Kirkjuritið


Kirkjuritið - 01.02.1969, Side 18

Kirkjuritið - 01.02.1969, Side 18
Gunnar Arnasott: Pistlar Frœgasti guSfrœSingur þessarar aldar, Svisslendingurinn Karl Bartli lézt 10. desember sl. Hann fædd- ist í Basel 10. maí 1886. Nafn hans hefur verið meira á vörum annarra guðfræðing*1 en nokkurs annars í þeirra hópi í um liálfa öld. Og þess liefur verið getið við fráfall lians að þetta skeið verði við liann kennt í guðfræðisögu framtímans. Hann var fádæma mikil' virkur. Höfuðrit hans „Die Kirchliche Dogmatik“ er 13 bindn Skýringar hans á Rómverjabréfinu og „Die Protestantische Theologie im 19. Jahrlnindert“ eru einnig meðal nafnkunn- ustu rita hans. Bartli varð ungur prestur fyrst í Genf, síðar í Safenwil. En skjótt gerðist hann guðfræðikennari og sátu menn frá fjölmörg' um löndum við fótskör lians. Hann þótti fyrr og síðar orðglaður og næsta torskilinn. Einhver nemandinn óskaði þess eitt sim1 að Bartli kynnli þeim einfaldlega frumdrætti ákveðins trú- fræðispursmáls. Barth svaraði hvatskeytslega: „Frumdrættiim getið þið fræðst um hvar sem er. Hér fáið þið aðeins það að heyra, sem ég segi.“ Barth reis öndverður gegn þjóðernisstefnu Hitlers (naizin- anum). Hann átti hvað gildastan þáttinn í Barményfirlýsing- unni, grundvelli Játningarkirkjunnar, sem hélt fána kirkjunn- ar liátt á lofti á ofsóknarlímum og lengi verður minnst- Kommúnismann leit liann mildari augum en nazismann, tahli að sá fyrrnefndi fæli á vissan hátt í sér kristna umbótastefnu- Bartli leggur megináherzlu á liátign og alvald Guðs, sein er „liinn ómögulegi möguleiki“. Maðurinn fær ekki nálgast hann. Guð verður að lxita að manninum. Kristur er Orðið —' orð allra orða Biblíunnar.

x

Kirkjuritið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kirkjuritið
https://timarit.is/publication/443

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.