Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 21

Vorið - 01.12.1971, Blaðsíða 21
Honum kom í hug að hlífa fötum sín- um, hann greip svuntu, sem varð á vegi hans, og hatt liana á sig. Blóðrjóður í framan af ákafa og erf- iði leit hann yfir verk sitt og var ánægð- ur. Iionum hafði tekizt að líma brotin saman, og það bar lítið á því að myndin hafði brotnað. Sennilega var hún ætluð ömmu, hún hafði svo gaman af svona litlum, fallegum mmium. En liún var orðin gömul og ekki víst að hún tæki neitt eftir límingunni. Nú var aðeins eftir að búa um hana aftur og strjúka burt límið. Þegar Henrik ætlaði að láta svuntuna aftur á smn stað, þá sá hann, að hún var öll með límslettum. Það var vonlaust að hreinsa iiana, svo að hann stakk henni í eldavélina. Mamma hans átti svo marg- ar svuntur, svo að ekki var víst, að liún mundi salrna hennar. Henrik gat varla borðað neitt við mið- degisborðið. Hann var órólegur. Foreldr- ar lians spjölluðu saman um daglega við- burði og veittu iionum litla athygli. „Ég hef keypt mjög fallega gipsmynd banda mömmu þinni. Ég vona, að hún verði ánægð með hana. —• Viltu sjá hanaf ‘ Henrik kipptist við, en sem betur fór svaraði faðir hans: „Nei, sleppum því Qúna, ég fæ að sjá hana seinna. Sittu bara róleg og ljúktu við að borða.“ „Nú hef ég lokið vinnu á saumastof- mmi, og ætla að sauma kjól handa Elvu úr afgöngum sem ég fékk. Hann á hún að fá í jólagjöf, því að hún hefur reynzt ágætlega." Henrik fálmaði vandræðalega með hnífapörin, svo að það varð til þess, að faðir lians fór að veita honum at- hygli. „Iívað er að sjá þig, drengur,“ sagði hann,“ þú ert kafrjóður í framan og snertir ekki á matnum.“ Henrik roðnaði ennþá meir, og tók um hálsinn. „Ég held, að ég sé að fá einliverja illsku í hálsinn,“ stamaði hann. Móðir hans athugaði hann. Svo lagði hún hönd sína á enni hans. „Já, ég held að þú hafir hita, drengur minn. Þú skalt leggja þig, svo kem ég bráðlega til þín með heita mjólk með hunangi í. Það væri leiðinlegt, ef þú yrðir veikur um jólin.“ Henrik var ánægður yfir að geta verið einn. Ilonum leið eins og liann hefði hita. Það var ekkert að því, að liggja í rúm- inu og láta stjana við sig, ef ekki væri þessi broddur í sálinni, sem angraði hann. Hann gat ekki sofnað en hlustaði eftir foreldrum sínum. Hann heyrði hávaða af skóm móður sinnar í eldhúsinu með- an hún þvoði upp, og svo heyrði hann að hún opnaði sltápa og sltúffur. Það var undirbúningur undir að ganga frá jóla- gjöfunum um kvöldið. Að lokum sofnaði hann þó. Um átta- leitið morguninn eftir vaknaði hann við háværar raddir frammi í eldhúsi, og þar var einliver, sem grét. „Ég hef ekki tekið svuntuna yðar,“ heyrði hann grátklökka rödd Elvu. „Ég er ekki þjólfur.“ „Jæja, það ertu ekki,“ heyrði hann mömmu sína segja gremjulega. „Yiltu ekki segja mér hvað þú hefur gert við hana. Þetta var fallegasta svuntan mín.“ „Ég hef ekki tekið hana,“ fullyrti Elva. Mamma varð æst: „Nei, það hefur þú sjálfsagt. ekki. En livorki maðurinn minn eða Henrik nota svuntur. Og fyrst þú getur brotið gipsmyndina, líint hana VORIÐ 165
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Vorið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vorið
https://timarit.is/publication/378

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.