Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 59

Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 59
komandi nótt og væntanlogu óveðri. Bylurinn gat skollið á, þegar minnst varSi. Þess vegna var vakin eftirtekt allra á því, að vissara mundi vera að binda sig fasta við tréð, þegar stormur- inn skylli á. Þótt ekki vœri liægt að loka upp- sprettum himinsins og koma í veg fyrir regnið, varð þó að búa svo um hnútana, að enginn steyptist niður i 3traumiðuna af völdum storms ins. Því næst buðu menn hver öðrum góðar næt- ur, og hver skreið inn í sitt hreiður í því trausti að mega sofa þar í næði. Allir voru þó dálítið kvíðnir fyrir hamför- um komandi ’nætur, og það reyndist svo, að eng- inn hafði fest blund, þegar fyrsta þruman reið yfir. Greifinn skreið út á groinarenda, liorfði út að sjónhringnum og Jivarf svo aftur til nátt- staðar síns. „Hvernig lízt yður á, greifi ?' ‘ spurði Paganel. „Mór lízt þnnnig á, að byrjunin verði mynd- arleg, og ef áframhaldið fer eftir því, verð- ur þetta hið mesta fárviðri.' ‘ „Stórkostlegt! “ lirópaði prófessorinn. „Fár- viðri á Pampassléttunni! Hugsið ykkur, live morkilega grein má skrifa um slíkan viðburð í landfræðileg tímarit! Ég geri ráð fyrir, að eldingarnar séu stórfenglegar á þessum slóðum. Það er aðeins eitt, sem ég hef áliyggjur af. í slíkum voðrum er ekki liættulaust að vera í skjóli hárra trjáa, og ég er liræddur um, að svo geti farið, að þetta góða tré okkar dragi eldingarnar til sín, vegna þess að það er eina tréð á stóru svæði." „Eg verð að vekja athygli yðar á því, kæri prófessor," mælti Glenvan, „að þér veljið ekki som hentugastan tíma til að fræða okkur á slík- um hlutum.“ „O-jæja, allar stundir eru jafngóðar til kennslu og uppfræðslu," mælti Papanel. „En nú er óveðrið að skella yfir.‘ ‘ Ægilogt þrumuhljóð kvað við, svo að allar samræður voru óhugsandi. Óveðrið var í nánd. Eldingunum sló niður með ýmsum liætti. Sum- ar fóru lóðrétt til jarðar, fimm eða sex í röð. Aðrar dreifðu sér um himininn í hundraðföþl- "m leifturlogum, sem gerðu himininn ægilegan °g dásamlegan í sonn. Og eftir skamma stund var allt himinhvolfið í einu björtu og stórfeng- k:gu logaleiftri. Glenvan og félagar lians liorfðu Þögulir á þetta ægilega leiksvið liöfuðskopnanna. Enn var logn og þurrviðri, eu eftir drykklanga VORiÐ stund var eins og allar flóðgáttir himinsins opn- uðust, og regnið streymdi niður í lóðréttum bunum, sem líktust þráðum í einhverjum tröll- auknum vef. Boðaði þetta regn ef til vill, að óveðrinu mundi brátt slota? Áttu þeir félagar að sleppa með þetta myndarlega steypibað? Nei, nú varð öllum starsýnt á hnefastóran eldhnött, umvafinn dökkum reyk, sem nálgaðist enda einnar stærstu greinar trésins. Er liann liafði snúizt þarna í nokkrar sekúndur, tvístrað- ist liann eins og sprengikúla með ægilegum liáv- aða, og sterkur brennisteinsþefur barst að vit- um þeirra félaga. Nú var þögn nokkur andar- tök, en þá kallaði Tom Austin: „Það er kvikn- að í trénu.1 ‘ Það reyndist líka svo. Eldurinn breiddist með ægiliraða út um alla vesturlilið trésins. Og nú var farið að íivessa, svo að það jók mjög á útbreiðslu eldsins. Glenvan og félagar hans leit- uðu nú hið skjótasta til austurhluta þessa mikla trés. í þögulli skelfingu klifruðu þeir grein af grein, er sumar hverjar svignuðu ískyggilega mikið undan þunga þeirra. Glóandi eldibrandar féllu í vatnið og bárust burt með straumnum. Eldslogarnir teygðu sig hátt í loft, og því meir sem hvessti, því ægilegri varð eldurinn, og leit út fyrir, að allt tréð mundi brenna til kaldra kola á skömmum tíma. Allir voru máttvana af skelfingu. Þeim lá við köfnun af reykjarmekkin- um, og hitinn var að verða óþolandi. Eldurinn liafði nú breiðzt út um meiri hluta trésius. Enginn mannlegur máttur gat lengur heft för lians, nú beið þeirra aðeins dauðinn, ægilegur, kvalafullur dauðdagi. Örvænting þeirra hafði náð liámarki. Þeir gátu valið um tvenns konar dauðdaga: Að vera stektir lifandi eða drukkna í straumiðunni. „Allir í vatnið! ‘ ‘ hrópaði Glenvan. Logarnir voru komnir alveg að Wilson. Hanu varð líka fyrstur til að hlýða skipun Glenvans. En ekki var liann fyrr kominn í vatnið eu liann hrópaði í dauðans skelfingu: „Hjálp! Hjálp! ‘ ‘ Austin varð fyrstur til að bjarga honum aft- ur upp úr vatninu. „Hvað er að?“ „Krókódilar! “ öskraði Wilson. Og þegar litið var niður í vatnið, sáust þar margir krókódílar á sveimi. umhverfis tréð. Það glampaði á liornplöturnar á baki þeirra, og upp- 203
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.