oft marflær sem fuglarnir eru að sækjast eftir, ekki síst á víð- áttumiklum leirum. Sennilega væri fuglalíf landsins til ntikilla muna fá- tæklegra ef ekki fyndust marflær. Marflær og þanglýs í fjörum nærast á flóðinu, en á fjörunni halda þær að mestu kyrru fyrir og safnast þá oft fyrir margar saman á litlum blettum, einkum undir steinum, þar sem raki er talsverður, þótt lágsjávað sé. Geta verið mörg hundruð dýr undir einutn steini, sem býður upp á sérlega hag- stæð skilyrði, en lítið sem ekkert und- ir öðrum nálægum steinum. Gerð hef- ur verið könnun á magni marflóa og þanglúsa í fjörum suðvestanlands, og reyndust að meðaltali vera unt 160 marflær og 70 þanglýs á fermetra, en fjöldinn eykst að meðaltali eftir því sem neðar dregur í fjöruna. Jafngildir þetta um ntilljón dýrum á 100 m lönguni fjörukafla. Gefa þessar tölur bendingu um það hve geysileg mergð er af dýrum þessum. Beina hagnýta þýðingu hafa mar- flær og þanglýs ekki mikla, með nokkrum undantekningum þó. Sums staðar erlendis eru marflær étnar og þykja lostæti, og eru eflaust svipaðar rækjurn á bragðið, enda ekki fjar- skyldar þeim. Nokkur vandkvæði eru væntanlega á því að nytja marflær í stórum stíl, því þær eru smáar, þótt þær séu margar. Þyngd marflóa af stærstu tegund í fjörum hér fer vart ntikið frant úr tíunda liluta úr gramnti. Um aðra veiðiaðferð en tínslu er vart að ræða, og rnætti ætla að einn ntaður gæti tínt unt 500 dýr á klukkustund, þar sem mikið er af þeint, eða e. t. v. nálægt 50 grömnt- um. En ugglaust ntundu nrargir tína sér marflær til ganrans og til bragð- bætis, ef menn kænrust upp á lagið nteð þetta. Nokkurn usla gera marflær sjó- mönnunt með því að leggjast á fisk í veiðarfærum, þó tæpast þær tegundir, sem algengastar eru í fjörum. Til þanglúsa heyrir ennfremur hin svo- kallaða tréæta. Þetta er lítið dýr, unt 4—5 ntnt á lengd. Þanglýs þessar grafa sig inn í við, sent liggur í sjó og tímg- ast þar ört. Ungarnir ltalda svo áfram að grafa göng í tréð uns þeir verða kynþroska, en jtá syndir a. nt. k. ein- hver liluti Jteirra á brott í leit að nýjum við og sagan endurtekur sig. Tréætu varð fyrst vart hérlendis unt aldamótin síðustu, en nú er hún mjög algeng um land allt og veldur mjög
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Náttúrufræðingurinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Náttúrufræðingurinn
https://timarit.is/publication/337

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.