Fálkinn - 18.04.1966, Blaðsíða 17
á, að . fyrir launin í fyrstu kvikmynd
sinni hefði George Hamilton keypt Rolls
Royce, sem seldur var úr bílaflota
brezku konungsfjölskyldunnar. Önnur
launin notaði hann til að taka á leigu
glæsilegt einbýlishús af Douglas Fair-
banks. Hann hefur síðan ráðið húsum
í þessari Loðviks XV. höll með 39 her-
bergjum, en sjálfsagt ekki án fjárhags-
örðugleika.
Bróðir hans Bill segir um hann: —
Þegar George leggur af stað á litlum
árabáti með bjórflösku í nesti, snýr
hann heim á lystisnekkju. þar sem veitt
er kampavín og kavíar.
Fyrir átta árum var Mae Murray
fyrrum fræg Hollywoodstjarna bezta
vinkona Georges. Gamla konan beitti
áhrifum sínum til þess að skjólstæð-
ingur hennar var kvikmyndaður til
reynslu. Hann fékk samning, og Mae
gat dregið sig ánægð í hlé úr skarkala
kvikmyndaborgarinnar.
Síðar trúlofaðist hann Susan Kohner,
dóttur Paul Kohner, eins áhrifamesta
stuðningsmanns hinnar upprennandi
kynslóðar í kvikmyndaheiminum. Eins
og gefur að skilja greiddi hann götu
tilvonandi tengdasonar síns eftir beztu
getu.
En það slitnaði upp úr trúlofuninni
all skyndilega þegar George olli miklu
hneyksli í kvöldboði í Hollywood, er
hann kyssti hina sextán ára Sue Lyon
fyrir augunum á öskureiðum unnusta
hennar.
George Hamilton segir að Lynda sé
mjög aðlaðandi stúlka, en vill að öðru
leyti ekki láta hafa neitt eftir sér. Sem
ungur maður af góðu fólki þykir hann
hæfur í samkvæmi broddborgaranna og
boðlegur aðdáandi forsetadóttur. Auk
þess getur hann nú orðið státað af því
að eiga milljónamæring að stjúpföður.
Móðir hans varð snemma ekkja, og hún
er nú gift iðjuhöldinum Jesse Spaulding.
A
Rómantík að næturlagi í kvikmyndinni
„Sigurvegararnir“, George Hamilton og
E'kc Sommer.
Lynda með fyrrverandi unnusta sínum,
Bernard Rosenbach. Lífvörðurinn vék
ekki frá þeim.
FALKINN
17