Fálkinn - 18.04.1966, Qupperneq 30
ÍTALINN
Nú vorctr. og þá fer í hönd gullvertíð ferðaskrif-
stofa og hvers konar fólksflutningafyrirtœkja. íhinn
fjölmenna hóp íslenzkra metorðastritara.semheim-
sœkja útlönd í þeim tilgangi aðallega að geta
sagzt hafa verið þar, slœðast á ári hverju allmarg-
ar ungar (og eldri) stúlkur, sem œtla að finna
œvintýri á rómanaskum stöðum. Ekkert er þess-
um stúlkum nauðsynlegra en raunhœfar upplýs-
ingar um, hvers þœr mega vœnta af rómantíkinni,
þegar hún loks birtist þeim í líki innfœdds karl-
manns, sem býður þeim út að kvöldlagi. Þessar
upplýsingar sœkjum við til rithöfundarins Doris
Lilly, sem skrifað hefur a. m. k. tvœr heilar bœkur
um þessi efni, og fjallar önnur þeirra eingöngu
UM ÁST í ÖÐRUM LÖNDUM
Við fyrstu kynni
ítalska karlmanninn muntu fyrst rekast á í forsal hótelsins,
sem þú hefur ákveðið að gista í. Þarna munuð þið fá gullvægt
tækifæri; þú til þess að kynna þér háttalag hans, og hann til
að láta i ljós skoðun sína á yndisleik þínum. Flest gistihús
Evrópu hafa sinn ákveðna fjölda af forsals-stólriddurum, en
í forsölum ítalskra gistihúsa eru riddararnir svo að segja allir
á reiki fram og aftur. „Amore,“ hvíslar riddarinn, um leið
og hann strýkst fram hjá þér við afgreiðsluborðið. „Amore
mio,“ „Divina,“ andvarpar annar farandriddari, reyrður í
níðþröng jakkaföt. „Come bella.“ Og þannig heldur það áfram
í lyftunni og inn eftir herbergjaganginum. En áður en þú
kemst öll í uppnám yfir þeirri athygli, sem þú vekur, er þér
betra að horfast í augu við þá kuldalegu staðreynd, að þeir
meina ekkert með þessu. Þá langar jafnvel ekkert til að kynn-
ast þér. Þeir eru bara að skoða. Eftirlætis innan- og utanhúss-
íþrótt ítalans er eltingaleikurinn. Ef þú tekur hann frá hon-
um með því að trúa gullhömrum hans eða jafnvel að gefa
í skyn, að þú hafir heyrt þá, ertu búin að eyðileggja fyrir hon-
um gamanið, jafnvel svo, að honum finnist dagurinn eyðilagð-
ur.
Yfir kokkteilnum
Gistihúsbarinn er bezti staðurinn til að komast að því útúr-
dúralaust, hve margir ókvæntir karlmenn séu í umferð og
láta þá vita af því, að þú sért komin, svo að þeir geti farið
að velta fyrir sér aðferðum til að kynnast þér. Ef til vill mun
þér finnast það skrýtið í fyrstu, að enginn virðist setjast niður
og varla nokkur drekka neitt. Fyrir þessu eru ýmsar ástæður
og snúast allar um peninga. Ef ítalinn sezt niður, er hann
skyldugur til að panta eitthvað. Og tvö glös við barinn kosta
jafnmikið og kvöldverður. Ennfremur vei'ður hann að fara
úr frakkanum og skilja hann eftir í fatageymslunni. Endur-
heimt frakkans hefur í för með sér fimm króna fjárútlát, sem
er sama verð og á bolla af espresso eða pakka af ítölskum
sígarettum. Það getur orðið heitt í barnum; en sannir borg-
arar Via Veneto kjósa heldur að stikna lifandi en að fleygja
peningum í fatageymslu.
Við kvöldverðinn
í Róm eru fleiri rómantískir matsölustaðir en sjoppur eru
í New York. Þú skal því ekki bíta þig fasta í Passetto’s eða
Capriccio’s; ef hann stingur upp á trattoria, segðu þá já.
Trattoria á Ítalíu er það, sem Frakkar kalla bistro og Spán-
verjar bodega; nema hvað á ítalíu er það sennilega betra.
Þegar þangað kemur, skaltu láta ítalann þinn panta matinn,
af þessum ástæðum: (1) Allur matur á Ítalíu er góður —
ítalir hafa litlar mætur á vafasömum réttum eins og svölu-
hreiðrum, soðnum heilum og steiktum slöngum. (2) Matur-
inn er borinn fram, þegar hann er tilbúinn — þar er ekkert
verið að bíða eftir, að signora sé búin með súpuna, áður en
signore fær steikina — svo þér er betra að borða það sama og
hann, ef þú vilt byrja og enda samtímis honum. (3) Hann
pantar það, sem hann hefur efni á. Ef þú ert ekki sammála,
gæti svo farið, að þú sætir eftir með reikninginn.
Fram eftir nóttu
Eftir kvöldverðinn ertu ein á báti með ítalanum þínum.
Hann dansar þá við þig og heldur þér í slíku hryggspennu-
taki, að brot virðist yfirvofandi. Svo ekur hann þér heim, eins
og hann hafi í hyggju að drepa þig, og gegnir engu eða heyrir
ekki köll þín um að „hægja á ferðinni!" sem drukkna í storm-
hvini og hemlaískri. Loks mun hann kyssa þig, eins og þú
værir síðasta konan á jörðunni, og ef þið tvö nytuð ekki
þessarar nætur, myndi ykkur aldrei gefast nein önnur. Ef
þú lætur sannfærast af þessum röksemdum, muntu komast
að því, að ítalir eru svo glaðværir á morgnana, að það er
næstum óþolandi.
Og allt til æviloka
Italinn kann jafnvel að vilja kvænast þér. Ef hann gerir
það, mun hann halda fram hjá þér, en sjaldan verða afbrýði-
samur, þar sem hann stendur í þeirri öruggu trú, að hann sé
30 FÁLKINN