Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 24

Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 24
Gunnar J. Gunnarsson Hvað er ... Vísindakirkjan (The Church of Scientology) hefur verið nokkuð í fréttum undan- farið, bæði vegna málaferla gegn stjórnendum hennar í ýmsum löndum og afstöðu þýskra stjórnvalda gegn henni, en þau lýstu þvi yfir fyrir nokkru að eftirlit yrði haft með meðlim- um safnaðarins og þeim gert að gera grein fyrir aðild sinni að söfnuðinum þegar þeir sæktu um opinber embætti. í Þýskalandi hefur söfnuðurinn verið sakaður um heilaþvott og skefjalausa gróðafíkn og verið sviptur stöðu sinni sem trúfélag. Yfirlýsing rúmlega 30 bandarískra leikara og kvikmynda- gerðarfólks í International Herald Tribune af þessu tilefni vakti einnig athygli en það sakaði Helmut Kohl, kanslara Þýskalands, um ofsóknir á hendur Vísindakirkjunni og líkti þeim við ofsóknir nasista á hendur Gyðingum á fjórða áratug aldarinnar. Meðal þeirra sem áttu í hlut voru þekktir leikarar og leikstjórar, t.d. Dustin Hoffman, Goldie Hawn, Lariy King og Oliver Stone. Þau tóku fram að þau væru ekki meðlimir safnaðarins en ýmsir þekktir leikarar eru það, t.d. John Travolta og Juliette Lewis. Vísindakirkjan á rætur að rekja til Bandaríkjanna. Árið 1950 varð til hreyf- ing í kringum mann að nafni L. Ron. Hubbard (1911-1986) en það ár gaf hann út bókina Dianetics: The Modem Science oj Mental Health. Upphaflega átti bókin að vera svar hans við aðferð- um og tækni nútíma geðlækninga. Við- brögð lækna og heilbrigðisyfirvalda leiddu til þess að Hubbard mótaði kenn- ingar sínar í form trúarbragða. Á þeim grundvelli fékk hann undanþágu frá sköttum og frið fyrir opinberum afskipt- um. Vísindakirkjan var svo formlega stofnuð í Washington DC árið 1955. Fljótlega náði hún töluverðri útbreiðslu. Árið 1986 hélt söfnuðurinn því fram að meðlimir væru um sex milljónir í 35 löndum. Ýmsir draga það þó í efa og telja nær sanni að þeir séu innan við milljón. Vísindakirkjan hefur oft verið gagn- rýnd fyrir kenningar sínar og þær kröfur sem hún gerir til meðlima sinna. Hún hefur verið ásökuð um að stunda heila- þvott og að hún ásælist eigur fólks. Hún leitist því við að laða til fylgis við sig ungt, velstætt fólk sem er óánægt með líf sitt eða í tilflnningalegu uppnámi og þráir einfalda og vel skilgreinda lífs- skoðun og andlegt jafnvægi. Á árunum upp úr 1980 voru bæði L. Ron Hubbard og íleiri leiðtogar safnaðarins lögsóttir mörgum sinnum í Bandaríkjunum og viðar fyrir fjármálamisferli og sviksam- lega fjáröflun. M.a. var Hubbard ákærð- ur fyrir að nota skattaundanþágur safn- aðarins til að byggja upp gróðavænlegt viðskiptaveldi og nota svo arðinn af þeirri starfsemi í eigin þágu. Átti hann að hafa flutt fjármuni með leynd yfir á eigin bankareikninga. Þá hafa fyrrum meðlimir oft ákært söfnuðinn í þvi skyni að ná aftur eigum sínum sem þeir höfðu tapað í hendur hans. Kenningar Hubbards eru fjölþættar. Hann hélt því fram að mannkynið væri guðlegrar ættar og komið af guðum sem hann kallar thetans. Þeir afsöluðu sér stöðu sinni og völdum svo þeir gætu vitjað heims efnis, orku, rúms og tima, þ.e. jarðarinnar. Þar færðust þeir smám saman upp stigann með endurholdg- unum þar til þeir urðu menn, en án þess að þekkja guðlegan uppruna sinn. Vísindatrúin snýst um að vekja guðlega

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.