Ægir - 01.10.1946, Page 22
244
Æ G I R
Sjávarútvegurinn færir þjóðinni nær allan
þann gjaldeyri, sem hún þarfnast til kaupa
á nauðsynjum utanlands frá, en án þeirra
verður ekki lifað mannsæmandi lífi í þessu
landi. Efling sjávarútvegsins er því fyrsta
boðorð hvers íslendings. Skortur á fjár-
magni er að hefta eðlilega framþróun
sjávarútvegsins. Með því að kaupa vaxta-
bréf stofnlánadeildarinnar leggja menn
fram nauðsynlegt fjármagn til farsællar
þróunar sjávarútvegsins.
i^i y *y iy iy y iy.iji «|i lyiy y ly iji ly 1^1 i|i 1^11^1 J
flökin koma inn, fer fram flokkun og eftir-
lit. Síðan eru flökin vigtuð. Vigtun er
þannig framkvæmd, að vigtað er í bökkum
úr ryðfríu stáli, sem allir hafa nákvæmlega
sömu þyngd. Og þarf því ekki að tæma
bakkana i önnur ílát, heldur flytjast þeir
áfrain á l'lutningsbandi, sem nær eftir
pökkunarsalnum endilöngum, og er i sömu
bæð og pökkunarborðin. Pökkunarstúlk-
urnar kippa síðan til sín bökkunum af
bandinu.
Ef þær hafa pakkað fiskinn, setja þær
tómann bakkann á annað flutningsband,
sem flytur hann aftur til baka að vigtum.
En pakkinn fullpakkaður flyzt á öðru
bandi út úr pökkunarsalnum, þar sem
hann er svo látinn í frystipönnurnar.
Öll pökkunarborð og pökkunarmótin
eru einnig úr ryðfríu stáli.
Er pakkarnir hafa verið settir í pönnur,
er pönnunum raðað á vagna. Vagnarnir
eru 10, þannig að einn vagn er fyrir hvert
frystitæki, því að eins og áður er tekið
fram, þá eru frystitækin 10.
Vögnunum er síðan ekið að frystitækj-
unum jafnóðum og frystir pakkarnir eru
teknir út af þeim, þá er pönnum stungið i
þau til frystingar frá hinni hlið tækjanna.
í smíðum er flutningsband, sem tekur
við frystum pökkum úr tækjunum, sem
flytur þá upp á efri hæð hússins, þar sem
geymdar eru ytri umbúðir. Þá verða pakk-
Fiskaflinn 30. sept. 1946.
(Miðað við slægðan fisk með haus.)
Sept. Jan.-sept. Jan.-sept.
1946 1946 1945
1. Fiskur, isaður: smál. smál. smál.
a) í útflutningsskip .. » 33 975 67 955
b) Afli fiskiskipa úttl.
af þeiin 1 624 46 543 64 890
Samtals 1 624 80 518 132 845
2. Fiskur til frystingar.. 771 66 813 56 682
3. Fiskur í herzlu » 736 1 834
4. Fiskur til niðursuðu . » 788 278
5. Fiskur i salt 6 585 25 676 2 786
6. Fiskur til neyzlu .... 79 1 711 1 907
7. Síld:
a) til söltunar . 3 214
b) - bræðslu . 593
c) - frystingar
í beitu .. 2 939
d) - frystingar
til útfl. .. 13
e) • niðursuðu 22
6 781 131 183 58 206
Sarntals 15 840 307 425 254 538
arnir settir þar í umbúðirnar, og þeim
síðan rennt niður í kæligeymsluna, sem er
beint undir umbúðargeymslunni. Við
þennan útbúnað verður komið fyrir sjálf-
virkri íshúðun, og mun hún fara fram, áð-
ur en pakkarnir byrja ferð sina upp á efri
liæð bússins.
Vélsmiðjan Héðinn h/f hefur útvegað og
smiðað allar vélar og tæki í húsinu nema
sjálf liraðfrystitækin, en þau hefur Nýja
Blikksmiðjan lagt til. Einnig hefur Vél-
smiðjan Héðinn h/f séð um allar teikning-
ar um fyrirkomulag. Hvað áhrærir hinn nv-
nýtizku útbúnað á flutningskerfi hússins, þá
hefur hún notið leiðbeiningar br. freðfisk-
inatsstjóra Bergsveins Bergsveinssonar, en
hann hafði meðal annars sérstaklega kynnt
sér slíkt fvrirkomulag i fullkomnustu frysti-
húsum í Ameríku í för sinni þangað á s. 1.
ári.