Vikan - 30.04.1969, Síða 4
GpStóVEÖ 22 - 24
K3D2ÍM-32ZG2
Gólfdúkur — plast, vinyl og linóleum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 7VaxlS, 11x11 og 15x15 cm.
Amerískar gólfflísar — Good Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningavörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slippfál. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
V_______________________________________________________________________,
HJÁTRÚ OG
SYSTKINABRÚÐKAUP
Kæri Póstur!
Við erum hér tveir ung-
ir menn, sem langar til að
spyrja þig um mjög veiga-
mikið atriði.
Þannig er mál með vexti,
að við erum trúlofaðir tví-
burum, sem er í sjálfu sér
ekki í frásögur færandi. En
sá er gallinn á gjöf Njarð-
ar, að þær eru dálítið hjá-
trúarfullar og vilja ekki
láta gifta sig saman (þ.e.a.s.
á sama stað og sama tíma).
Eftir því sem þær segja
er til gömul trú þess efnis,
að ef haldið sé systra-,
bræðra- eða systkinabrúð-
kaup verði annað parið ó-
hamingjusamt.
Og nú er komið að
spurningunni: Er eitthvað
til í þessu?
Við biðjum þig, kæri
Póstur, að svara þessu
fljótt og vel og útúrsnún-
ingalaust.
Með fyrirfram þakklæti
fyrir svarið og beztu kveðj-
um.
R og H
Nei, það er ekkert til í
þessu, fremur en annarri
gamalli hjátrú og hindur-
vitnum. Við þekkjum
margar systur og hræður
og systkini, sem liafa látið
gifta sig saman og hafa lif-
að í hamingjusömu hjóna-
bandi alla ævi.
VESALINGS
VEGFARENDURNIR
Kæri Póstur!
Þið skrifið oft um bíla
og bíleigendur þarna í Vik-
unni, og er ekki nema gott
eitt um það að segja. En
nú vill svo illa til, að ekki
eru allir bíleigendur á fs-
landi enn sem komið er og
líklega fer þeim fækkandi
á næstunni, ef kreppan
heldur áfram. Eg vil ein-
dregið, að þið hugsið líka
um vegfarendur, sem fara
alla sinna ferða fótgang-
andi eða i strætisvagni.
Þeirra hagsmunir eru að
sjálfsögðu allt aðrir en
hagsmunir bíleigendanna
og þeir vilja oft gleymast,
vegna þess að bíleigend-
urnir eru í meiri hluta. Ég
hef skrifað þér áður um
þetta mál og þú birtir bréf
mitt fljótt og vel. Hafðu
þakkir fyrir það. Hins veg-
ar hafa viðbrögðin orðið
engin og þess vegna reyni
ég að skrifa þér öðru sinni
og vekja máls á réttindum
okkar, hinnar þjáðu fót-
gangandi alþýðu.
Ég minnist aðeins á fá-
ein atriði að þessu sinni,
enda þótt af nógu sé að
taka: í fyrsta lagi: Hvað
gagnar að hafa þessar svo-
kölluðu sebrabrautir út um
allan bæ, þegar aðeins einn
bílstjóri af hverjum tutt-
ugu virðir rétt hins fót-
gangandi manns, stanzar
og lofar honum að ganga
yfir götuna? Mér finnst til-
litsleysi bílstjóranna fara
stöðugt vaxandi. Maður
þarf oft að bíða langalengi
til þess að komast yfir göt-
ur, þar sem umferð er stöð-
ug. Mér finnst það hart,
þegar maður á réttinn, að
láta fara svona með sig. í
öðru lagi: Hvernig væri að
hafa biðskýli eða að
minnsta kosti bekk við all-
ar stoppistöðvar strætis-
vagnanna, en ekki aðeins
örfáar útvaldar, sem ég fæ
ekki séð að hafi neina sér-
stöðu. Biðskýlin urðu sum
hver alrangt staðsett eftir
að hægri umferðin gekk í
gildi og enn hefur ekki
verið framkvæmt að flytja
þau á nýja og þarfari staði.
É'g læt þetta nægja í bili
og vona að þú styðjir mál-
stað okkar.
Faraldur.
Jú, við styðjum málstað
„hinnar þjáðu, fótgangandi
alþýðu“ af heilum hug. Ef
fleiri vilja leggja orð í belg
eða móti, er orðið laust.
'ftfcÍLi2íúíi‘.í:^:.
POP-MESSURNAR
Kæra Vika!
Ég fæ ekki með nokkru
móti skilið, hvernig menn,
sem eiga að hafa lært til
prests og vígðir hafa verið
sem „þjónar drottins“, láta
aðra eins forsmán viðgang-
ast í kirkjum sínum og
þessar Pop-messur. Ég var
viðstödd eina slíka í
4 VIKAN
18. tbl.