Vikan - 30.04.1969, Síða 27
4 Siglufjarðarskarðið gat verið erfitt, áður en Strákagöngin komu.
Á pcssari mynd er Pétur rakari mcð Hauk Morthcns og hcila
hljómsvcit í Siglufjarðarskarði 1950.
Hér cr Haukur í dansatriði í revíunni
,,Suður um höfin“.
^ Það cr ckki tekið út
mcð sældinni fyrir
hljómsveitir að ferðast
um landið með níðþung
hljóðfærin. Hér er
Haukur og hljómsveit á
leið til Þórsliafnar.
Með Olmu Cogan brczku
söngkonunni, sem kom
hingað til hljómicika-
halds. |
Ilaukur hóf söngfcril
sinn 1944. Árið cftir
byrjaði hann að syngja
með hljómsveit Bjarna
Böðvarssonar. Þcssi
mynd cr tckin í Vagla-
skógi 1947 -9-
fór ég í Klúbbinn og var þar tæp
tvö ár, svo í Glaumbæ, Sigtún,
Hótel Borg, svo aftur í Klúbbinn.
— Þú ert gefinn fyrir umskipti.
— Já, það er nauðsynlegt. Það
er mikill misskilningur bæði af
hálfu hljómsveitarmanna og veit-
ingamanna að gott sé að hafa þá
fyrrnefndu mjög lengi á sama stað.
Þetta er mikið sama fólkið, sem sæk-
ir sömu húsin, og smátt og smátt
getur svo farið að maður verði hálf-
leiður á að sjá alltaf fyrir sér sömu
andlitin og svo verður fólkið leitt
á okkur líka. Ég veit til þess að
sumir strákanna hafa verið þetta
fjögur—fimm ár í sömu húsunum.
Það er stórmisskilningur, bæði af
hálfu þeirra og eigenda húsanna.
— Þú hefur oft dvalizt erlendis.
— Já, um öll Norðurlöndin, Fær-
eyjar meðtaldar. Upp í fjóra mán-
uði í einu. Til Finnlands fórum við
tvisvar, til Svíþjóðar tvisvar lika, til
Noregs hef ég farið allt norður til
Þrándheims. Við vorum þar yfirleitt
það sem kallað er one night stand,
ferðuðumst um og spiluðum, en
dokuðum sums staðar lengur við, í
þrjár vikur eða svo, til að slappa af.
— Varstu yfirleitt með þína eig-
in hljómsveit ( þessum ferðum?
— Stundum, en stundum líka
með erlendum hljómsveitum og
18. tw. VIKAN 27