Bjarmi

Árgangur

Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 28

Bjarmi - 01.03.1997, Blaðsíða 28
Páskarnir gjörb „Það varð kveld og það varð morgunn, hinnfyrsti dagur. “ Þannig greinir Biblían frá upphaflegri sköpun Guðs. Guð gjörði aðskilnað dags og nætur. Hið sama gjörðist raunverulega á hinum íyrstu páskum. Þá varð kvöld og þá varð morgunn. Hinn nýi dagur Guðs rann upp í mannheimi. Guð gjörði þáttaskil í mannlegu lífi, greip inn í tilveru okkar og breytti rás hennar. Á föstudaginn langa hvarf ljós heimsins inn í kalda gröf. Þá varð kvöld, ægilegt kvöld, er ljósið virtist hafa lotið í lægra haldi fyrir myrkrinu og hatrið gengið af kærleikanum dauðum. En svo rann upp nýr morgunn, páskamorgunn. Þá var myrkrið á flótta rekið, dauðinn varð að skila aftur herfangi sínu. Guð reisti Jesú Krist upp aftur til nýs lífs. Páskamir tákna algjör þáttaskil í mannlegu lífi! Guð hafði vitjað mannkyns með náð sinni. OÞetta atriði upprisu Jesú Krists virðist oft vera mörgum hulið. Margir líta aðeins á upprisuna sem sönnun fyrir áframhaldandi lífi eftir hinn jarðneska dauða. Upprisufrásagan verður þá aðeins eins og voldug auglýsing um það sem við alltaf áttum í okkur sjálfum en vissum bara ekki um. Slík skoðun á upprisunni er í rökréttu framhaldi þess er menn sjá ekkert í krossdauða Jesú nema píslarvætti manns sem galt með lífi sínu fýrir skoðanir sínar. En sá sem hefur ekki séð neitt meira í boðskap heilagra páska hefur raunar næsta lítið skilið af gildi upprisunnar. Upprisa Jesú táknar algjör þáttaskil. Guð kom inn i tilveru okkar sem einn af okkur til þess að bjarga okkur, frelsa okkur. Þess vegna nefnum við Jesú Krist frelsara. Hann sem einn var syndlaus tók á krossinum á sig sekt og synd alls mannkyns. Þannig leysti hann okkur undan dómi Guðs. Guð greiddi sjálfur skuld okkar. Upprisan á páskamorgni var lokaþátturinn í björgunar- áætlun Guðs. Jesús vann ekki aðeins sigur á dauðanum fýrir sjálfan sig. Við eignumst hlutdeild í sigri hans fýrir trúna á Krist. Krossfestingin og hin tóma gröf voru ekki aðeins sett á svið sem eins konar sýnikennsla. Nei, þar var háð úrslitabaráttan milli Guðs og Satans. Þar vann Guð úrslitasigur yfir valdi hins illa í mannheimi. Þetta er meginatriðið í frumkristnum boðskap. Mér finnst trúarstyrkjandi að finna efa lærisvein- anna gagnvart upprisunni. Þeir voru tregir að trúa. Því fer fjarri að hér sé um að ræða boðskap sem eigi upptök sín hjá þeim. Upprisan var of stórkostleg til þess að þeir gætu trúað henni þangað til þeir mættu hinum upprisna sjálfum. Þá fyrst sannfærðust þeir. Og eftir að Guð hafði fyrir sinn heilaga anda skapað trúna í hjörtum þeirra og leitt þá i allan sann- leikann þá varð einmitt upprisan meginatriði alls kristins boð- skapar. Páll postuli ritar í 1. Korintubréfi: „EJKristur er ekki upprisinn, er trú yðar Jánýt, þér eruð þá enn í syndum yðar..... Efvon vor til Krists nær aðeins til þessa lífs, þá erum vér aumkunarverðastir allra manna. “

x

Bjarmi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Bjarmi
https://timarit.is/publication/379

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.