Vikan - 30.04.1969, Side 7
Ljósmyndarar gera sér stundum
til gamans og stilla upp hlið við
hlið keimlíkum myndum af
mönnum og dýrum. Hér er eitt
dæmi um slíkt — og ekki af
verri endanum. ☆
IHCIII IC lEIIIIIUðllÍ
Konur láta gjarnan sitthvað
fjúka, þegar þær ræða hver um
aðra, og leikkonurnar eru þar
engin undantekning. Nýlega
sagði Anita Ekberg um starf-
systur sína, Katharine Hepburn:
— Þegar maður sér Kathar-
ine Hepburn, er engu líkara en
það ríki hungursneyð í landinu.
Þegar Katharine Hepburn
heyrði þetta, sagði hún:
Þegar maður sér Anitu Ek-
berg, gæti maður haldið, að hún
ætti sök á hungursneyðinni. . . .
☆
EKKI IIL
EILÍFDAR
Susan Hampshire, sú sem varð
fræg fyrir leik sinn í hlutverki
Fleur í Sögu Forsyteættarinnar,
er gift franska kvikmyndafram-
leiðandanum Pierre Granier-De-
ferre. Þau hafa verið gift í tæp
tvö ár.
Nýlega var Susan beðin að
segja álit sitt á ástinni og hjóna-
bandinu. Hún svaraði á þessa
leið:
„Ég er vantrúuð á, að þessi
eina og sanna, ellífa ást, sé til
i raun og veru. Þegar stúlka gift-
ir sig, hefur hún ekki hugmynd
um, hvort hún verður hamingju-
söm í hjónabandinu eða ekki.
Hið eina, sem maður getur gert,
er að vona það bezta og treysta
á guð og lukkuna." ☆
18. tbi. VIKAN 7