Fálkinn - 18.04.1966, Qupperneq 9
f sumt
Sikilcyskt siðferði
Á Sikiley er siðferðið á svo háu stigi, að ótímabær missir
meydóms er metinn til meiriháttar afbrota. Auminginn
hún Francisca Viola hefur heldur betur fengið að kenna
á þessu. Hrösun hennar var þó ekki nema að mjög tak-
mörkuðu leyti henni að kenna, heldur skúrki nokkrum,
sem lieitir Fillippo Melodia („Iag“legt nafn). Hann tók
stúlkukindina nauðuga og gerði henni það, sem ekki verð-
ur aftur tekið. Ekki var hann samt færður í fangelsi að
morgni, svo sem sjálfsagt hefði verið, heldur var hann
skikkaður til að kvænast dömunni gegn vilja sínum og
hennar. Foreldrunum þótti sem hjúskaparmöguleikar dótt-
urinnar hefðu verið stórlega skertir, og þó að stúlkan
vildi ekkert með ofbeldismanninn hafa og berðist um á
hæl og hnakka, var engin miskunn hjá Magnúsi. Til að
koma vitinu fyrir barnið fóru foreldrarnir með hana á
fund lögreglunnar og fengu þar hjálp til að koma hnapp-
heldunni á hin sérstæðu hjónaleysi. Á annarri myndinni
sjáum við Melodia fyrir lögregluréttinum í heimaþorpi hans
á Sikiley, en á hinni er Viola að grátbiðja föður sinn um
miskunn, sem hann þekkir ekki.
Ekki alveg bloitk
Að því er nýjustu fréttir herma, er Doris Day ríkasta
leikkona í Hollywood. Sjóður hennar er talinn nema um
1200 milljónum íslcnzkra króna. Til samanburðar má geta
þess, að álitið er að Frank Sinatra eigi ekki „nema“ 300
milljónir. Hins vegar er EIvis Presley sá, sem mest hefur
grætt á kvikmyndastörfum, eða um 3600 milljónir íslenzkra
króna, og mun það vera heimsmet.
NÚ ER VANDALÍTIÐ AÐ VIÐHALDA UNGU ÚTLITI PG AUKA
Á FEGURÐ SÍNA
EINFALDLEGA MEÐ ÞVÍ AÐ NOTA SNYRTIVÖRURNAR FRÁ:
REYNIÐ ÞESSAR HEIMSFRÆGU GÆÐAVÖRUR DG SANN
FÆRIZT UM ÁHRIFAMÁTT ÞEIRRA
FÁST í FLESTUM LEIÐANDI SNYRTIVÖRUVERZLUNUM
SIMYRTIVÖRUR HF. HEILDVERZLUN SIMI. 11020 - 11021
FALKINN
9