Menntamál - 01.01.1933, Síða 21

Menntamál - 01.01.1933, Síða 21
MENNTAMÁL 21 Þá er og hugsað að liafa lýsi á hoðstólum í skólanum og sjá hvernig gengur að koma því út. Telja menn að reynsla bendi til þess, að sum börn taki frekar lýsi í skólanum en heima, og ólíkt ódýrara að kaupa lýsi í tunnutali en í smáskömmtum. Er þá til hvortveggja ætlast, að börn, sem þurfa, fái hér ofurlitinn mjólkurskammt á dag gefins, og að þessi skammtur verði einnig til sölu hér handa þeim er vilja og borgað geta. Mjólkin verður svonefnd Barnamjólk, vegna þess að hún er talin fjörefnaríkari, og kostar skammturinn 7 aura. Er máske heppilegast, að þeir sem horga, gerðu það vikulega eða svo. Og nú vil eg biðja ykkur, góðir aðstandendur, er nota viljið jjetta að gjöf eða með gjaldi, að gera mér strax aðvart, og þá helst með því móti, að börnunum sjálfum sé kunnugt um vilja ykkar í þessu efni á mánudagsmorguninn. En umframt allt er að vænta þess, að hér komist engin bábilja að eða misskilningur. Verum öll samtaka um að styrkja börn- in í baráttunni við heilsuleysið, og notum til þess þá mögu- leika, sem atvik og aðstæður skapa, og minnumst jafnframt þess, að með því að stvrkja einstaklinginn, styðjum við að heill <og velferð samfélagsins alls. S11. S. Valgerður jensdóttir kennslukona var fædd að Hóli i Hvamms- sveit innan Dalasýslu, 16. april 1880. Var hún dóttir Jens Jóns- sonar, héraðshöfðingja mikils, og konu hans Sigríðar Daníels- ■dóttur. Naut Valgerður fræðslu heima, en stundaði síðar nám i Kvennaskóla Reykjavíkur. Nokkuru seinna las hún uppeldis- fræði og fleira i kennaradeild Flensborgarskólans, og útskrif- aðist þaðan með góðri einkunn. Varð hún litlu síðar kennari

x

Menntamál

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Menntamál
https://timarit.is/publication/376

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.