Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 58

Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 58
„Já, auÖvitaS, — eu lilýðiö nú á sögu mína, jafnvel Jjótt þiö hafið heyrt hana áður.“ „Já, hér á vel við að segja skemmtilegar sögur, og við munum reyna að vera góðir á- heyrendur,“ mælti greifinn. „Ágætt! Það var einu sinni kalífi, sem aldrei var ánægður. Hann leitaði ráða hjá spekingi einum, en fékk það svar hjá honum, að ef hann gæti fengið skyrtu af manni, sem væri svo ham- ingjusamur, að honum þætti einskis á vant., mundi hann aftur taka gleði sína og finna hamingju lífsins. Kalífinn tók sér nú ferð á hendur og ferðaðist út um allan heim, frá einu landinu til annars. Hann reyndi konungaskyrtur og furstaskyrtur og anarra stórmenna, en það reyndist allt árangurslaust. Loks hitti hann dag einn fátækan verkamann, er stóð fyrir utan kofadyr sínar, sagaði eldi- við og söng við raust: „Ég er hamingjusam- asti maður á jörðinni! Ég er hamingjusamasti maður á jörðinni!“ — ,,IIó, hó,“ mælti kal- ífinn við sjálfan sig. „Hérna hef ég loksins fundið rétta manninn. Hann gekk því næst til hans og mælti: „Góði maður, ert þú liamingju- samúr?“ — „Já, ég er nú ekki frá því. Ég er viss um, að ég er eins liamingjusamur og sjálfur kalífinn,“ mælti maðurinn. — „Er þá enginn sá hlutur, sem þú óskar þér?“ — „Nei“ — „Vildir þú þá ekki skipta á kjörum við neinn annan mann?“ — „Nei, aldrei.“ — „Ágætt. Viltu þá ekki gera svo vel að selja mér skyrt- una þína?“ — „Skyrtuna mína? Ég á enga skyrtu!“ ÞRETTÁNDI KAPÍTULI Milli tveggja elda. Saga prófessorsins vakti mikla glaðværð í hópnum, en nú fór nóttin I hönd, og vær og end- urnærandi svefn var nú kærkomnari en allt annnað, eftir viðburðaríkan og að mörgu leyti ánægjulegan dag. Perðamennirnir voru orðnir þreyttir, sérstaklega hafði hinn mikli liiti haft lamandi áhrif á þá. Áður en þeir félagar „skriðu inn í hreiðrið“, eins og Pagnael orðaði það, klifraði hann ásamt Glenvan og Róbert upp í „varðturninn“ til að litast um. Klukkan var níu, og sólin var að setjast. Allt norðurlivel himinsins var sveipað hitamóðu, en í suðri voru einstakar stjörnur að koma í ljós á bláu himin- hvolfinu. Prófessorinn notaði nú tækifærið og hélt stuttan fyrirlestur um stjörnufræði, en með- an á því stóð, varð skyndileg breyting á öllu suðurloftinu. Dökkur skýjabakki þokaðist hærra og hærra upp á himinhvolfið, og eftir litla stund var hvergi nokkra stjörnu að sjá. Enn var þó blæjalogn, svo að ekki blakti liár á höfði, en aftur virtist loftið eins og hlaðið rafmagni, sem hafði einkennileg áhrif á allar lifandi verur. „Það er óveður í aðsigi,“ mælti Paganel. „Ert þú nokkuð hræddur við þrumuveður, Róbert?“ spurði Glenvan. „Hvernig getur yður dottið það I hug?“ spurði Róbert. „Það er gott. Óveðrið er í nánd.“ „Og það verður ósvikið þrumuveður, ef dæma má eftir útliti loftsins,“ bætti Paganel við. „Ég læt mig þrumurnar litlu skipta/ ‘ mælti Glenvan, „en mér stendur ekki á saman um regnið, sem koma mun í kjölfar þeirra. Við verðum aftur holdvotir. Þér munuð fá að sanna það, prófessor, að hreiður er ekki ákjósanleg- ur mannabústaður, og það verður ef til vill ekki langt þangað til.“ „O-jæja, ef lífinu er aðeins tekið moð jafn- aðargeði —“. Glenvan leit enn cinu sinni til lofts og varð þess þá var, að allt himinhvolfið var alþakið biksvörtum óvéðursskýjum, nema lítil rönd i vestrinu. Vatnið hafði fengið á sig dökkan blæ, og nú virtist allt renna saman í eitt, liim- inn og haf. „Við skulum koma niður,“ mælti Glenvan. „Éldinganna verður ekki langt að bíða.“ Þeir renndu sér aftur niður til hinna félag- anna, en urðu mjög undrandi, er þeir sáu ótelj- andi ljósleita díla, er sveimuðu hver í kringum annan við vatnsborð vatnsins. „Skordýr?“ spurði Glenvan. „Já,“ svaraði Papanel, „lýsandi skordýr.“ „Getur það verið, að þetta séu skordýr, sem rjúka svona eins og neistaflug?" spurði Róbert. „Já, drengur minn.“ Róbert gat liandsamað eitt þessara litlu dýra. Paganel liafði getið rétt til. Þetta var eins konar vatnabýfluga, sem Indiánar nefna „Tuco-Tuco“. Þetta einkennilega dýr hefur eius konar lýsandi skjöld framan á sór og sést þ'Tí vel í myrkri. Þegar Paganel hélt þessu litln dýri að vasaúri sínu, lagði af því svo mikla birtu, að hann sá vel, livað klukkan var. Þegar Glenvan kom aftur niður til félaga sinna, gaf liann ýmsar fyrirslcipanir viðvíkjandi 202 VORIÐ
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.