Andvari

Árgangur

Andvari - 01.10.1959, Blaðsíða 26

Andvari - 01.10.1959, Blaðsíða 26
136 SIGURÐUR GUÐMUNDSSON ANDVARI og virðing landa sinna voru ef til vill þau laun, sem hann þráði mest fyrir slíkt vísindaafrek. Slíkt grefur um sig í hug og hjarta. Af slíku hefir, ásamt fleiru, sprottið kuldinn og beiskjan í hrjósti hans. En enn er ótalið það atriði, sem ég get, að verst hafi leikið sál hans og skaphöfn. Svo ram-íslenzkur maður sem Þorvaldur Thoroddsen dvelst ekki vítalaust í aldar- fjórðung í erlendri stórborg, fjarri fóstur- jörð og feðraþjóð. Hann er orðinn fertugur, er hann flyzt alfarinn af landi brott. ,,Þó allt gangi að óskum í erlendum bæ, er hreysið manns heima samt hjartfólgnast æ — þó þrætt sé af þjóðleið til þaks undir snæ", segir einhver merkasti útlaginn í íslend- ingasögum, Stephan G. Stephansson. Hann fluttist þó ekki nerna tvítugur af landi brott. Ætla má, að Þorvaldur Thor- oddsen hafi fastari taugum fjötraður verið við ættland sitt. Hann fluttist þaðan fertugur. Og hann yfirgaf ekki hreysi — eftir því sem þá var títt, er hann fluttist héðan. Hann hafði, að sjálfs sín sögn, búið mjög vel um sig. Hann ritar: „Mér þótti að mörgu þungbært að sltilja við ísland, hafði búið vel um mig og var eftir þeirn mælikvarða, sem þá var á Islandi, rétt vel efnaður". Hann kveðst og ekki geta neitað því, að oft hafi hann síðan „saknað hússins og heimilisins í Skálholtsstræti. Við höfðum búið þar 8 góð og farsæl ár“. Og því fór fjarri, að allt gengi honurn að óskum erlendis. Þar biðu hans „mikið strit, mörg vonbrigði og skapraunir". Á rann- sóknarferðum sínum um ísland hafði hann safnað miklu efni um náttúru þess. Hann hugðist nú sjálfur að vinna úr safni sínu og fá sérfræðinga til að rita um það, sem hann sjálfan brast lærdóm til. Hann var næsta stórhuga. Hann hafði í hyggju að „róa að því öllum árum, að stofnað væri til fastra rannsókna á nátt- úru íslands". En „þrátt fyrir margra ára tilraunir . . . tókst þó ekki að koma neinu öðru í framkvæmd en því, sem ég sjálfur var við riðinn". Hann fékk enga aðstoð sérfræðinga, af því að fé skorti til greiðslu fyrir rannsóknir og vinnu. Helzti náttúrufræðiprófessor háskólans vildi cnga samvinnu við hann eiga né styðja hann til að koma föstum náttúru- fræðirannsóknum á stofn á íslandi. Kvaðst hann hafa séð það, er hann var fluttur utan, að hann hefði verið „allt of hjartsýnn á veröldina". Þykir honum sér Iiafa farið „barnalega", er hann von- aði, að hann, ekki auðugri maður, gæti komið fyrirætlunum sínum í framkvæmd. Kennir mikillar gremju í garð Hafnar- búa, er hann segir frá raunaferli sínum og ósigrum. Kveður hann það t. d. sagt hafa verið í skopi, að Hafnarbúar „elsk- uðu aðeins tvennt: hunda sína og Ieik- ara“. Af þessu viðhorfi hans má, að sumu leyti, skýrlega skap hans marka. Þá er einhver hefir vakið þvkkju hans og gremju, flæðir andúð hans til mildu fleiri heldur en sakaraðilja. Þá er nokkrir Kaupmannahafnarbúar (fáeinir vísinda- menn þar) gefa ekki gaum að óskum hans og tillögum, fyllist hann — að því er virðist — þykkju í allra þeirra garð, hæðir þá og fjölyrðir um suma ósiðu þeirra, menningarleysi og menningar- mein. Mikið hcfir því skort á það, að Þor- valdi Thoroddsen léki allt í lyndi í erlendum bæ. Barningur og andbyri hafa varnað dýrum óskum hans og viðleitni sigurs. Og slíkt hefir honum beiskju bakað. En við þetta bætist, að hann hefir, að líkindum, allt af verið laus á
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80
Blaðsíða 81
Blaðsíða 82
Blaðsíða 83
Blaðsíða 84
Blaðsíða 85
Blaðsíða 86
Blaðsíða 87
Blaðsíða 88
Blaðsíða 89
Blaðsíða 90
Blaðsíða 91
Blaðsíða 92
Blaðsíða 93
Blaðsíða 94
Blaðsíða 95
Blaðsíða 96
Blaðsíða 97
Blaðsíða 98
Blaðsíða 99
Blaðsíða 100
Blaðsíða 101
Blaðsíða 102
Blaðsíða 103
Blaðsíða 104
Blaðsíða 105
Blaðsíða 106
Blaðsíða 107
Blaðsíða 108
Blaðsíða 109
Blaðsíða 110
Blaðsíða 111
Blaðsíða 112
Blaðsíða 113
Blaðsíða 114
Blaðsíða 115
Blaðsíða 116

x

Andvari

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Andvari
https://timarit.is/publication/346

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.